Bjarmi - 01.11.1996, Blaðsíða 31
vlkja frá Guðs orði muni koma okkur í þá stöðu sem
ekkert okkar vill standa í og lýst er í Matt. 7,22-23:
„Margir munu segja við mig á þeim degi: Herra, herra,
höfum vér ekki kennt í þínu nafni, rekið út illa anda í
þínu nafni og gjört í þínu nafni mörg kraftaverk? Þá mun
ég votta þetta: Aldrei þekkti ég yður. Farið frá mér,
illgjörðamenn.“ (Sjá ennfremur Jer. 2).
Snúum því aftur til Orðsins. Látum Biblíuna aftur verða
þá bók sem við lesum mest og látum orð Guðs móta
okkur. Margir lesa Biblíuna þannig að þeir taka til sin það
sem þeim finnst gott og þægilegt en vísa frá því sem er
óþægilegt. Þannig megum við ekki lesa hana. Það er
einmitt þegar orðið snertir við samviskunni að við verðum
í auðmýkt að beygja okkur fyrir því. Orð Guðs hefur vald
og það gefur líf (Sálm. 119,9, 11, 50 og 67; Jer. 23, 29;
Hebr. 4,12 o.m.fl.).
í Biblíunni er sagt frá þvi að þjóð Guðs var herleidd til
ókunnugs lands. Land það sem Drottinn hafði gefið henni
SJÓNARHORN
var hertekið og þjóðin flutt burt. Og orðið segir okkur að
það hafi gerst vegna synda þeirra (2. Kon. 17,7-18).
Okkur er einnig sagt frá Sódómu og Gómorru sem tortímt
var vegna syndugs athæfis og fráhvarfs (1. Mós. 18-19).
Ef heilagur Guð breytti þannig gagnvart þeim sem
þverskölluðust við afturhvarfsboðskapnum og héldu
áfram í syndum sínum og afsökuðu þær, hversvegna ætti
hann þá ekki að breyta eins gagnvart þjóð okkar sem ekki
vill hlýða á orð hans heldur teygir það og túlkar að eigin
geðþótta?
Þvi er það hvatning mín að við sem nefnd erum með
nafni Jesú Krists snúum aftur til Orðsins. Orð Guðs er
eina von okkar í syndugum heimi. Það er líka eina von
hins synduga heims. Því verður þjóð okkar, eins og allar
aðrar, að heyra skýran boðskap Biblíunnar. Þar liggur
ábyrgð þin og mín.
Já, takk!
s
Eg vil gerast áskrifandi að Bjarma fyrir aðeins kr. 2.700,- á ári.
Nafn:
Heimilisfang:
Póstnr. og staður:
Kennitala:
] Vinsamlegast skuldfærið á greiðslukort mitt
Kortanúmer: □□□□ □□□□ □□□□ □□□□
Gildistími: [j
] Vinsamlegast innheimtiö með gíróseðli Póstfang:
Bjarmi - kristilegt tímarit
Pósthólf 4060
124 Reykjavík
31