Vorið - 01.04.1972, Blaðsíða 26

Vorið - 01.04.1972, Blaðsíða 26
urram. Hægt og reikandi í spori nálgaðist hann drengina tvo. Henry rak nú upp hátt vein. Hann var utan við sig af hræðslu, en Johan tókst að halda stillingu sinni — honum hafði komið dálítið til hugar, og hann ákvað að framkvæma það með gætni. — Grammófónninn stóð ör- skammt frá. Hægt og rólega opnaði hann fóninn og setti plötu á hann. Fyrirvaralaust kvað við reiðilegt urr í hlébarða. Górillan hrökk í kút við þetta hljóð. Ilún þekkti mætavel versta óvin allra apa, þennan svartflekkótta morð- varg, sem ekki hopaði undan neinu öðru en allra stærstu og sterkustu górillum. Þetta risavaxna kattarkvikindi klifraði og hljóp rösklegar en nokkurt annað dýr, og smávaxnir apar óttuðust það meira en nokkuð annað. Górillan skimaði nú og reyndi að koma auga á óvininn, en sá hann livergi. Auð- sjáanlega hafði lævís kötturinn falið sig einhvers staðar til að stökkva þaðan á hráðina. Platan snerist — og liljómaði nákvæmlega eins og hlébarði í vígahug. Þá kvað við hálf niðurbælt öskur, og ap- inn skauzt út í horn — sem lengst í burt frá hlébarðavælinu. Afram hélt platan að snúast og rymja. Bn skyndilega heyrðist fótatak frammi í anddyrinu, og hr. Velden og dr. Stove gengu inn í stofuna. Rafmagnsljósið skein fyrirvaralaust framan í skelfdan apann, sem þrýsti sér upp í stofuhornið. Hann var nær dauða en lífi af hræðslu. Aður en mennirnir gætu nokkuð að gert, spratt hann upp og stökk út að gluggan- um. Brothljóð rúðunnar kvað við um leið og apinn hljóp út fyrir og hélt sem hraðast inn í skóginn. Þegar þangað var komið, var ógjörningur að elta hann. Drengirnir skriðu nú fram og sögðu ***********+****************>*** frá því, sem fyrir hafði komið. — Það voru mörg þúsund krónur, scm þarna hlupu út í skóg, mælti hr. Veldeu og stundi. — En hvað um það, þetta hefði getað farið verr. — Vissulega, sagði dr. Stovo. — 0g það var fyrirtaks hugmynd, sem Johan fékk, þegar hann setti hlébarðaplötuna á. Má vera, að platan hafi beinlínis bjargað lífi drengjanna. — Já, sagði hr. Velden. — Líf drengj- anna er dýrmætast alls. Það skiptir engu, hvort ég hef einum apa fleira eða færra- Górillugreyið liefur sjálfsagt ekki kunn- að við sig svona innilokuð. Ilún þrán’ stóra skóginn sinn. 26 VoRlP

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.