Heima er bezt - 01.11.1956, Qupperneq 10

Heima er bezt - 01.11.1956, Qupperneq 10
350 Heima Nr. 11-12 --------------------------------er bezt---------------------------- sagði einn af dönsku verkfræðingunum: „Þessi hcim- sókn að Bessastöðum var dásamleg og verður ökkur öllum ógleymanleg, ekki aðeins hvað forsetahjónin voru virðuleg, heldur voru þau svo hispurslaus og alúðleg, að það var eins og hverjum einstökum úr hópnum fyndist hann vera heiðursgestur á forsetaheimilinu.“ Og svona var það heimilið: „Hver einasti hlutur fallegur, smekklegur og vel fyrir komið, og svo yndislega laust við allt prjál og tildur.“ Já, glöggt er gests augað. Skyldi frú Dóra Þórhallsdóttir ekki eiga eitthvað af þessu lofi? Þessari grein er nú að verða lokið. Ég hef reynt að draga upp mynd af frú Dóru Þórhallsdóttur, þeirri konu, sem var svo hamingjusöm að fæðast af ágætum foreldrum, alast upp á menningar- og myndarheimili, neyðast mjög ung, fyrir rás viðburðanna, til að taka að sér hússtjórn og mannaforráð, verða fyrr eða seinna kjörin í stjórn allra þeirra félagssamtaka, sem hún gerð- ist félagi í. Giftist ágætis manni, komst í hverja virð- ingarstöðuna annari meiri, þangað til hún er nú orðin forsetafrú Islands og húsfreyja að Bessastöðum og skip- ar þann sess með mesta sóma. Þegar ég nú hugsa um frú Dóru Þórhallsdóttur og óska henni langra og gæfuríkra lífdaga, er sem hljómi fyrir eyrum mér mild rödd frtt Kristjönu Hafstein: „Guðsótti, samvizkusemi, tillitssemi við aðra, ásamt dugnaði, er gott veganesti ungri stúlku.“ LÁRA ÁRNADÓTTIR DÓRA ÞÓRHALLSDÓTTIR forsetafrú Pað vill löngum verða svq, að konur forystumanna sitja í nokkrum skugga af mönnum sínum, er um þá er rætt á opinberum vettvangi. í grein þeirri, er síðasta blað „Heima er bezt“ flutti um forseta Islands, var forsetafrúarinnar minna getið en skyldi, en úr því verður lítils háttar bætt hér. Það var ekkert launungarmál, þegar undirbúningur- inn undir forsetakjör Asgeirs Asgeirssonar fór fram, að kona hans, frú Dóra Þórhallsdóttir, átti ekki síður en hann tök á hugum hinna mörgu fylgismanna. Og þau orð heyrðust, að engin kona á íslandi væri jafnvel kjörin til að gerast húsfreyja á Bessastöðum. Frú Dóra Þórhallsdóttir er dóttir Þórhalls Bjarnar- sonar biskups og konu hans Valgerðar Jónsdóttur. En Þórhallur Bjarnarson mun hafa verið ástsælastur ís- lenzkra biskupa af samtíð sinni. Fór þar saman glæsi- legur persónuleiki, myndugur höfðingi, sannkristinn kirkjunnar þjónn og mannvinur, svo að af bar. Frú Dóra ólst upp með foreldrum sínum í Laufási; lýsir hún þeim og heimilinu í mjög vel skrifaðri óg fallegri grein, sem nefnist „Faðir minnu, og birtist í Kirkjuritinu á aldarafmæli biskups s. 1. ár. Þar segir svo: „Heimilið var alltaf mannmargt. Útihús voru byggð, fjós og hlaða, móar og mýrar ræktaðar, alls um 45 dagsláttur. Börn vinafólks foreldra okkar dvöldu hjá okkur langdvölum á námsárunum. Góður sveita- bragur var á heimilinu, setið við tóvinnu á kvöldum og lesið á kvöldvökum bæði lestrar og sögur. A hverj- um morgni fór pabbi í „fjósagallann“, sem við köll- uðum, leit eftir bústörfum, talaði við skepnurnar eins og þær skildu hann, en þær urðu mannelskar og vitrar af þessu viðmóti.“ Myndin af Þórhalli biskupi er einkar hugljúf. Vér sjáum þar dýravininn, sem „gekk út á tún og kallaði ,Strákur‘; þá komu reiðhestarnir hlaupandi til að sækja brauðbitann sinn“. Þar sjáum við fræðarann, sem tókst á hendur kennslu í barnaskólanum sér til gam- ans, endurgjaldslaust og „notaði enga kennslubók, en sagði okkur söguna af mönnum og atburðum og hélt uppi lifandi viðræðum, en um það var honum létt, ekki síður við börn en fullorðna. Það má vissulega um hann segja, að hann var fræðari af Guðs náð“. Og síðast, en ekki sízt, kirkjuhöfðingjann, sem sagði í vígsluræðu sinni: „Sameiningarmerkið er ekki kenningarkerfi lið- inna tíma. Sameiningarmerkið er sjálft persóna Jesú Krists', og áminnti um þetta tvennt: „trúfestuna og umburðarlyndið.“ Ekki minnist frú Dóra Þórhallsdóttir síður móður sinnar, hinnar glæsilegu konu, sem þjáðist árum saman af banvænum sjúkdómi, en „kvartaði aldrei og var glöð, kát og stjórnsöm“. „Hún sótti styrk í bænina“, og skrifaði meðal annars þessi orð í banalegu sinni: „Maður þarf að hafa fullt traust á sjálfum sér og Guði.“ Engan skyldi undra, þótt kjarnviðir spryttu úr slík- um jarðvegi. Þegar biskupsfrúin andaðist, var frú Dóra enn á ung- um aldri. Tók hún þá við forstöðu heimilis föður síns, svo að hún hlaut ung reynslu í því að veita for- stöðu mannmörgu heimili, þar sem mikið var um gesta- komur. Enginn vafi er á því, að í heimahúsum, hinu stóra menningarheimili í Laufási, hlaut hún hinn bezta undir- búning undir það, sem síðar átti að koma, að verða húsfreyja á Bessastöðum, en vel má minnast þess, að víða var rómað heimili hennar og Ásgeirs Ásgeirssonar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.