Heima er bezt - 01.04.1958, Page 12

Heima er bezt - 01.04.1958, Page 12
BALDUR EIRÍKSSON: ÚR ÆVISÖGU VINAR MÍNS T. í húðarrigningu að hausti, og byl, þegar hús hvert á bænum lak, þá varð einn íbúi afdals til og eygði hið fyrsta ljós, þá höfðu allir flúið í fjós, — á því fjósi var nýlegt þak. TTT. Fátt nam hann bóklegra fræða, það fannst ekki í kotinu skræða, nema fjörgömul fjármarkaskrá. Um lærdóm var lítt honum gefið, þó lærði hann að taka í nefið, — hann var tæplega tólf ára þá. Og fólkið stóð þarna stillt, um sinn, í stybbu og kúadaun, unz gangnamenn þrír þar æddu inn, þá austan af heiðum bar. Þeir voru alls engir vitringar, en vænstu karlar í raun. Þeir vissu um bóndans vesöl kjör, og vildu þau bæta skjótt. Hákarl og skammrif, skreið og mör, skata og brennivín niður í þeirra nestisskrín nú var í skyndi sótt. Aðalsfólkið, önnum hrjáð, át og drakk og var glatt, rætt var um krafta og karlmannsdáð, konur, ferðir og ljóð, unz öræfanóttin, úrg og hljóð, enda á gleðskap batt. TT. Svellavetur síðan líða og sumur köld og sprettusnauð. Sveinninn fékk þá frekt að stríða fyrir daglegt svartabrauð. Ut um mýrar, upp til hlíða elta lömb og styggan sauð. Þó að yndist einatt snuðra á hans bernskudaga þráð, þryti forði þols og burða, þyldi hann álas, spott og háð, seigla hans var sérleg furða, — sá hann alltaf nokkur ráð. Undur sæll í einfeldninni öllum mót hann kímdi og hló. Kúla á höfði, skráma á skinni skerti aldrei kauðans ró. Öllum var hann aumri og minni, öllum meiri á lofti þó. Með eldlegum áhuga á konum, — þó alls engin liti við honum — hann munnlega og bréflega bað, og elti þær allar á þönum, áður en skegg spratt á grönum. — Ljótt væri að lá‘ honum það. Hann jamlaði og jagaðist svona, loks játti ein miðaldra kona, — það var einfalt og úttaugað hró. — Til lögaldurs langur var frestur, en loks þegar vígði þau prestur fékk unnustan aðsvif — og dó. Þótt harm sinn í hljóði hann bæri og hógvær að jarðarför væri, og felldi hin fegurstu tár, þá hét hann að hika ekki lengi, og hélt að sú næsta, er hann fengi, mundi endast sér örlítið skár. IV. Á réttargleðinni. Safnið rann inn um réttarhlið, svo rölti hið örþreytta gangnalið og hestar á eftir með hnakk undir kvið, og hundar með sára fætur. Óðara skyggndust augu glögg eftir hófi, bragði og lögg, hafa þurfti nú handtök snögg, — það hallaði mjög til nætur. Vinur okkar þar var í hóp, veifaði svipu, rak upp óp, í skinnsokkum kringum skjátur hljóp og skrjáfandi vaxdúkskápu. Ofan frá kolli, út á góm á hann var fallið ryk og gróm, þvl gangnamönnunum gefst ei tóm að gutla með vatn og sápu. Er fjárhólfin voru full í topp, og fjallskilastjórinn sagði: — Stopp —! 122 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.