Bjarmi - 01.11.1996, Qupperneq 21
INNLIT
þúsund manna bæ sem heitir Robe (eða rigning), sem er
höfuðstaður Bale-héraðs, en Bale er í Suðaustur-Eþíópíu í
áttina að Sómalíu.
Frá april ‘95 til júní ‘96 vorum við í Ager Selam (landi
friðarins), rúmlega 1000 manna bæ i Sidamo-héraði.
í Robe hefur ekki verið áður starfað á vegum Mekane
Yesus-kirkjunnar í Eþíópíu. Haraldur Ólafsson var þar
kristniboði á vegum Hjálparstofnunar kirkjunnar. Einnig
byrjaði hann að byggja á vegum Hjálparstofnunarinnar í
Goba, 14 km frá Robe. Nú eru finnskir kristniboðar í
Goba.
í Vestur-Bale hefur Mekane Yesus-kirkjan starfað í 30
ár, í um 8 ár í Mið- og Austur-Bale. Robe er í Mið-Bale.
Bale er miðstöð múslima í Eþíópíu og unnum við mest
meðal þeirra.
Aðbúnaður okkar var góður. 1 Bale bjuggum við i litlu
en fínu og vatnsheldu húsi. í húsinu var eldhús, stofa og
tvö svefnherbergi og rennandi vatn og rafmagn og ef
rafmagnið fór af var rafall á stöðinni. Við urðum aldrei
rafmagns- eða vatnslaus. Einnig höfðum við hitadunka
með hituðu vatni. í Robe er drykkjarvatnið beint úr kran-
anum.
1 Ager Selam bjuggum við í húsi sem var með viðar-
klæddum moldarveggjum byggðum á sökklum. Þar höfð-
um við líka rafmagn og rennandi vatn en ekki klósett
heldur útikamar! Húsið þar var svo lítið að Ásta María átti
eigin kofa úr bambus sem hún svaf í. Henni leið vel i sinu
einbýlishúsi.
Þið hajið þá ekki boðað kristni meðal dcemigerðra
heiðingja?
- Trú fólksins er blanda af islam og heiðindómi, svo
kallað Afríkuislam, þar sem fólkið er ekki bókstafstrúar.
Á þessu svæði er islam 400 ára gamalt.
Þetta hlýtur að hafa verið erfitt starf.
- Já, flestir í Bale eru múhameðstrúar, eða um 80%. í
kirkjunni okkar eru um 150 með „altarisréttindi“, en það
eru þeir kallaðir sem hafa farið á skírnar- og fermingar-
námskeið. Þar á meðal voru aðeins tveir fyrrverandi
múslimar, hinir voru Amharar, Sidamofólk eða frá Addis-
svæðinu. Fyrir múslimana er mjög erfitt að taka kristni.
Ef múslimi gerðist kristinn var honum kastað út af heimili
slnu og afneitað af fjölskyldu og vinum. Á flestum stöð-
um þar sem heiðnin ríkir er fyrstu kynslóð kristinna
útskúfað, en svo eru þeir aftur teknir í sátt. En hjá múslim-
um er útilokun til æviloka. í Robe eru margir heimilis-
lausir, einkum ungt fólk sem gerðist kristið og var kastað
út af heimilunum. Margir af hinum eldri í kirkjunni opna
heimili sín fyrir þeim og taka þá að sér, sumir hafa tekið
að sér allt að fjóra.
Það er mikið þolinmæðisverk að vinna meðal múslima.
Á meðan söfnuðir vaxa stórum meðal heiðingja, sums
staðar um mörg hundruð manns á ári, verða kannski 1-2
Það er míkið þolínmœðísverk að vi nna meðal
múslíma. Á meðan söfnuðir vaxa stórum
meðal heiðingja, sums staðar um mörg
hundruð manns d dri, verða kannski 1-2
múslimar kristnir á dri.
múslimar kristnir á ári. Þetta er sennilega vegna þess að
múslimar trúa á einn guð en heiðingjar eru andahyggju-
menn. Þetta er gjörólíkt. Múslimar læra markvisst hvernig
veijast skal kristindómnum og að ráðast á kristna trú út frá
biblíulegum röksemdum. Dæmi: - Sagði Jesús satt? -Já,
alltaf. - Hann sagði að Jónasartáknið væri tákn um hann
sjálfan. Hann laug ekki, var það? - Nei. - En dó Jónas í
stórfisknum? - Nei, hann dó ekki. - Þá dó Jesús ekki
heldur í gröfinni.
Hvernig á ungur kristinn maður að svara þessu?
Hvers vegnafóruð þiðfrá Bale?
- Ástæðan var raunverulega sú að kirkjan í Eþíópíu er
ekki laus við vandamál frekar en aðrar kirkjur. Eþíópskur
leiðtogi starfsins í Bale var sjúkur á geði, hann var sið-
blindur og mjög erfiður í umgengni. Hann bannaði okkur
að fara út í hérað og ferðast þar um. Við fórum til Awasa á
fundi, en kirkjan er þar með skrifstofur, og reyndum að
leysa málin. Að lokum var ákveðið að við færum burt frá
Bale. Skúli Svavarsson, formaður Sambands íslenskra
kristniboðsfélaga, sem þá var staddur i Eþíópíu, studdi
okkur í þeirri ákvörðun. Var einnig ákveðið að enginn
skyldi fara og starfa í Bale fyrr en vandamál þetta væri leyst.
Það gerðist ekki fyrr en núna i maí. Leiðtoginn sagði upp
og hætti í kirkjunni. Þetta voru mjög erfiðir tímar. En þrátt
fyrir erfiðleikana vorum við heppin. Haraldur Ólafsson
Bale er miðstöö
islam i Eþíópíu.
21