Heima er bezt - 01.11.1956, Side 28

Heima er bezt - 01.11.1956, Side 28
368 Heima ---er bezt Nr. 11-12 Kipping lunda. svo maður hrasar og veltur í öðruhverju spori við að stíga niður í holuopin, þúfnakollarnir róla og rugga, þegar stigið er á þá, eða rifna upp. Loksins kemst maður upp á brekkubrúnina, rennsveittur og örþreytt- ur, engu fegnari en því að velta af sér kippunni, fleygja sér í grasið og hvíla sig unr stund, áður en næsta burð- arferð er farin eða menn fara heim í kofann, eftir að hafa gengið frá fuglinum á geymslustaðnum. Síðan er matur tilreiddur í skyndi, borðað vel og kaffi drukk- ið, en þá farið aftur til veiða og setið til kl. 8 eða 9 um kvöldið. Þá er sú veiði kippuð, borin upp, fuglinn leystur af snærinu og frá honum gengið til geymslu. Eftir það er loks haldið heim í kofann til matar og ýmissa aðkallandi starfa. Eitt er alveg víst, að það eru oft örþreyttir menn, sem leggjast til hvíldar í úteyjar- kofunum um kl. 11 og 12 á kvöldin. Þrátt fyrir erfiðið er úteyjarlífið gott og heilnæmt líf, hressandi og styrkjandi sálar og líkamlega, frjálst og óþvingað veiðimannalíf, sem allir dásama ævilangt, er reynt hafa. Það hefur alla tíð verið hámark hugsjóna hins unga veiðifúsa manns. Það hefur einhver undur- samleg áhrif á alla, heillandi, æsandi og þó svo róandi. Hávaði hins daglega lífs fyrirfinnst ekki, aðeins vængja- þytur og fuglakliður allskonar og þægilegur niður út- hafsöldunnar, er hún hjalar við brimsorfið bergið. Að lundaveiðuvt við bnin. menn eða stirðbusa. Þar er ekki sofið út á morgnana, en farið á fætur um 5—6 leytið. Þá er hitað kaffi, borð- aður einhver kjarnfæðu-árbítur, en síðan klæðzt í veiði- fötin og „keifað“ upp og niður snarbrattar brekkur, niður að bjargbrúninni, og setzt þar að veiðurn í kaldri morgungolunni. Er svo veitt þarna fram á hádegið matar- og kaffi- laust, stundum í regni og þunga vindi, svo menn eru þá blautir inn að skinni og sárkaldir. Síðan er veiðin kippuð í 80 til 100 fugla kippur, þ. e. fuglinn er hnýttur í snæri, lO.til 15 stk. í hverju greiparknippi. Að því loknu er kippan borin á bakinu, máske margar ferðir, ef um góðveiði er að ræða, upp snarbrattar brekkurnar, sem allar eru sundurgrafnar af lundanum, Kipping lunda.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.