Heima er bezt - 01.11.1956, Side 26
36ö
Heima
---er bezt
Nr. 11-12
ist furðu fljótt. Urðu brátt hinir mestu veiðisnillingar
samankomnir í Eyjum, og er svo enn þann dag í dag.
Að sumum hafi gengið fremur erfiðlega með háfinn,
bendir vísa Olafs skálds Magnússonar til, er hann
sagði:
„Veiðin mín er voða smá,
víst er það ei gaman.
Til helvítis eg henda má
háf með öllu saman.“
Önnur vísa Ólafs bendir og til hins sama. Var hann
þá sendur til að athuga, hvort fuglinn flvgi mikið fyrir
veiðistaðina, þ. e., „hvort fuglinn væri viðu, eins og
það heitir á veiðimannamáli, og hvort veiðiátt væri hag-
stæð. Kom hann þá aftur í viðlegutjaldið og sagði við
veiðifélaga sinn, sem var þá Lárus Jónsson, hreppstjóri
á Búastöðum:
„Hér að skreppa hlýt ég inn,
hörð að kreppir pína.
Farðu, hreppaforinginn,
fljótt í leppa þína.“
En þann dag í dag eru veiðarnar stundaðar af kappi.
Eru í öllum stærstu úteyjunum 3 til 6 menn í 5 vikur
samfleytt og þessutan 35 til 40 menn á sjálfri Heimaey
að veiðum. Aðeins er nú veiddur lundi og svartfugl,
þar eð fýll er bannfærður vegna svonefndrar fýlaveiki
(páfagaukaveiki), en aðrir fuglar lítt nytjaðir. Lunda
og svartfugl má nú aðeins veiða í háf, en öll önnur
veiðitæki bönnuð, svo sem skot, snara, greflar og net.
Þó eru fýll og súla drepin með svonefndum „keppum“,
sé um veiði þeirra fugla að ræða.
Lundaveiðiháfurinn er nú til dags mjög meðfærilegt
og lipurt veiðitæki. Hann er rúmlega 6 álna langt, grannt
og fram-mjókkandi skaft úr góðum við, t. d. furu, með
viðfestum tveim rúml. 2ja álna löngum, grönnum
spækjum úr völdum seigviði, t. d. hvítböju, aslc eða
hickory, en milli spækjanna er fyrirkomið neti í 2ja
tommu riðli.
Til þess að vera góður veiðimaður þarf glöggt auga,
eldsnöggar hugsanir og hreyfingar, vera fljótur að sjá,
hvort fuglinn flýgur svo nálægt, að háfurinn nái til
hans, hvar sem sú rétta fjarlægð verður út frá mann-
inum, beint uppi yfir honum, upp með brekkunni, fyrir
framan manninn eða aftan, þ. e. a. s. vera fljótur að
sjá, hvort fuglinn „er á skotiu, eins og það heitir á
veiðimannamáli. Slá svo háfnum upp á nákvæmlega
réttum tíma. Þá er og vandi að „ruglast ekki í ríminu“,
þegar margir fuglar koma fyrir veiðistaðinn, sem er
ve'njan, þegar um góðan veiðistað og átt er að ræða,
þar eð Iundinn flýgur í mjög þéttum og stórum hóp-
um. Eru þá margir á.skoti samtímis og öllum megin við
veiðimanninn. En þessi list kemur með vananum. Þegar
hugsun og hreyfingar veiðimannsins starfa saman með
leifturhraða og augað hefur vanizt hinu hraða flugi
Eggjatctka í „Bjarnarey“ í. Eyjwn.
Bjargsig í Fiskhellanefi.