Bjarmi - 01.11.1996, Blaðsíða 25
FRÆÐSLA
Klefi Bonhoeffers ÍTegel-fangelsinu.
janúar 1933. Tveimur dögum síðar varaði Bonhoeffer við
nýja leiðtoganum í útvarpserindi. Útsendingin var stöðvuð
þegar aðeins var liðið á erindið. Bonhoeffer, Martin
Niemöller (annar þekktur andstæðingur Hitlers) og
nokkrir prestar til viðbótar stofnsettu samtök játningar-
trúrra presta. Samtökin voru svar við ógnvænlegri þróun
þýsku kirkjunnar í ríki Hitlers. Margir prestar beygðu sig
undir alla duttlunga kanslarans og einhverjir lýstu því yfir
að Hitler kæmi í stað Guðs. Bonhoeffer veitti forstöðu
fræðslumiðstöð játningartrúrra presta í Finkenwalde en
nasistar lokuðu henni 1937. Forstöðustarf fræðslu-
miðstöðvarinnar (sem beið hans þegar hann snéri heim
frá London) fæddi af sér tvær merkustu ritsmíðar hans að
mati greinarhöfundar: „Nachfolge“ og „Gemeinsames
Leben“. Sú siðarnefnda fjallar um samfélag kristinna manna
og skyldur þess og ábyrgð en sú fyrri um eftirfylgdina við
Krist.
Bókin um eftirfylgdina hefst á umfjöllun um hina dýru
náð og hina ódýru náð. Ódýr náð er blóðsuga á kirkjunni.
Takmark okkar ætti að vera líf i samræmi við dýru náðina.
Ódýr náð er náð sem er seld á markaðnum líkt og um
vöru farandsala væri að ræða en dýr náð er svar í hlýðni við
kalli Krists. „Þegar Kristur kallar á okkur, þá biður hann
okkur um að koma og deyja.“ Þessi lykilsetning bókar-
innar hljómar sem spádómur þegar dauða Bonhoeffers
níu árum síðar er minnst.
Eftir að fræðslumiðstöðinni var lokað hélt Bonhoeffer
áfram baráttunni gegn Hitler og gerði það sem i hans valdi
stóð til að sporna við áhrifum hans. Hann tók þátt í starf-
semi andspyrnuhreyfingar og lagði á ráðin um að taka
Hitler af lífi. Tilræðið mistókst. Sekt Bonhoeffers leiddi til
þess að hann var fangelsaður og 5. apríl 1943 flutti hann á
nýja heimilið sitt, sex fermetra íbúð í Tegel-fangelsinu.
Kristna menn hefur ætíð greint á um hvort rétt sé að
taka líf manns sem er Guði andstæður og vinnur leynt og
ljóst gegn vexti guðsríkis. Skoðun Bonhoeffers var eftir-
farandi:
„Ef geðsjúkur maður geysist á bíl niður götu troðfulla af
fólki, þá er hlutverk mitt ekki það eitt að hlúa að fólkinu,
sem verður fyrir honum, heldur einnig að sjá til þess að
hann aki aldrei framar."
í klefa sínum notaði Bonhoeffer tímann til að skrifa og
þannig varð til efnið í þekktustu bók hans, „Widerstand
und Ergebung: Briefe und Aufzeichnungen aus der Haft“,
sem vinur hans, Eberhard Bethge, gaf út að honum látn-
um. Bókin er af sumum talin gróðrarstía fyrir frjálslynda
guðfræði. Ef bakgrunnur bókarinnar er skoðaður, bréf
skrifuð af manni í fangelsi, ýmis konar hugleiðingar sem í
raun áttu aldrei að koma í þessari mynd fyrir almennings-
sjónir, þá sjáum við að hæpið er að dæma allan feril hans út
frá henni og taka ekki mark á fyrmefndum verkum hans
um eftirfylgdina og samfélagið sem hann sendi sjálfur frá
sér fullunnin. Auk þess kemur oftar en ekki fyrir að bókin
er skoðuð án tillits til bakgrunns síns eins og hætt er við
um bók af þessu tagi. Bréfunum smygluðu fangaverðir úr
fangelsinu og þau vom grafin niður í bakgarði foreldra
hans.
Samfangar hans veittu honum athygli vegna yfirvegun-
ar, jafnaðargeðs og þrautseigju. Þeir báru virðingu fyrir
honum og undruðust þolgæði hans. Bonhoeffer veitti
mörgum þeirra prestsþjónustu með sálusorgun og guðs-
þjónustum. Hvar sem hann fór var hann samföngum og
starsfsmönnum vitnisburður um Krist.
Hann var nokkmm sinnum fluttur á milli fangelsa og
hafnaði að lokum í útrýmingarbúðunum í Flossenburg
þar sem hann söng síðustu messuna. Þegar hann hafði farið
með blessunarorðin gengu inn tveir fangaverðir sem báðu
hann að koma með sér. Það gat bara þýtt eitt í þessu sam-
hengi, gálginn beið hans. Bonhoeffer hélt ró sinni og það
síðasta sem haft er eftir honum em orðin sem hann mælti
áður en hann gekk út: „Þá eru það endalokin, en fyrir mér
eru endalokin upphaf lífsins.“ Bonhoeffer var hengdur 9.
apríl 1945.
Viku síðar leystu bandamenn útrýmingabúðirnar úr
klóm nasismans.
Grafskriftin var viðeigandi: „Hér hvílir Dietrich
Bonhoeffer, vitnisburður um Krist á meðal bræðra sinna.“
Bonhoeffer var trúarhetja líkt og Davíð, Gídeon og
Abraham. í eigin mætti megnaði hann ekkert. Hann
treysti Guði og það var honum til réttlætis reiknað. Hann
fór af stað líkt og Gídeon i veikleika sínum en í trausti til
orða Guðs.
Adolf Hitler, maöurinn
sem breytti lífi
Bonhoeffers.
25