Vorið - 01.03.1953, Síða 28

Vorið - 01.03.1953, Síða 28
24 V O R I Ð P ÍLA Mig langar til að senda þér ofur- lítinn frásöguþátt af lítilli, svartri tík, sem Píla hét og ég var samtíða. Hún var hrafnsvört, snögghærð og glansandi, með móbrún augu, sem ljómuðu af lífsfjöri, tryggð og blíðu. Hún var ein af síðustu hvolp- um Sporu gömlu. Stuttu eftir að hún gaut, þá tókum við eftir því, að hvolparnir voru svo órólegir og allt- af ýlandi. Spora átti afþiljað skot í geymslu í íbúðarhúsinu, og datt okkur í hug, að þeim væri kannske kalt, því að þetta var að vetri til, svo að við tókum hana og fluttum inn í eldlnis og bjuggum um hana hjá eldavélinni. En ekki tók betra við. Hvolparnir fóru að drepast hver af öðrum, og var nú farið að athuga þetta betur, og kom þá í Ijós, að það var engin mjólk í henni, jrótt júgi ið væri stórt, og seinast var bara eftir pínuh'til, svört tík. Þá datt okkur í hug að reyna að búa til túttu handa henni, venjuiega barnstúttu, en hún var of stór. Seinast tókst samt að fá hana nógu litla, og nú fór hún að lifna við. Brátt kom í ljós, að hún var mjög vitur og trygg. Hún var pínulítil, þegar hún fór að reka féð á beit. Hún hljóp í kringum það, þangað til það var komið í hagann; þá sneri hún við lieim. Einn vetur var mjólkin flutt á sleða til Akureyrar dálítinn tíma, og fór hún þá stundum með, og á meðan stansað var í bænum, lá hún hjá sleðanum, og ef einhver ókúnn- ugur kom að, þá rauk hún upp urr- andi og ætlaði að bíta hann. F.inu sinn var hún lokuð inni, þegar ráðsmaðurinn fór með mjólk- ina. Hún bar sig illa, ýldi og krafs- aði i hurðina. Ég kallaði svo á hana inn og sýndi henni vesti, sem hann fór úr og hengdi á stól í eldhúsinu, þegar hann fór, og þar lagðist hún, en ef einhver ætlaði að snerta vest- ið, ætlaði hún að bíta hann. Einu sinni fór illa fyrir henni. Það komu menn með mörg hross og ráku til Akureyrar; fylgdi ráðs- maðurinn þeim á leið, og var hún með og var dugleg að reka hrossin, svo að þau voru kornin langt á und- an, þegar hann sneri yið, og hefur hún ekki heyrt, þegar hann kallaði á hana. Hann var svo kominn heim fyrir æði löngu, og við vorum orðin hálf hrædá um, að hún ætl- aði ekki að koma. En þá sjáum við allt í einu, að hún kemur með niðurlafandi skott og læðist eftir

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.