Bjarmi - 01.11.1996, Qupperneq 23
INNLIT
þó að hún er í Afríku. Enda eru sumar spurningar, sem
við fáum, hreint fáránlegar! Kalli var spurður í Vatna-
skógi: Getur þú talað afríkönsku? Hann svaraði: Já, ef þú
talar evrópsku!
Hvað hafið pið að segja, eftirfjögurra ára dvöl í Afriku, um
Samband íslenskra kristniboðsfélaga, samtökin sem sendu
ykkur út?
- Úti stjómar eþíópska kirkjan og ákveður hvert kristni-
boðarnir fara. Það eina sem kristniboðið sér um er skóli
barnanna og skrifstofan. Allt annað er rekið af eþíópsku
kirkjunni. SÍK þekkjum við því bara af starfi okkar hér
heima.
Að okkar mati er starf SÍK, sem og KFUK/M og Skóla-
hreyfingarinnar, á tímamótum. Ætlum við að kljúfa niður
hreyfingamar eða vera sem ein heild? Við þurfum að gera
þetta upp við okkur því að það skiptir máli. Þegar starfið
heima gengur vel gengur starfið úti vel. Eins hefur það
áhrif ef starfið heima gengur illa.
Við trúum því að í náinni framtíð mun endurnýjun eiga
sér stað innan félaganna í heild sinni. Okkur finnst við
ekki endilega tilheyra SÍK, við erum líka KFUM-fólk og
KSS-ingar.
Okkur finnst leiðinlegt hvað SÍK er neikvætt í hugum
margra. Þar verðum við, sem störfum innan kristni-
boðsins, að taka okkur á til þess að reyna að breyta því.
En það versta er að þeir, sem hugsa hvað neikvæðast um
SÍK, eru þeir sem láta heyrast mest í sér. Ljóst er að
kristniboðið verður að hugsa sinn gang ef það ætlar að
vera hreyfing sem starfar úti. SÍK þarfnast fleira fólks og
þarf á endurnýjun að halda.
Hvernig ætti gott trúarsamfélag að veral
- Bæna- og lofgjörðarsamfélag þar sem hver og einn, með
kosti sína og galla, fá að njóta sín og allir em velkomnir.
Við viljum samfélag sem hefur reglur, boð og bönn, en á
sama tíma frelsi innan þeirra marka sem trúin gefur. Við
viljum að náðargjafirnar, sem eru hluti af kristinni trú og
af kenningum Biblíunnar, fái að njóta sín. Við viljum, ef
okkur langar til, fá að biðja á samkomu með upplyftum
höndum án þess að það skapi nokkra umræðu.
Við vildum gjarnan að fólkið í salnum á samkomum
sýndi meiri viðbrögð. Við getum setið fyrir framan sjón-
varpið og horft á fótboltaleik og öskrað og gargað, svo för-
um við á samkomu og hlustum á frábæran ræðumann og
segjum ekki bofs! Þurfum við ekki að breyta svolítið
hugsunarhætti okkar? Okkur fannst svo gaman í Eþíópíu
hvað fólkið er lifandi og tekur svo hressilega undir á
samkomunum!
Hvað eruð pið að sýsla núl
Raggý: - Ég er nemandi á 1. ári í Kennó.
Kalli: - Ég vinn hjá SÍK í heimastarfinu. Ég fer tvær
ferðir í haust út á land, til Hafnar í Hornafirði og til
Skagafjarðar. Einnig verð ég í Vatnaskógi að kenna á
fermingarbarnanámskeiðum. Ég vona að ég fái að vinna
meðal unglinga og í tengslum við skólahreyfinguna.
Að lokum?
- Við viljum skila þakklæti til allra kristniboðsvina fyrir
fyrirbænir, við fundum fyrir þeim. í gegnum alla erfið-
leikana fundum við hlýhug ykkar, þið báruð okkur á
bænaörmum.
Við fórum út til Afríku vegna þess að fólk bað um
kristniboða. Fólk er enn á bæn að biðja um nýtt fólk til
þess að fara með fagnaðarerindið. En er þetta sama unga
fólk, sem beðið er fyrir, tilbúið að verða að bænasvari?
Erum við tilbúin að taka afleiðingum af fyrirbænum ann-
arra?
Rúna Þráinsdóttir
0 ISM3JSM3MSMM3MSMSM3I3M50J3M3MSMSMSMM3M0SISMM5MISlE!ISM3ISI3ISM3ISISISISI3ISM3I3MMSMMSISr3J 0
1 1 1 1 1 1 1 1 1 I 1 I 1 1 1 Kristilegt stúdentafélag 60 ára Kristilegt stúdentafélag boðar til fagnaðarfundar þann 15. nóvember n.k. kl. 20:30 í aðalstöðvum KFUM og KFUK, Holtavegi 28, í tilefni af 60 ára afmœli sínu. Allir eru boðnir hjartanlega velkomnir á þessa afmcelissamveru, einkum gamlirfélagar og aðrir velunnarar. Vonuinst til þess að sjá semflesta. Stjóni Kristilegs stúdentafélags. 1 1 1 1 1 i i i 1 1 i 1
0 JSJSJSJSISJSJSJSJSISJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSJSÍSJSJSJSÍSJSJSJSJSJSM 0
23