Bjarmi - 01.06.1996, Side 22
UM VÍÐA VERÖLD
KASAKHSTAN:
ÞÝSKALAND:
Kristilegur
barnasími
Biblían þýdd á 33 ný Ungt fólk snýr aftur
tungumál til kirkjunnar
í Alma Ata, höfuðborg Kasakhstan, hefur verið
komið á fót bamasíma sem hefur fengið nafnið
„Litli boðskapurinn". Pegar hringt er í síma-
númerið fá bömin að heyra stutta frásögn með
kristilegum boðskap. Það getur verið saga um
börn, Guð og Jesú og hvaða gildi fagnaðar-
erindið hefur haft fyrir önnur börn. Síminn
hefur fengið góðar viðtökur og mörg börn
notfæra sér að hringja. Ef hringt er innan
borgarmarka er símtalið ókeypis svo að fátæk
börn geta einnig nýtt sér símann. Mörg barn-
anna hafa engin tækifæri til að komast á kristi-
legar barnasamkomur eða guðsþjónustur. Eftir
hverja sögu eru sögð nokkur persónuleg orð til
barnanna og lesið biblíuvers. Markmiðið er að
ná til barna frá heimilum sem ekki eru trúuð
og vita lítið um hvað kristin trú er.
ENGLAND:
Lífsmark í ensku
biskupakirkjunni
Eftir stöðuga fækkun í ensku biskupakirkjunni
sl. 30 ár vottar nú fyrir vexti á ný. Þetta kemur
fram í nýrri skýrslu sem hefur fengið nafnið
„Lífsmark“. Þar kemur fram að nú sé unnið að
stofnun fleiri safnaða en lagðir eru niður. Viku-
legar þakkarfórnir í guðsþjónustum hafa aukíst
um 20% á síðustu þrem árum.
- Fleiri gefa nú hærri upphæðir en nokkru
sinni í sögu kirkjunnar, segir biskupinn í
Wakefield, Nigel McCullogh.
Það er mat manna að eitt af því sem hefur
snúið þróuninni við í ensku biskupakirkjunni
sé svonefndur „boðunaráratugur“ sem hófst
fyrir fimm árum og hefur safnaðaruppbyggingu
sem aðalmarkmið. Eitt af því sem gert hefur
verið er að senda prest og lofgjörðarhóp á milli
landshluta til að fylla tómar kirkjur lífi.
Flestir þeirra sem nú snúa aftur til kirkj-
unnar er fólk á aldrinum 18-30 ára. Um það
bil ein og hálf milljón Breta eru evangelísk-
kristnir og er þriðjungur þeirra í ensku biskupa-
kirkjunni.
í skýrslu frá Sameinuðu Biblíufélögunum kem-
ur fram að á árinu 1995 var Biblían þýdd á 33
ný tungumál. Það þýðir að 1. janúar sl. hafði
Biblían í heild eða hlutar hennar verið þýdd á
2.123 tungumál.
- Þýðing Biblíunnar á nýtt tungumál er eitt
af því sem hefur hvað mest gildi fyrir kristna
trú og útbreiðslu hennar. Aftur og aftur sjáum
við hve áhrifin eru mikil fyrir starf kirkjunnar
að hafa Bibiíuna á tungu fólksins, segir dr. Philip
Stine í útgáfudeild Sameinuðu Biblíu félaganna.
KÍNA:
Nýr biblíuskóli
Yfirvöld í bænum Xing-chun í fylkinu Shanxi í
Kína hafa leyft að biblíuskóla verði komið á fót
i bænum. Skólinn er lögskráður og því undir
yfirráðum ríkisins. í júní í fyrra létu yfirvöld
rífa hús biblíuskóla sem var nokkra tugi km frá
nýja skólanum og var ekki skráður. Samkvæmt
upplýsingum opinberra aðila verður kennt í
sömu greinum í nýja skólanum og þeim sem
lokað var en kennarar verða aðrir. Þrír úr hópi
fyrri kennara voru teknir höndum í lok fyrra
árs og skólastjórinn hefur verið i fangelsi frá
því skólanum var lokað.
Þeir sem fylgjast með málefnum kristninnar i
Kína segja að kristnir menn hafa afar lítil tæki-
færi til að fræðast í trúnni og er þess vegna verið
að mennta kristna leiðtoga víða um landið í
ólöglegum skólum. Samtök utan Kína, sem
vilja hjálpa kristnum mönnum í landinu, leggja
því mikla áherslu á fræðsluna.
Kirkja í
Tienjin í Kína.
Þar sem fagnaðarerindið er boðað óbrenglað
snýr ungt fólk sér til kirkjunnar i Þýskalandi.
Eftir 40 ára andkristinn áróður í fyrrum Austur-
Þýskalandi viðurkenna aðeins 31% af 16 miljón-
um íbúa að þeir trúi á Guð. í öllu Þýskalandi
taka aðeins 4% mótmælenda og innan við 20%
kaþólskara þátt í vikulegum guðsþjónustum
samkvæmt heimildum blaðsins Christianity
Today.
Samt eru merki vakningar meðal ungs fólks í
landinu. í bænum Wetzlar norðan við Frank-
furt hefur aðsókn að kristilegum unglinga-
samkomum, sem haldnar eru hvert fimmtu-
dagskvöld, aukist svo að það þurfti að flytja
þær úr kirkjunni, þar sem þær voru upphaflega
haldnar, í risastóra dómkirkju sem gnæfir yfir
bænum.
í Berlín, þar sem afhelgunin er hvað mest,
frjálslynd guðfræði hefur ráðið ríkjum og
flestar kirkjur standa tómar, er ein undan-
tekning. Lútherska Maríukirkjan í Zehlendorf-
hverfi er troðfull hvern sunnudag þegar prestur-
inn Gottfried Martens predikar, en hann er
einn játningatrúrra presta í borginni. Ungt fólk
streymir i guðsþjónustur og gengur til altaris. í
mars fjölgaði um 301 kirkjunni.
Annað jákvætt merki er mikil þátttaka i
Jesúgöngunni í Berlín fyrir ári síðan en þá tóku
þátt 75.000 manns og í ár var einnig búist við
fjölmenni.
SVLSS:
Tamílar taka trú
Á undanfömum árum hafa margir Tamílar frá
Sri Lanka, sem era flóttamenn í Sviss, snúið sér
frá hindúasið til kristni. Frá því árið 1983 hafa
orðið til tuttugu söfnuðir með 540 meðlimum.
Þetta hófst með því að indverskur predikari og
kristnir menn í Svíss hófu að aðstoða flótta-
mennina og sýna þeim umhyggju. Nú era þeir
sjálfir farnir að starfa á meðal samlanda sinna
sem orðið hafa að flýja land vegna borgarastríðs
og boða þeim trú af miklum krafti.
22