Vorið - 01.03.1963, Qupperneq 30

Vorið - 01.03.1963, Qupperneq 30
STJÖRNUSPEKINGURINN — ÆVINTÝRI — BJÖRN R. STEFÁNSSON SKRÁSETTI Einu sinni var karl og kerling. Þau bjuggu nærri skógi einum miklum, þó eigi mjög langt frá annarra manna bú- stöðum. í skógi þessum var gnægð veiðidýra, en konungur ríkisins átti einn veiðirétt í skóginum, svo þar mátti eng- inn veiða skógardýrin nema kóngurinn og þeir er honum fylgdu eða hann gaf leyfi til þess. Þau karl og kerling höfðu iengi saman búið áður en þeim varð barns auðið. Þótti þeim það mikið mein sem vonlegt var. En er þau voru tekin að örvænta um uppfylling sinna heitustu óska og vona, kenndi konan þunga nokkurs, er hún hugði vera eina illartaða innvortis- meinsemd. Gerðist hún því, sem og bóndi hennar, hugsjúk mjög, því þau hugðu að hún mundi bráðlega deyja. Ukust enn þeirra áhyggjur, er konan fann þetta sprikla í kviði sínum, því þá ætluðu þau að þetta væri ormur eða snákur, sem ofan í hana hefði skriðið og yxi nú í maga hennar unz hann yrði henni að bana. Loks þyngdi henni svo með ógur- legum kvölum, að hún gat ekki varizt að æpa og kveina hástöfum. Sat karl yfir henni og grét beisklega, því nú hugði hann banastund hennar þegar komna. Fögnuði þeirra verður því ekki með orðum lýst, er þessar þjáningar enduðu á þann veg, að konan varð léttari og ól sveinbarn eitt mikið og frítt. Dafnaði og þroskaðist sveinn þessi svo fljótt og vel, að með fádæmum þótti. Unnu for- eldrarnir honum mjög, sem líklegt var. Þótti móðurinni mikið mein hve fáir áttu leið þar um, sem hún gæti sýnt barnið, og mikið ágæti þess. Ber nú ekki til tíðinda, sem í frásögur sé færandi, fyrr en sveinninn er 5 vetra. Þá var það á einum sólbjörtum sumar- degi, að húsfreyja situr úti undir bæjar- vegg að gæta sveinsins, sem lék sér þar í grennd, að hún sér veiðimannahóp koma fram úr skóginum þar nærri. Einn þeirra tekur sig út úr hópnum og ríður heim að bænum. Hann kastar kveðju á húsfreyju og spyr, hvort hún geti gefið sér mjólk að drekka. Hún játar því, en segir, að liann verði þá að gæta sveinsins á meðan. Hann kvað svo vera skyldu. Gengur nú húsfreyja inn og kemur að vörmu spori með mjólkurkönnu. Sit- ur aðkomumaður þá með drenginn á knjám sér og virðir hann fyrir sér með mikilli gaumgæfni. Hafði hann dregið fingurgull af hendi sér og gefið svein- 26 VORIÐ

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.