Heima er bezt - 01.04.1954, Side 17

Heima er bezt - 01.04.1954, Side 17
112 Heima er bezt Nr. 4 Nr. 4 Heima er bezt 113 Selstúlka úr Harðangri. „Fyrsti verkfræðingurinn“. Geitin er vafalaust elzta hús- dýrið í Noregi, að minnsta kosti eru við hana tengdar eldfornar sagnir úr þjóðarsögu og heið- inni goðafræði. Þór beitti höfr- um fyrir vagn sinn, þegar hann ók „hávan of hifin“ með þrumu- hamar sinn og eldingafleyg. í Danmörku fékk geitin snemma nafnið „kýr fátæklingsins“, en í Noregi hefir hún á seinni ára- tugum verið kölluð „fyrsti verk- fræðingurinn“. Nafnið er runn- ið frá hinum mörgu geitastíg- um um fjallshlíðarnar, og það eru víða fyrstu vegir fólksins á þessum slóðum. Þannig lagði geitin fyrstu vegina, og mað- urinn gat fetað sig troðninga hennar. Hún gerði mönnum fært um fjöll og klungur, sem áður var þeim ófært. Um síðustu aldamót voru geitur í Noregi taldar yfir þrjú hundruð þúsund. Uppland, Sogn og Fjarðafylki hafa jafnan ver- ið mestu geitahéruðin. Þar .eru bezt skilyrði frá náttúrunnar hendi til geitaræktar, víðáttu- miklir fjallskógar og lágvaxinn. kjarnagróður í hábrúnum. Nú eru ekki taldar fleiri en um hundrað þúsund geitur í Noregi. Geitarækt þykir ekki lengur borga sig sem fyrr, þótt verð á geitaosti sé enn hátt, og þar að auki þykir geitin töluverður vá- gestur í ungskógi og illræmd á ökrum, enda halda girðingar henni illa. Seljum fækkar Það leggst æ meir af að hafa í seli og þar með er beztu skil- yrðum til geitaræktar kippt brott. í stað þess stunda bænd- ur æ meir beitirækt fyrir kýr smar og sauðfé, en á þeim vettvangi á geitin ekki heima. Þj bar svo við á hernámsárun- um í Noregi, að geitum fjölg- aði víða allverulega. Þá fór geitastofninn í Sogni á fáum árum upp í 30 þúsund. Fru Uarðangri. Dálítill stofn villigeita er í Sogni í Noregi Geiturnar eru í þann veginn að deyja út sem húsdýr hér á landi, og sömu sögu er að segja i ýmsum þeim norrœnum löndum, þar sem c geitarœkt hefur verið ríkur þáttur í öúskapnum öldum saman, svo sem i Noregi. í þessari grein segir eftir frásögn norsks blaðamanns, Edwards Welle-Strand, dálítið frá norsku geitunum, sem nú fœkkar óðum, og einnig frá hinum sérkennilega villigeitastofni í Sogni. 150 geitur á bæ. Á bæ einum í Arnarfirði, þar sem geitarækt hefur verið stunduð í stórum stíl öldum saman, hafði bóndinn á stríðs- árunum 150 geitur og hafði af þeim góðar tekjur, því að fólk úr næstu kaupstöðum kom hóp- um saman upp í sveit til að kaupa geitaost á svörtum mark- aði. Þá var fæðuskortur í landi, og reglur um hámarksverð á ostinum voru hvorki virtar af kaupanda eða seljanda, og varð verð geitaostsins á þessum svarta markaði 40—50 íslenzk- ar krónur kg. En í fyrra slátraði bóndi þessi öllum sínum 150 geitum, því að þetta borgaði sig ekki lengur. Hann gat ekki lengur sent dætur sínar í selið á sumrin, því að þær voru farnar að heiman í borgarglauminn, og ógerlegt var að fá nokkra selstúlku, sem kunni að búa til geitaost. Og þannig hefur þetta farið fyrir mörgum bændum í Sogni síðustu árin. En á efstu fjallajörðunum ( er geitaræktin þó enn býsna mikil, og það verður á þessum fjallajörðum í Vesturlandi, Þrændalögum og Norður-Noregi, sem geitastofninn verður lífseig- astur. Leikfélagar barnanna, Og margur bóndinn horfir á eftir síðustu geitinni sinni undir hnífinn með sárum söknuði. Geitin er bæði fagurt og viturt dýr, sem ætíð setur svip á bæ- inn, og hún á ætíð nokkra sam- úð fólksins, þótt hún sé óvægin við ungskóginn, akrana, mat- jurtagarðanna og aldingarðinn. Kiðlingarnir eru allra ungviða fjörugastir og verða góðir leik- félagar barnanna á bænum, og þeir vekja börnum oft fyrsta skilning á dýrum og ást á þeim. Kiðlingar að leik á grænu túni er sjón, sem kætir augað. Gömlu hafrarnir með síða og hvíta spámannsskeggið voru prýði á hverjum fjallabæ, og þeir voru tignarlegir, þegar þeir höfðu staðnæmzt á klettasyllu eða húsmæni til þess að láta á sér bera. Hafrarnir tuggðu tóbak. Og fengju hafrarnir tóbaks- tuggu urðu þeir svo kátir, að þeir dönsuðu á afturfótunum og kjömsuðu og veltu vöngum svo skringilega, að fólk veltist um af hlátri. í Sogni var það siður geitabænda að gefa höfrum sín- um munntóbak (skraa) um fengitímann til þess að þeir yrðu sem allra duglegastir við þá skyldu sína að viðhalda geita- stofninum. Kannske var það að- eins hjátrú eða þjóðtrú, að tó- bakið hefði slík áhrif á hafrana, en hún var býsna algeng. Villigeitur í Noregi. En er það satt, að til séu villi- geitur í Noregi? Já, ekki er þvi að leyna, og það kemur líklega mörgum á óvart. í Arnarfirði í Sogni er villigeitastofn. Fyrir allmörgum árum týndu bændur í firðinum nokkrum ungum geit- um, og þeim kom ekki annað til hugar en refurinn hefði ver- ið þar að verki og valdur að hvarfinu. Það var ekki um ann- að að ræða en láta sér það lynda, og geitaleitin varð ekki ýtarleg. En rebbi var saklaus af þessu geitahvarfi. Geiturnar höfðu leitað inn í illgengt fjalllendi, og þangað hafði engum hug- kvæmzt að leita þeirra, því að þangað voru geitur ekki vanar að fara. Geiturnar spjöruðu sig vel. Veturinn er venjulega mildur í Vesturlandinu, og geiturnar gengu vel af. Árin liðu og geit- unum fjölgaði. Að nokkrum tíma liðnum var kominn þarna á fót villigeitastofn, sem forðaðist þau landsvæði, sem menn fóru um. Enginn vissi lengi vel um þennan villigeitastofn, ekki einu sinni bændurnir í Arnarfirði. Þeir bannsungu enn refinn fyrir geitahvarfið. Leituðu ofan í fjöru. En svo kom harður vetur, og jarðbönn urðu hið efra. Þá urðu villigeiturnar að leita ofan í fjöru til þess að seðja hungrið á sölvum og þara. Nístingskalt vetrarkvöld reri gamall maður á báti sinum inn eftir Arnarfirði. Allt í einu sá hann nokkrar geitur á rjátli í fjörunni undir háum og illgengum hömrum, og átti þess sízt von, að þar væri nokkur lifandi skepna. Hann Villigeitur. ájeit þó, að þetta væru tamdar geitur, sem týnzt hefðu frá ein- hverjum bænum í byggðinni og klöngrazt þetta út með firðinum. Hann hélt því uppi spurnum um það á hverjum bæ, hvort nokkur hefði misst út geiturnar sínar, en svo var ekki, og þar með var tilvera villigeitanna afhjúp- uð. Margar geitur skotnar. Bændurnir höfðu illan bifur á þessum villigeitum, og menn voru sendir til höfuðs þeim. Þegar þær leituðu niður í fjör- una í harðindunum, sat skot- maðurinn fyrir þeim, og þennan Framh. á bls. 121. Frá brúðkaupi í Harðangri.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.