Heima er bezt - 01.11.1956, Qupperneq 36

Heima er bezt - 01.11.1956, Qupperneq 36
376 Heima Nr. 11-12 --------------------------er bezt ---------------------*------ nýlega farinn að búa, rúmlega þrítugur að aldri. Þeir voru fleiri saman, og allir munu þeir hafa verið úr Lýtingsstaðahreppi. Sagt er, að þeir hafi komið með um 40 hunda, og töpuðu tveimur eða þremur á leið- inni. Þá er einnig sagt, að þeir hafi keypt hrossakjöt fyrir sunnan handa hundunum, og stundum á leiðinni hafi þeir dregið kjötstykki og látið hundana elta það. Þeir fóru Litlasand, og þá komið á Kjalveg í Bugum. I sambandi við ferð þeirra Indriða og Bjöms vil ég tilfæra hér kafla úr bréfum frá Þorsteini Magnússyni frá Gilhaga, en hann er dóttursonur Indriða Árnasonar. .... „Þeim var víst vel tekið á Suðurlandi. Hund- arnir voru ýmist gefnir eða seldir lágu verði. Meðal hurídsverð þá var miðað við lambsverð eða lambsfóður, sem þá var lagt að jöfnu. Vel vænir hundar voru metnir á við gemling og höfuðþing á við tvo gemlinga. Ekki munu þessir menn hafa þótt höfðinglegir. Indriði og þeir félagar gistu á einu höfuðbóli. Þeir fengu góða gistingu, en ekki fengu þeir að sjá höfuðpaurinn. Þegar þeir fóru, óskuðu þeir eftir að mega kveðja hann og þakka fyrir sig, en fengu þau skilaboð, að hann hefði ekki tíðir.u .... I öðru bréfi segir Þorsteinn svo: .... „Þeir, sem með Indriða fóru, komust að rauti um það, að sá, sem á undan var, hafði meira erfiði en hinir, jafnvel þó ekki markaði spor, og skiptust þeir á um það eins og helsingjarnir. Eg man, að afi minn sagði það um einn þessara ferðafélaga, að hann hefði dregið sig mjög í hlé með forustuna á fjöllunum, en viljað láta á sér bera, þegar kom til byggða. Á þessu má marka, að þeir hafa talið það nokkra þrekraun að vera á undan. Að líkindum hefur hugsunin verið sá viðauki, sem þeir fundu fyrir, þegar þreytan fór að gera vart við sig.“ .... f sambandi við það, sem hér hefur verið ,sagt um verð á hundum, skal þess getið, að Símon bóndi á Þorljótsstöðum keypti gráa tík, sem kostaði 6 eða 8 spesíur. Stefán Jónsson bóndi í Breiðargerði keypti líka tík, og var hún hvolpafull. Það var vakað yfir henni, þegar hún lagði, en þrátt fyrir það andaðist einn hvolpurinn, en fimm lifðu. Þeir Indriði Árnason og Björn Jónsson urðu síðar nágrannar. Björn bjó á Grímsstöðum frá 1866 til 1887. Kona hans var María Einarsdóttir bónda á Breiðsstöð- um í Gönguskörðum. Þau áttu mörg börn og voru fá- tæk. Indriði bjó í Ölduhrygg frá 1857 til 1872, en flutt- ist þá búferlum að írafelli og bjó þar síðan til 1889. Þessir bæir allir voru í Svartárdalnum að vestanverðu, en eru nú í eyði. Kona Indriða hét Sigurlaug ísleifs- dóttir, mikil ágætis kona og Ijósmóðir í Lýtingsstaða- hreppi um 40 ára skeið. Þau áttu tvær dætur, sem upp komust. Indriði var góður bóndi og allvel efnum bú- inn. Hann var hreppstjóri Lýtingsstaðahrepps frá 1870 til 1874 og þrisvar hreppsnefndaroddviti á tímabilinu frá 1876 til 1889. Þeir Björn og Indriði voru oft saman í fjallaferðum og létu sér ekki allt fyrir brjósti brenna, þegar á reyndi. Björn var rösklega meðalmaður á hæð, saman rekinn og mikið hraustmenni talinn. Hann var glöggur á margt, skapmikill og þótti ráðríkur, þegar því var að skipta. Indriði var ekki mikill að vallarsýn. Hann var tæplega meðalmaður á hæð, og granrívaxinn og dálítið boginn í herðum, en með afbrigðum harðger og viljasterkur. Hann var skapmikill og oft kaldur í viðmóti, en raun- góður og lét sér annt um allt, sem honum var trúað fyrir. Hann var yfirlætislaus og fremur dulur, var harð- ur við sjálfan sig og aðra, en naut hylli manna fyrir sína kosti, og fólk, sem var hjá honum, bar honum vel sögu og var hlýtt til hans þrátt fyrir erfitt skap- lyndi. Gömul kona hefur sagt mér eftirfarandi sögu af einni fjallaferð þeirra Björns og Indriða. Þeir höfðu þann sið að reka hrossin fram á Ásgeirs- tungur á haustin til þess að spara heimahaga og láta þau vera þar eitthvað fram á vetur, eftir því sem tíð fór að. Hrossin mundu samt ekki hafa verið mörg og flest eða öll tamin. Einhverju sinni fóru þeir að sækja hrossin, gengu að heiman fram á Hauga og voru þar í kofanum um nótt- ina. Næsta morgun var komin stórhríð á norðan, og hafði sett niður feikna fönn. Þeir treystu sér ekki að koma hrossunum norður vfir Litlasand vegna ófærðar og ákváðu að fara heldur ofan í Húnavatnssýslu. Fremsti bær í Bólstaðarhlíðarhreppi var þá Kongs- garður á Fossadal, sem nú er fyrir löngu kominn í eyði. Þeir lögðu síðan af stað norður heiðina á móti veðr- inu. Björn spurði Indriða, hvort hann vildi heldur vera á undan eða reka hrossin á eftir. „Far þú á undan. F.g kenr á eftir,“ svaraði Indriði. Björn teymdi gráa hryssu á undan, batt bandi um mittið og festi tauminn á Gránu í mittisbandið til þess að hafa lausar hendur. Með Birni var stór hundur, loðinn. Einhverntíma á leiðinni gafst hundurinn upp og settist að, vegna þess hvað mikill snjór hafði hnoðazt í hann. Björn spurði þá Indriða, hvernig hann ætti að fara að þessu. „O, skerðu af hon- um hausinn,“ svaraði Indriði. „Það geri ég aldrei,“ svar- aði Björn. Björn tók síðan hundinn, skar úr honum mestu snjóboltana og bar hann undir hendinni, það sein eftir var leiðarinnar. Um kvöldið komu þeir félagar ofan að Kóngsgarði eftir 13 tíma útivist. Eftir sömu heimild er önnur saga af fjallaferð Indriða, en þá var Björn ekki með honum, heldur vinnu- maður hans, Jónas Jóhannesson frá Vindheimum. Þeir voru að sækja hrossin fram á heiðina og voru á heim- leið, þegar gerði snjókomu og dimmviðri á Litlasandi. Þá greindi á um, hvert stefna skyldi, og um þær mund- ir komu þeir að stórum steini. Jónas sópaði snjóinn af stóra steininum. Á einni hlið hans var dálítil rauf, og þar fann hann bláa steinvölu, sem hann kannaðist við. Indriði gerði ekkert með þessa bláu steinvölu, en sópaði líka snjónum af steininum og fann von bráðar rauðleita sandsteinsvölu, sem vísaði til sömu áttar. Þeg-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.