Bjarmi - 01.11.1996, Blaðsíða 11
Þegar Ewart kynnti síðan þessa niðurstöðu sína um
guðdóminn og nafn hans (ræðu og riti vorið 1914, vakti
hún strax ákafar deilur. Þar sem margir kristniboðar voru
áskrifendur að tímariti hans, Meat in Due Season, fengu
sjónarmið hans hins vegar góða kynningu víða um heim.
Þúsundir hvítasunnumanna tóku nú endurskírn til Jesú
nafns, þar á meðal Howard A. Goss og E. N. Bell (1866-
1923), en þeir voru báðir leiðtogar Assemblies of God.
Reyndar hafði Parham tekið að skíra í Jesú nafni fljótlega
upp úr aldamótum, en það hafði hins vegar ekki vakið
neina eftirtekt að ráði. Þrátt fyrir þetta hélt meirihluti
leiðtoga hvítasunnumanna enn tryggð við skírn í nafni
þrenningarinnar og var J. R. Flower (1888-1970) einn
helsti talsmaður hennar, en hann var ásamt þeim Goss og
Bell leiðtogi Assemblies of God.
Slðla árs 1916 kom Flower því svo til leiðar, að sam-
þykki þrenningarlærdómsins var gert að skilyrði að inn-
göngu í Assemblies of God og var þá öllum þeim vikið á
brott, sem ekki viðurkenndu hann og vildu aðeins skrra í
nafni Jesú. Af 585 safnaðarleiðtogum kirkjunnar voru því
156 reknir burt. Hinir brottreknu mynduðu þá nýja kirkju
í samstarfi við annan hóp sjálfstæðra hvítasunnumanna og
var einn forystumanna hennar Goss, en Bell hafði séð að
sér og snúist aftur til fylgis við þrenningarskírnina. Á
árunum 1924-1925 klofnaði sú kirkja hins vegar í þrennt,
þegar meirihluti hvítra í suðurríkjum Bandaríkjanna ákvað
að segja skilið við trúbræður sína úr röðum blökkumanna
til að liðka fyrir starfi sínu meðal hvítra. Tuttugu árum
síðar sameinuðust þó flestir einhyggjusinnar á ný 1 kirkj-
una United Pentecostal Church, en hún er önnur fjöl-
mennasta kirkjudeild hvítasunnumanna í heiminum með
1,3 milljónir meðlima árið 1988.14 Aðeins Assemblies of
God er fjölmennari, en hún hafði 32,5 milljónir meðlima í
118 löndum það sama ár.15 Auk þess er til fjöldi smærri
hvítasunnukirkna, sem teljast einnig til einhyggjusinna,
svo sem litlu söfnuðirnir í Tennessee, Vestur-Virginíu og
Kentucky, er telja mikilvægt, að kristnir menn handleiki
lifandi eiturslöngur til að reyna trú þeirra (sbr. Mark.
16:18), en það er athöfn, sem langflestar hvítasunnu-
kirkjur hafa fordæmt.16 Talið er, að einhyggjusinnar og
aðrir þeir meðal hvítasunnumanna, sem skira aðeins (Jesú
nafni, hafi verið 4,5 milljónir um allan heim árið 1988.
Fjórðungur allra hvítasunnumanna í Bandaríkjunum
töldust þá einhyggjusinnar.17
Trúfélagið Krossinn er dæmi um hvítasunnukirkju, sem
viðurkennir aðeins skírn í Jesú nafni, en boðar samt þrenn-
ingarlærdóminn. Eitt af einkennum United Pentecostal
Church er neikvæð afstaða til kvikmyndahúsa, keppnis-
íþrótta, dansleikja, sunds og skartgripa. Konur eru þar
hvattar til að klippa ekki hár sitt og klæðast kjólum eða
pilsum, en karlar eiga að vera stuttkliptir og klæðast bux-
um.18 Athyglisvert er að þessi sjónarmið eiga flest fylgi að
fagna innan Krossins, enda þótt einhyggjukenning United
Pentecostal Church um guðdóminn sé þar ekki samþykkt.
Þegar lgið fram á sfðari heimsstyrjöld fóru leiðtogar
Assemblies of God að leita eftir nánara samstarfi við aðrar
kristnar kirkjudeildir og voru þeir smám saman viður-
kenndir af þeim flestum. Ýmsum meðlimum Assemblies of
God kirkjunnar þótti hún hins vegar orðin full stofnana-
kennd á þessum tíma, og þegar mikil vakning braust út að
stríðinu loknu, oft nefnd „Latter Rain“, lýstu margir vakn-
inga- og kraftaverkapredikarar innan hennar yfir sjálfstæði
og stofnuðu sínar eigin hreyfingar og kirkjur, svo sem Oral
Roberts. Sumum var jafnvel vikið á brott. Starf þeirra hafði
engu að síður jákvæð áhrif á flestar kirkjur hvítasunnu-
manna, sem höfðu verið að taka á sig stofnanalegan blæ,
enda tók nú mikill fjöldi að ganga til liðs við þær. Segja
má að Assemblies of God hafi öðlast fulla viðurkenningu
sem kristin kirkjudeild eftir að hún komst undir stjórn
Thomas E Zimmermans (1912-1991) árið 1959, en hann
lagði megináherslu á að efla þverkirkjulegt samstarf og trú-
boð með góðum árangri, enda skiptu meðlimir kirkjunnar
þrem tugum milljóna, þegar hann lét af embætti. Frá
níunda áratugnum hefur auk þess fjöldi sjónvarps-
predikara tengst kirkjunni.19
Hvítasunnumenn á íslandi hafa oft sagst vera fjölmenn-
asta kirkjudeild mótmælenda með um 200 milljón með-
limi um allan heim. Sá fjöldi verður þó að teljast nokkuð
umdeilanlegur, enda þótt ljóst sé, að hvítasunnumenn
skipti nú a.m.k. nokkrum tugum milljóna.20 Að mati
kirkjuvaxtarsérfræðingsins D. B. Barretts töldust hvíta-
sunnumenn árið 1988 176 milljónir, en aðeins rétt rúm
15% þeirra taldi hann vera búsetta í Evrópu og Norður-
Ameríku. Til hvítasunnumanna flokkaði hann þó ýmsa
jaðarhópa eins og Nýju postulakirkjuna og alls kyns
baptískar og meþódískar kirkjur vegna áhrifa hvítasunnu-
vakningarinnar á þær. Auk þess taldi hann, að hvítsunnu-
menn væru orðnir a.m.k. 41 milljón 1 Kína.21 Patrick
Johnstone hjá alþjóðlegu kristniboðshreyfingunni WEC
gerði hins vegar ítarlega úttekt á stöðu kristinnar trúar um
allan heim árið 1993 og flokkaði hann þar 58 milljónir
Kínverja sem mótmælendur, en bætti því við að vegna
þeirra hamla, sem stjórnvöld kommúnista setja starfi
kristinna þar í landi, sé í raun ómögulegt að flokka þá
nánar. Johnstone taldi meðlimi hvítasunnukirkna aðeins
vera 93,1 milljón um allan heim, sem verður þó að teljast
töluverður fjöldi, en til samanburðar má nefna, að 66,3
milljónir teljast til lútherskra kirkna.22
Hvítasunnukirkjan á íslandi
Vestur-íslendingurinn Páll Jónsson, sem gerst hafði
hvltasunnupredikari, kom hingað til lands árið 1918 og
hóf fyrstur hvítasunnumanna starf í Reykjavík en hafði
ekki erindi sem erfiði. Það var ekki fyrr en norski trú-
BR0T1Ð TIL MERGJAR
Sveinbjörg
Jóhannsdóttir
William J. Seymour
11