Heima er bezt - 01.04.1954, Blaðsíða 12

Heima er bezt - 01.04.1954, Blaðsíða 12
108 Nr. 4 þar aftur Stefáni smið Jónssyni, prests frá Goðdölum, og eignuð- ust þau 2 börn, sem dóu í æsku. Vorið 1852 fluttu þau hjón að Grímstungu. Á því ári dó Stefán, en hún hélt þar áfram búskap með börnum sínum til 1867, að hún giftist í þriðja sinn Jóni ríka á Haukagili Skúlasyni, stú- dents frá Stóruborg. Jón var tal- inn mestur auðmaður í Húna- vatnssýslu á þeim tíma; átti hann margar jarðir þar í sýslu og jafnvel norður í Skagafirði. Hann var sæmdarmaður og vel látinn. Aldrei var hann talinn eftirgangssamur við landseta sína, þó að hann væri auðsæll, heldur hinn mildasti. Tp marks um það sagði mér maður, sem hjá honum var á Haukagili, að stundum hefði komið fyrir, að landsskuldargemlingarnir hefðu verið svo magrir, að séð hefði á mætti þeirra. Jón hefði ekki fengist um það, en sagt: „Þeir lifa, kallinn minn (það var orð- tak hans), ef þeir komast suður í gilið,“ og honum varð oftast að því. Lítið mun hann hafa lát- ið gera af jarðarbótum og húsa- bótum, sem ekki var heldur títt á þeim tímum. Hann fluttist að Grímstungu þegar hann giftist Guðrúnu, en notaði með hálft Haukagil og Gilhaga; voru landkostir þar enn betri en í Grímstungu. Var bú þeirra Guðrúnar svo stórt, að kunnugir menn hafa sagt mér, að þau hafi átt 250 til 300 sauði, og þegar landskuldargemling- arnir voru komnir heim að Grímstungu á vorin, hafi féð oft verið um 700 alls. Ekki naut Guðrún lengi sam- vista þriðja manns síns; hann dó 1873. Búskap sínum í Grímstungu hélt hún þó áfram með Þorsteini syni sínum til 1878, þá fluttu þau að Haukagili. Þá jörð fékk Guðrún í makaskiptum fyrir Auðólfsstaði og Öxl hjá Jóni, stjúpsyni sínum. Þar bjó hún til 1882, að hún fluttist að Tjörn til dóttur sinnar og tengdasonar og dó hjá þeim 4. nóv. 1885 eftir umsvifamikið og dáðríkt ævi- starf. Auk sinna eigin barna hafði Guðrún alið upp 2 systkinadæt- ur sínar, Guðrúnu Þorsteins- dóttur, er síðar bjó á Haukagili, Heima er bezt og Þorbjörgu Kristmundsdóttur á Sveinsstöðum, og ennfremur Ingibjörgu Pálsdóttur, Snæ- bjarnarsonar, nú í Ameríku, og Helgu Björnsdóttur, sem lifir ekkja í Reykjavík. Allar þessar hérlendu fósturdætur Guðrúnar þóttu bera af öðrum konum, er þær fóru að stjórna búum fyrir sig; fóru þar saman dugnaður og reglusemi. Hver sem lítur yfir ævistarf þessarar konu, hlýtur að finna, að hún hefur leyst af hendi meira en meðalmanns verk. Hún eignast sjálf 12 börn, elur upp 4 fósturbörn með hinni mestu prýði eins og sín börn. Hún stjórnar stóru búi -— síðari ár- in -— afarstóru. Verður fyrri hluta ævinnar að bæta á sig ut- anbæjarstjórninni eftir missi manna sinna, og allt fer afburða vel úr hendi, svo vel, að efni hennar fara alltaf vaxandi. Hún kennir hjúum sínum og börnum iðjusemi og siðprýði. í stuttu máli: Heimili hennar verður — líka fyrir þrifnað og fegurð -— fyrirmyndar skóli, einkum fyrir húsfreyjuefni. — Og þrekið. Hún verður fyrir þungum raunum, missir börn sín og mennina sína, en hmmgetur haldið jafnvægi sálarinnar, missir aldrei kjark- inn og aldrei glaðlyndið. Hún var víst hraustbyggð, en hún var líka trúkona, og það mun á raunastundunum hafa orðið henni bezti styrkurinn. Hið góða uppeldi hennar sjálfrar hefur verið undirstaðan. Eins og áður er sagt tókst henni að móta svo börn sín, fósturbörn og jafnvel hjú, að þau báru þess menjar alla ævi. Góðgerðasemi hennar kom ekki einungis fram við fóstur- börnin, heldur við fjölda fá- tæklinga. Meðan hún var í Grímstungu var Grímstungif- heiði fjölfarinn vegur, og ferða- mennirnir rómuðu mjög gest- risni hennar og myndarskap á öllu, sem fram var reitt. Þótt þessi mikilhæfa kona væri ekki jafnframt að brjótast í að láta gera jarðabætur og húsabætur •— til þess var verka- hringur hennar of stór og þekk- ing hennar of lítil —, má hik- laust telja hana meðal þeirra búenda í Vatnsdal, sem bezt hafa staðið i stöðu sinni. IV. Þorsteinn Eggertsson. Þorsteinn Eggertsson og Guð- rúnar, er síðast hefur verið sagt frá, er fæddur á Þóreyjargnúpi. Snemma bar á þvi, að hann líkt- ist móður sinni. Hann var fríð- ur sýnum og þreklegur á velli, verkmaður góður, smiður og hagsýnn við öll störf, fjörmaður og glaðvær, drenglyndur og vin- sæll. Hann var víðsýnn og á- hugasamari um ýmis framfara- mál en þá var títt. Hefur það sjálfsagt meðfram stafað af því, að hann var bókhneigður og las mikið, og þótt hann væri ekki til mennta settur, varð hann allvel sjálfmenntaður af lestri góðra bóka. Hann mun hafa verið að- alfrumkvöðullinn að stofnun lestrarfélags í Áshreppi, sem gerði mikið gagn á meðan það stóð. Þegar verzlunarfélagið við Húnaflóa var stofnað 1869, tók hann strax þátt í því með lífi og sál, og varð einn af fuiltrúum þess. Hélt hann því starfi til enda. Sjálfur lagði hann 7 hluti í félagið. Ingibjörg systir hans 2 hluti og móðir þeirra 20 hluti. Hver hlutur var 50 krónur. Var þetta langmesta hlutatalan á öllu félagssvæðinu frá einu bændaheimili. Á Stóruborgar- fundinum hinum mikla í febrú- ar 1875, þegar verzlunarfélaginu var skipt i tvo hluta, var hann einn af þremur fulltrúum fyrir Áshrepp. Hinir voru Benedikt G. Blöndal og, sá' er þetta ritar. Er mér minnisstæður áhugi hans þá á heill félagsins og framtíð þess. Vorið 1875 var stofnað til hlutaveltu á sumardaginn fyrsta að Ási í Vatnsdal til þess að safna fé í kvennamenntunarsjóð Undirfells- og Grímstungusókna. Átti hann mikilsverðan þátt í þessari sjóðstofnun og gerðist féhirðir sjóðsins meðan hann lifði. Sýndi hann við það eins og önnur opinber störf ósérplægni, áhuga og reglusemi. Þegar ég kom í Vatnsdal 1873 heyrði ég um það talað svo sem einhvern undarlegan hlut, að þessi fríði og velgefni maður væri seinn til að staðfesta ráð sitt. Mátti segja um hann líkt og segir í Vatnsdælu um Ingólf, sonarson Ingimundar gamla: „Allar vildu meyjar með Ingólfi ganga.“

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.