Vorið - 01.04.1972, Page 7
um þreskihring fékk Henry tvö stór hjól
á dráttarvélina. Síðan gerði hann sér
mót og steypti lítinn gnfustrokk. Þar á
eftir smíðaði hann bulluna, sem gekk upp
og niður í strokknum, knúin gufu frá
katli, sem stóð hjá. Hann lagði sig fram
um að liafa allt sem nákvæmast. Vélin
þurfti að vera sterk, en jafnframt svo
létt, að auðvelt væri að aka henni úti á
víðavangi og láta hana draga plóg, herfi
og önnur verkfæri.
Loksins var stálhesturinn haus tilbú-
inn. Henry kveikti imdir katlinum. Blds-
neytið var steinolía. Ketillinn var lengi
að hitna, en loks fór vatnið að sjóða.
Þrýstingurinn jókst. Bullan tók að hreyf-
ast. Hjólin snerust.. Dráttarvélin ók af
stað.
Hún komst nákvæmlega 20 metra. Þá
nam hún staðar. Ketillinn var of lítill.
En Henry var ánægður með tilraunina.
Hann liafði lært mikið af henni.
Og hann liélt tilraunum sínum áfram,
þótt hann sannfærðist fljótlega um það,
að gufuvélin yrði tæplega nothæf til að
vinna venjuleg jarðræktarstörf. Til þess
þyrfti ketillinn að vera það þungur. Iíitt
var sennilegra, að hægt yrði að smíða
nothæfan gufuvagn til að aka um þjóð-
vegina. Loks kom þar, að í enslcu tímariti
fann hann nákvæma lýsingu á nýjum
hreyflum, sem ekki genjgu fyrir gufu,
lieldur ljósagasi, sem knúði vélina með
sprengingu. Þetta vakti heldur betur at-
hygli hans, og loks kom þar, að hann fékk
að sjá slíkan hreyfil. Maður, sem var á
ferð í borginni, spurði hann, hvort hann
myndi geta gert við slíkan sprengihreyfil.
Henry réðst af kappi til atlögu við
verkefnið, og innan skamms var hreyflill-
mn kominn í lag og gekk vel. Bn jafn-
framt hafði hann athugað hreyfilinn svo
Fordhjónin í fyrsia Fordhílnum.
gaumgæfilega, að hann þekkti liann út í
æsar. Og liann þóttist viss um, að þenn-
an hreyfil hlaut að vera hægt að smíða
nógu léttan til að nota í „hestlausa vagn-
inn”.
Hann hófst þegar í stað handa unr
smíði slíks hreyfils, Verkið var erfitt, því
að hann var svo miklu flóknari en gufu-
vélin, en Henry var þrautseigur og hætti
ekki fyrr en honum tókst. það. Bn hann
notaði ekki ljósagas, heldur benzín fyrir
orkugjafa.
Þetta var upphafið að miklu erfiðleika-
tímabili, sem stóð í tíu ár. Þá loks tókst,
honum að leggja smiðshöggið á verkið, er
liann hafði unnið að með svo mikilli elju
og kostgæfni.
Ártalið er 1893. Það er seint um kvöld
og göturnar í Detroit mannlausar, enda
rigningarsuddi. Hndravagninn stendur á
Vorið
7