Bjarmi - 01.11.1996, Page 17
GunnarJ. Gunnarsson
MENNING & LISTIR
Jerúsalem
Hugleiðingar í tilefni af kvikmynd
Það vakti athygli í haust þegar danski leikstjórinn Bille August kom hingað
til lands til að vera viðstaddur frumsýningu kvikmyndar sinnar Jerúsalem.
Hann er í hópi virtustu kvikmyndaleikstjóra í Evrópu og gerði m.a.
kvikmyndimar Pelle sigurvegari eftir bók Martins Andersen Nexö og Hús
andanna eftir bók Isabel Allende. Háskólabíó sýndi myndina nú í haust og
gefur hana væntanlega út á myndbandi í desember. Myndin hefur vakið töluverða athygli
enda sker hún sig úr fjölda þeirra kvikmynda sem sýndar eru hér á landi. Eitt af þvi sem
vekur athygli er að enn einu sinni rekur á fjömrnar kvikmynd sem fjallar m.a. um kristna
trú og boðskap.
Jerúsalem er byggð á samnefndri sögu sænsku skáld-
konunnar Selmu Lagerlöf sem kom út í tveim bindum á
ámnum 1901-1902 og vakti mikla athygli. Sagan fjallar
um raunverulega atburði og segir frá því þegar hópur
bændafólks frá Nás í sænsku Dölunum fluttist til
Jerúsalem árið 1896 til að mæta Kristi þegar hann kæmi
aftur. Lítíl frétt í blaði um þennan atburð vakti áhuga
Selmu Lagerlöf og fór hún bæði til Nás ogjerúsalem til
að kynna sér aðstæður og leita svara við því hvað fengi
bændur norðan úr Dölum til að rífa sig upp með rótum
og halda á vit óvissunnar suður í landinu helga.
Söguþráðurinn
í upphafi myndarinnar er dregin upp mynd af fábrotnu
bændasamfélagi sem tekst á við erfiða lífsbaráttuna.
Undir niðri ríkir upplausn því þetta litla samfélag vantar
bæði andlegan og veraldlegan leiðtoga eftir að foringi
þess ferst við að bjarga börnum á fleka á beljandi fljóti.
Dag einn kemur sænsk-amerískur predikari til sögunnar,
Hellgum að nafni, leikinn af Sven Bertil Taube. Með
mælsku sinni hefur hann
fljótlega mikil áhrif á
einstaklinga sem og bændasamfélagið í heild og fær að
lokum hóp fólks til að selja eigur sínar og fylgja sér til
Jeúsalem í von um frelsun þegar Jesús kemur aftur.
Inn 1 myndina fléttast ástarsaga tveggja aðalpersón-
anna, þ.e. Ingmars, sem leikinn er af Ulf Friberg, og
Gertrudar, sem Maria Bonnevie leikur. Pau alast upp
saman eftir að Ingmar
hefur misst foreldra sína.
Þegar ástin kviknar milli
þeirra ákveður Ingmar að
halda út í skógana til að
vinna sér inn peninga svo
hann geti tekið við ættar-
óðali fjölskyldunnar og
orðið leiðtogi í sveitarsam-
félaginu líkt og faðir hans
hafði verið og sveitungar hans reiknuðu með. Á meðan
bíður Gertrud þolinmóð. Framtíðin virðist þvl björt.
Allt fer þó á annan veg. Karina, eldri systir Ingmars,
sem leikin er af eiginkonu leikstjórans, Pemillu August,
hefur búið á ættaróðalinu allt frá dauða föður þeirra. Hún
verður fyrir sterkum áhrifum af predikun Hellgum og
ákveður að selja óðalið og halda til Jerúsalem með fjöl-
skyldu slna. Kaupandinn er bóndinn Persson (Anders
Nyström). í örvæntingu sinni svíkur Ingmar Gertrud og
ákveður að giftast Barbro, dóttur Perssons (Lena Endre) til
að bjarga óðalinu. Niðurbrotin er Gertrud auðveld bráð
fyrir Hellgum og slæst í för með honum til Jerúsalem eftir
að hafaséðjesúísýn.
Sveitarsamfélagið í Nás er nú enn sundraðra en fyrr og
pílagrlmanna í Jerúsalem beið allt annað en þeir höfðu
vænst. Umhverfið var framandi og við tók erfið barátta
með vonbrigðum og efasemdum. Barbro gerir sér hins
vegar smám saman grein fyrir því að hún hefur fótum
17