Heima er bezt - 01.11.1956, Qupperneq 35

Heima er bezt - 01.11.1956, Qupperneq 35
Nr. 11—12 Heima 375 -----------------------------------------er bezt-------------------------------------- ast fremur harður, frá nýári til miðs febrúar. Þá batn- aði tíð, og varð hin mesta árgæzka kringum allt land, og er það til marks um það, að í marz og apríl fóru nokkrir Bárðdælingar yfir Sprengisand, Eyfirðingar Eyfirðingaveg og Skagfirðingar Kjalveg suður til hundakaupa í Árnes- og Rangárvallasýslum. Snemma í april var farið að slá í jörð og víða byrjuð vinna á Jóhann Pétur Pétursson. túnum, húsabyggingar, jarðyrkja og garðrækt. Maí var þurr og kaldur.“ Fyrirliði þeirra manna, sem komu að Hamarsholti, hét Jóhann Pétur Pétursson frá Reykjum í Lýtings- staðahreppi, en nöfn hinna munu nú vera gleymd. Samkvæmt frásögn Sveins Jónssonar bónda á Hóli í Sæmundarhlíð, sem látinn er fyrir fáum árum í hárri elli, var einn maður úr hverjum hreppi vestan Vatna, en hrepparnir voru þá fimm. Ur Staðarhreppi fór vinnu- maður frá Hóli, en ekki mundi Sveinn nafn hans. Þegar Jóhann og félagar hans voru lagðir af stað og komnir fram á Mælifellsdal, gerði vestan él. Einn maðurinn missti þá kjarkinn, sagði, að þetta mundi verða feigðar- för og sneri heim aftur. Þegar Sigvaldi skáldi frétti þetta, kvað hann eftirfarandi vísu: Einn með fleirum útsendur eftir hundaketi. _ Aftur sneri hann Erlendur á honum Biskupsfleti. Biskupsflötur er fremst á Mælifellsdal, en síðar sann- aðist það, að þeir voru ekki komnir svo langt, þegar Erlendur snéri við, heldur voru þeir hjá svonefndum Moshólum norðarlega á dalnum. Þegar það barst til eyrna Sigvalda, breytti hann vísunni þannig: Einn með fleirum út sendur eftir hinna skrifum. Aftur snéri hann Erlendur á Reykjaselsklifum. Reykjaselsklif eru vestan árinnar, skammt frá Moshól- um, og má vera, að þeir hafi farið fram dalinn þeim megin, enda var Reykjasel þá í byggð, þar skammt utar. Ekki er það kunnugt nú, hvaðan þessi Erlendur var, en vísurnar hafa geymt nafn hans. Indriði Árnason og Sigurlaug ísleifsdóttir. Fátt er nú vitað um ferð þeirra Jóhanns í einstök- um atriðum, en fóstursonur hans, Jóhannes Kristjáns- son hreppstjóri á Reykjum í Tungusveit, hefur sagt frá ferðinni í stórum dráttum á þessa leið: Þeir lögðu af stað á góu, líklega nálægt miðgóu. Snjólítið var á fjöllum og vatnsföll auð. Jakastífla var í Ströngukvísl, og komst Jóhann yfir á henni og einn rnaður með honum, en þá brast hún, og hinir urðu að vaða. Önnur vatnsföll urðu þeir að vaða: Blöndu, Jökul- fall og nokkrar bergvatnsár á Hreppamannaafrétti, en Sandá er þeirra vatnsmest. Hundakaupin munu þeir hafa gert á all stóru svæði. Þeir fóru austur yfir Þjórsá, og lengst komust þeir að bæ nokkrum í nánd við Heklu. Þeir sóttust eftir að kaupa hvolpafullar tíkur. Hest keyptu þeir þar syðra til þess að flytja á farangur og unga hvolpa. Á leiðinni norður urðu þeir að liggja úti á Kili, af einhverjum ástæðum. Á þeim slóðum töpuðu þeir fullorðnum hundi, móstrútóttum, og urðu ekki önnur vanhöld í ferðinni. 56 hunda komu þeir með að sunnan. Það gefur að skilja, að þessir 56 hundar gátu ekki fullnægt þörfinni, sem sést á því til dæmis, að í Lýtings- staðahreppi einum eru um 60 bæir. Því var það, að síðar um veturinn var gerður annar leiðangur suður til hundakaupa. Ekki er nú vitað með vissu um nema tvo af þeim mönnum, sem í þeirri ferð voru, þá Indriða Árnason í Ölduhrygg, sem þá var 25 ára gamall og fyrirvinna hjá móður sinni, Guðrúnu Guðmundsdóttur, og Björn Jónsson bónda á Mælifellsá. Björn var þá
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.