Heima er bezt - 01.11.1956, Síða 27
Fýlaveiðimenn með keppi.
Heima
---er bezt
Nr. 11-12
Lundamenn með háf.
lundans og hreyfingum, verður glöggskyggnin á fjar-
lægðina til á broti úr sekúndu. Háfnum er slegið upp
með leifturhraða, snöggt og ákveðið, en um leið og
hann lendir á fuglinum, er dreginn sem allra mestur
kraftur úr uppslættinum til að varast skemmdir á háfn-
um. Fuglinn ánetjast strax, og ef hægt er, lætur maður
nú háfskaftið renna sem örast gegnum léttlokaða lóf-
ana allt fram að högld háfsins, þar sem spækjurnar eru
viðfestar skaptið. Þá er fuglinn greiddur úr netinu með
sérstökum handtökum, þannig að vinstri höndin grípur
ofanfrá undir mjóbak hans — undir vængjunum — þar
getur fuglinn sízt náð til að bíta mann, en bit hans
eru mjög sár og sein að gróa, en með hægri hendi er
hann greiddur úr netinu og síðan kippt úr hálsliðnum
með sérstöku taki, þannig að hálsinn upp við hausinn
er tekinn í greipina milli löngutangar og vísifingurs,
örlítið snúið á svírann og tevgt á um leið. Hrekkur þá
svírinn í sundur, og tekur aflífunin aðeins brot úr
sekúndu, ef vel er gert og vanir veiðimenn eru að
verki.
Fuglaveiðar í úteyjum við Vestmannaeyjar eru mjög
ónæðissamt verk og erfitt, sízt starf fyrir værukæra
Bjargsig t Fiskhellanefi.
Að lundaveiðum við brún.