Vorið - 01.03.1963, Qupperneq 24

Vorið - 01.03.1963, Qupperneq 24
ur,“ sagði ívar. Hann situr og hugsar. Jens situr við hlið hans og bíður. „Ég held, að ermin sé nógu stór,“ svarar hann eftir nokkra stund. „Hvað fáum við fyrir að ná fugla- morðingjanum?“ spyr ívar, því að nú er vöknuð forvitnin hjá honum. „Fyndu þér lurk, — nei, náðu í eina ár úr prammanum.“ Hann hvíslar og heldur fyrir munninn. fvar sendist af stað. Hann hleypur í rjúkandi spretti. „Nú þarft þú að vera viðbúinn, þegar ég tek steininn frá holunni. Settu árina inn í holuna um Ieið.“ Jens býr sig undir. „Nú!“ Hann rífur steininn burt, og fvar setur árina inn í holuna um leið. „Bíddu við, ég ætla að gægjast inn í holuna og vita hvort ég sé minkinn.“ Jens tekur um árina og dregur hana hægt út aftur. „Á,“ segir hann og víkur sér undan en rekur árina samstundis aftur inn í holuna. „Sástu hann?“ spyr fvar æstur. „Já, hann glápti á mig eins og hann ætlaði að ráðast á mig.“ Jens er æstur. „En nú skal hann verða að fara út.“ Hann rekur árina aftur í holuna af öllum mætti. „Hæ!“ ívar æpir og stekkur í kring- um steininn. „Nú er hann kominn í jakkann þinn. f ermina!“ Jens sleppir árinni og kemur á eftir. „f jakkanum mínum! Minkurinn!“ „Já, sjáðu hérna. í erminni.“ Þá sér Jens að jakkaermin er full og hún hreyfist. Hún snýr upp á sig og þyrlast fram og aftur. Drengirnir horfa á þetta undrandi. Fuglamorðinginn er í erminni. Hvað eiga þeir að gera? „Ég verð------------“ segir Jens að lokum. „Þorir þú?“ spyr ívar. Þá tekur Jens kjark í sig. Hann setur upp vettlingana, kippir jakkanum að sér og rúllar hann eldsnöggt saman. Ermin hamast fram og aftur. „Viðbúinn með pokann og snærið,“ kallar hann ákafur. „Æ, Æ.“ J’arna beit hann bæði í gegnum jakkann og vettlinginn. En Jens sleppir ekki takinu. Leiftursnöggt er hann kominn að kvart- elinu og stingur öllu ofan í það. „Láttu yfir og bindum svo vel fyrir,“ kallar hann. ívar, sem hafði staðið með pok- ann, skellir honum yfir og vefur bandinu utan um mörgum sinnum. Þeir anda léttar eftir æsinginn. Loks hafa þeir veitt fuglamorðingjann! — Þetta var sniðug gildra! — ívar er hreykinn af bróður sínum, og hann af sj álfum sér. Vigfús er niðri á bryggju, þegar þeir róa prammanum að stiganum. Hann veit að þeir eru að koma úr Máshólm- anum og kemur til móts við þá. „Jæja, hafið þið orðið varir við fugla- morðingjann í dag?“ spyr hann. „Já, hann er hér,“ svarar Jens og tosar kvartelinu að bryggjustiganum. Vigfús verður undrandi. „Hvað seg- irðu, drengur!“ Hann tekur á móti kvartelinu og ber það upp á bryggjuna. Drengirnir fylgja lionum eftir. „Þú verður að skoða hann,“ segir Jens ákafur. „Er hann stór?“ spyr ívar. 20 VORIÐ

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.