Vorið - 01.03.1963, Side 16
gengið svolítið um og notið útsýnisins
fórum við á alveg nýtt veitingahús,
Langeline restaurant og fengum okkur
að borða. En áður lögðum við peninga
í tundurdufl sem var þar sett til að safna
peningum handa öldruðum sjómönnum.
Eftir matinn gengur við að styttunni af
hafmeyjunni. Hafmeyjan er þar sem
hún situr á stóra steininum og horfir út
á sundið á einhverjum fallegasta stað í
Kaupmannahöfn. Enda stóðum við
þarna drykklanga stund og dáðumst að
fegurðinni. Við tókum myndir hvert af
öðru standandi við hlið styttunnar og
reyndum að brosa sem sælast til að eyði-
leggja ekki fyrir styttunni. Framh.
Vorið efnir nú enn einu sinni til verðlaunagetrauna. Sú fyrri hefst í þessu hefti
og verður í tveimur heftum. Þó tekur við önnur og verður í tveimur siðústu heft-
unum, en frú henni verður sagt síðar.
Fyrir öll svör rétt í búðum getraununum verða veitt glæsileg verðlaun, en þar
sem búast mó við mörgum réttum úrlausnum, verður dregið um verðlaunin. ——
Svara ú 20 spurningum — 10 i þessu hefti og 1 0 í næsta hefti, og eru þútttak-
endur beðnir að senda ekki svör fyrr en getraunin er komin öll.
VERÐLAUNIN ERU
TVEGGJA MANNA TJALD,
1500 KRÓNUR AÐ VERÐMÆTI.
VERZLUN BRYNJÓLFS SVEINSSONAR gefur Vorinu þennan égæta grip, en
hún verzlar með alls konar íþrótta- og sportvörur, bæði í Skipagötu 1 á Akureyri
og í Ólafsfirði.
Hér koma svo spurningarnar i fyrri hluta keppninnar:
Tíu verðlaunaspurningar um landið okkar.
1. Ur hvaða eldfjalli kom síðasta eldgosið?
2. Við hvaða stöðuvatn eru flestar andategundir?
3. Hvaða eyja er í Eyjafirði?
4. Með hverju eru hús i Ólafsfirði hituð upp?
5. Hver er mesti sildarbær á Norðurlandi?
6. Hvoða kaupstaður er við Skjélfanda?
7. Hvaða vatnsfall fellur eftir Búrðardal?
8. Hver er merkasti sögustaður í Skagafirði?
9. A hvaða skaga er Raufarhöfn?
10. Hvert er stærsta vatnsfall í Húnavatnssýslu?
12 VORIÐ