Heima er bezt - 01.11.1956, Page 41

Heima er bezt - 01.11.1956, Page 41
HVAÐ UNGUR NEMUR — ÞÁTTUR RITSTJÓRI: ÆSKUNNAR STEFÁN JÓNSSON-------------------------------- NÁMSTJÓRI FRÁ ÖRÆFABYGGÐ Vatnajökull þekur nálægt því 1 /x0 af flatar- máli íslands, enda er hann mesti jökull í Ev- rópu. — Sunnan undir jölkinum er Austur- Skaftafellssýsla, strjál byggðahverfi, sundur- skorin af söndum og stórfljótum. Vestasta sveitin er Hofshreppur, sem í daglegu tali er nefndur Öræfi. Þessi sveit er að sumu leyti sérkennilegasta sveit á íslandi. — Að vestan er Skeiðarársandur, en um hann falla Núpsvötn og Skeiðará. Að austan er Breiða- merkursandur, en um hann falla mörg jökulvötn. Merk- ast af þeim er Jökulsá. — Sunnan í Vatnajökli er hæsta fjall íslands, Öræfajökull. Ef athugað er kort af Öræfabyggð, þá sést, að í hálf- hring við rætur Öræfajökuls eru grænleitir og ljós- brúnir blettir. Þessi hálfhringur er Öræfasveitin. Byggð- in er strjál, og bæirnir standa yfirleitt í þyrpingum eða hverfum. Þótt samgöngur séu yfirleitt sæmilega góðar á Is- landi, þá eru Öræfin þannig sett, að lítill hluti lands- manna á þess kost að sjá þessa fögru og sérkennilegu byggð. — Það, sem ég segi hér um Öræfabyggð, er ekki nein héraðslýsing, heldur frásögn af því, sem vekur fyrst athygli ferðamannsins, er leið hans liggur um sveitina. Að flatarmáli er Skeiðarársandur eins og þrjár til fjórar sveitir á Suðurlandsundirlendi. Núpsvötn eru vestan við sandinn, en Skeiðará að austan. Milli vatn- anna eru réttir 25 km. Skeiðarársandur er að mestu gróðurlaus auðn, en austan til á sandinum er þó oftast dálítill bithagi fyrir sauðfé, og gengur fé frá Skafta- felli á sandinum yfir sumartímann. Nokkuð af þessari sandauðn mun hafa verið blóm- leg byggð fyrstu aldir íslandsbyggðar, en eldgos úr Öræfajökli og Skeiðarárhlaup hafa grandað þessu landi. Er talið, að heil kirkjusókn, er nefndist Rauðalækjar- sókn, hafi farið í auðn í einu gosi úr Öræfajökli. Eru í annálum nefndir margir bæir, sem þá fóru í eyði. Þegar gos og vatnsflóð eyddu láglendið, urðu þó nokkrir bæir eftir í skjóli hárra fella, er hlífðu þeim. Má þá búast við, að fólkið af þeim bæjum, sem eydd- ust, hafi flutzt upp undir fellin og reist sér þar býli og þannig hafi fjölbýlið myndast upphaflega. Sum bæjamöfnin eru líka kennd við fell, svo sem: Skafta- fell, Svínafell og Sandfell. Þjóðsögur segja, að þar sem Skeiðará flæmist nú um sandinn, hafði áður verið gróðursæl byggð. Þá var Skeiðará kyrrlátt og fagurt vatnsfall, sem liðaðist milli skrúðgrænna vall- lendisbakka, með birkikjarri og blómaskrúði, líkt og fegursta vatns- fall Iandsins gerir enn þann dag í dag. — En það er Laxá, sem fell- ur úr Mývatni. Sagan segir, að eitt sinn hafi tvær stúlkur komið að Skeiðará, sín á hvorn bakka. — Var önnur með vefjarskeið, sem þurfti að komast á bæ handan við ána. — Þær vildu ekki bleyta sig á ánni, og var áin þá Til vinstri: Hof. Heima er bezt 381

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.