Heima er bezt - 01.04.1958, Síða 2

Heima er bezt - 01.04.1958, Síða 2
Jafnvægi líyggáarinnar Mörgum þykja uggvænlegir þeir fólksflutningar, sem orðið hafa hér innanlands síðustu áratugina. Fólkið hefir flykkst úr sveitunum til kaupstaða og bæja, en hitt hefir þó verið enn stórtækara, hversu straumurinn hefur legið óslitinn til Reykjavíkur og nágrennis hennar við Faxaflóa. Svo mjög hafa byggðarhættir raskast í landinu, að afskekkt byggðarlög hafa lagzt í auðn, og það sem ef til vill er enn alvarlegra, að þorp og kaup- staðir úti um landið hafa staðað í stað, eða verulega fækkað í þeim. Vér skulum nú athuga fólksfjöldann í landinu, eins og hann var í árslok 1955, en sennilega hafa hlutföllin enn breytzt til hins lakara fyrir byggðir landsins utan Reykjavíkur, því að um alllangt skeið hefur nær öll fólksaukning í landinu farið þangað. Fólksfjöldi í land- inu var þá 159.480. I Reykjavík, Kópavogi og Hafnar- firði bjuggu 73.687. I kaupstöðum utan þessara þriggja 29.971, en í öllum sýslum og þorpum án kaupstaðarrétt- inda bjuggu 55.822. Enn er þess að gæta, að í Keflavík og Gullbringu- og Kjósarsýslu bjuggu fullar 10 þús- undir manna, svo að í Reykjavík og næsta nágrenni bjó þá meira en helmingur landsfólksins, eða rúmlega CJO/ J 3 /0. Fólksflutningar sem þessir eru að vísu ekkert eins- dæmi á íslandi. í öllum löndum, þar sem fólk er frjálst um ferðir sínar, atvinnu og dvalarstaði, dregst það þangað, sem fjölbýlið er mest fyrir, og þá einkum til höfuðborganna. Meginorsök til allra þessara fólksflutninga hér á landi hafa menn talið, að afkomu- og atvinnumöguleik- ar hafi verið betri í Reykjavík og nágrenni en annars staðir á landinu, ekki sízt í sambandi við hersetuna á Keflavíkurflugvelli. Vafalítið er þetta rétt í megin- atriðum. En fleira kemur þó til greina. Frá því að innlend stjórn kom í landið, hefir verið mjög rík tilhneiging til að draga, ekki einungis alla stjórn landsins, heldur og allar alþjóðar stofnanir til Reykjavíkur, og svo má kalla, að hin síðari árin sé þessi miðstjórn orðin svo rík, að menn naumast geti snúið sér við, án þess að leita fyrirmæla frá einhverjum stjórnarvöldum í Reykjavík, og skólar og menningar- stofnanir mega vart vera til utan höfuðborgarinnar. Mörgum mun enn vera minnisstætt, hverja baráttu það kostaði, þegar settur var Menntaskóli á Akureyri. Andstæðingum þess rnáls þótti fjarstæða, að unnt væri að reka lærðan skóla utan Reykjavíkur, og höfuðrökin í málinu af þeirra hálfu voru þau, að hvorki mundu fást kennarar til þess skóla, né nemendur vildu una því að kota sér þar niður. Reynslan hefur sýnt annað. En svo hlálega brá við, að þegar fyrir nokkru var rætt um að flytja Húsmæðrakennaraskólann burt úr Reykja- vík, voru bornar fram nákvæmlega sömu röksemdirnar og í menntaskólamálinu fyrir 30—40 árum síðan. Og nú standa yfir harðar deilur um það, hvort stofna beri búnaðarháskóla í Reykjavík, eða byggja ofan á þá fram- haldskennslu í búfræði, sem fram hefir farið á Hvann- eyri undanfarin ár. í umræðum um þessi mál er þá löngum einblínt á atvinnuhættina eina saman, og rætt er um, og ráðstafanir gerðar, til þess að dreifa atvinnutækjum. Slíkt er að vísu bæði rétt og skylt, en það er ekki nóg. Það er heldur ekki nóg, þótt bætt séu lífsskilyrði úti um sveitir lands- ins, sem gert er að vísu eins og vera ber. Ef sveitimar eiga að blómgast og fólkið að haldast þar, þarf einnig að efla jöfnum höndum höfuðkaupstaði í sem flestum byggðarlögum, jafnframt því, sem eðlilegt er, að smá- þorp rísi upp í hinum stærri sveitum, sem haldi nokkru af fólkinu heim fyrir. En þótt kaupstaðir séu efldir með atvinnutækjum, er það eitt út af fyrir sig ekki nóg. Meðan umboðs- stjórnin er jafn rík og hún er í Reykjavík, er það full- kunnugt, að rekstur flestra hluta gengur verr úti um landið, og að fjármagn það, sem þegar hefur safnazt í höfuðstaðinn hleður á sig nýju fjármagni, sem tor- veldar reksturinn í öðrum stöðum. Segja má, að slíkt megi laga með opinberum ráðstöfunum. En það þarf að gera fleira. Það þarf beinlínis að dreifa því, sem unnt er af opinberum stofnunum, skólum og öðru út um land, og til fullrar athugunar er, hvort ekki sé réttmætt, að nokkur hluti umboðsstjórnarinnar sjálfr- ar verði staðsett úti um landið, þannig að ekki þyrfti að hlaupa með hvert smáerindi til Reykjavíkur. Á hverju ári er varið stórfé til ýmissa umbóta úti um land, en allt um það heldur straumur fólksins áfram jafnóslitinn suður að Faxaflóa. Ef svo heldur áfram, er annað naumast sýnna en þau mannvirki, sem þannig eru unnin, muni innan tiltölulega skamms tíma standa hálfnotuð eða ónotuð í meira eða minna eyddum byggðum og bæjum. 112 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.