Bjarmi - 01.11.1996, Blaðsíða 14
BROTIÐ TIL MERGJAR
„Trúin á að vera lífsmáti“
Viðtal við Hafliða Kristinsson
N' ú í ár eru 95 ár liðin síðan hvítasunnuhreyfingin hófst í Bandaríkjun-
um og 90 ár síðan vakningin breiddist um allan heim. Starf hvíta-
sunnumanna á íslandi byrjaði fyrir 75 árum og eru 60 ár liðin síðan
söfnuðir þeirra voru stofnaðir í Reykjavík og á Akureyri. í tilefni af
þessum fjölþættu tímamótum tók útsendari Bjarma viðtal við Hafliða
Kristinsson sem hefur verið forstöðumaður hvítasunnusafnaðarins í Reykjavík
í 6 ár. Við byrjuðum á að spyrja hann um fyrstu kynni hans af kristinni trú.
„Ég er alinn upp á trúuðu heimili, þar sem kristin trú
var ríkur þáttur í öllu fjölskyldu- og heímilislífi og fékk
hana því með móðurmjólkinni. Þegar ég er á aldursbilinu
9-11 ára, er ég mjög hugsandi um þessi mál. Á þessum
árum tek ég þá afstöðu, að kristin trú sé eitthvað, sem ég
hafi áhuga á og frá þeim tíma er ég virkur bæði í bama-
starfinu og unglingastarfinu, —já, og tónlistarstarfinu, því
11 ára var ég farinn að spila með Fíladelfíukórnum. Ég
var þá að læra á trompet. Þannig kynnist ég trúnni. Ég er
ættaður austan úr Þykkvabæ, en þar búa pabbi minn og
mamma. Það æxlaðist þó svo, að ég eyddi vetmnum hjá
afa og ömmu hérna í Reykjavík, og var ég þvl að hluta til
alinn upp hjá þeim — var hérna í skóla. Ég á niu systkini
svo það munaði ekki mikið um það, þótt eitt barnanna
væri að hluta til annars staðar. í Reykjavík fékk ég frekar
tækifæri en kannski mörg systkina minna að verða virkur
þátttakandi í starfinu. Ég man vel eftir því þegar hingað
kom eldri maður, sem hafði verið kristniboði í Afríku í
Trú mín erjólgin í því að eiga lijandi, ndið
samjélag við Guð og að það móti þannig líj
mitt, að á hvtrjm degi komijram þessi
ávöxtur í samskiptum mínum við aðra, í
hlutverki mínu sem dginmaður, jaðir og
náttúrlegaforstöðumaður.
mörg ár. Hann hét Efraím Anderson. Þetta fimmtudags-
kvöld var hann að predika, og hvatti hann fólk til að taka
klára og skýra afstöðu. Þá fór hann að ræða um árangur-
inn og ávöxtinn á akrinum, og talaði það mjög sterkt til
mín. Ég fór fram þetta kvöld til fyrirbænar og tók mína
skýru afstöðu 9 ára gamall. Ég man mjög vel eftir þessu
kvöldi, ég man meira að segja lyktina af bekknum. Þetta
var afgerandi augnablik i mínu lífi, sem mótaði næstu ár,
og ég held mikið upp á það.“
Hvað varstu gamall þegar þú tókst sklrn?
„Skim tók ég þegar ég var 11 ára. Það var annað skref
og ekki undir neinum þrýstingi, heldur var það bara
nokkuð, sem ég var búinn að melta með mér. Ég var alveg
ákveðinn á þessum árum. Það var engin skírnarlaug héma
þá, svo maður þurfti að fara alla leið suður til Keflavikur
til að skírast, þannig að það var svolítið fyrir þessu haft.“
í hverju er trú þínfólgin?
„Ég tel að trúin eigi að vera lífsmáti hjá kristnum
mönnum, ekki bara skoðun eða einhver kenningarleg
afstaða. Trú mín er fólgin í þvi að eiga lifandi, náið sam-
félag við Guð og að það móti þannig líf mitt, að á hverjum
degi komi fram þessi ávöxtur i samskiptum minum við
aðra, i hlutverki mínu sem eiginmaður, faðir og náttúrlega
forstöðumaður. Trúin á að vera þetta lifandi og mótandi
afl í lífinu, sem geri kristinn einstakling leitandi eftir að
boðskapur Jesú Krists móti daglegt líf hans.“
Víð hvað starfaðir þú áður en þú gerðistforstöðumaður
Fíladelfíu?
„Ég útskrifaðist sem stúdent frá MH jólin 1976 og gift-
ist 1977. Þá fór ég að vinna uppi á Keflavíkurflugvelli við
að pakka búslóðum fyrir Bandaríkjamenn i tæpt ár. Svo
fór ég að vinna í Landsbankanum og var þar í fjögur ár. Á
þessum tíma var ég áfram mjög virkur i tónlistinni og ekki
síður með unga fólkinu, en ég velti því mikið fyrir mér,
hvað ég ætti að læra. Mér fannst ég ekki vera tilbúinn til
að fara í Háskólann, þar sem ég hafði ekki áhuga á neinu
sérstöku þar. Ég hafði alltaf hugsað mér að fara í veður-
fræði, en það nám var eingöngu hægt að stunda erlendis.
14