Heima er bezt - 01.04.1960, Blaðsíða 34

Heima er bezt - 01.04.1960, Blaðsíða 34
200 EINKABRÉFSEFNI OGUMSLÖG með álefruðu nafni og heimilisfangi fyrir 180.00 krónur Hafið þið ekki oft hugsað sem svo, þegar þið hafið verið að skrifa áríðandi bréf, að ólíkt skemmtilegra og þægilegra hefði verið að eiga einkabréfsefni með áprentuðu nafni ykkar og heimilisfangi? Þetta er líka alveg rétt. Það vekur ósjálfrátt traust og virð- ingu hjá viðtakandanum þegar hann opnar bréfið og sér að „bréfhausinn“, sem svo er kallaður, er prentaður með skýru og fallegu letri á góðan skrif- pappír. En nú er ykkur líka innan handar að eignast einka- bréfsefni, því allt og sumt sem þið þurfið að gera til þess, er að senda nafn ykkar og heimilisfang til „Heima er bezt“, pósthólf 45, Akureyri, ásamt kr. 180.00 (fyrir 100 bréfsefni kr. 140.00) og munum við þá senda bréfsefnin og umslögin áprentuð til ykkar alveg um hæl. Stærð bréfsefnanna er 14,7x21,7 cm. Við getum því miður ekki afgreitt pantanir gegn póstkröfu. Munið að skrifa nafn og heimilisfang mjög skýrt, til þess að ekki sé hætta á mislestri. Þetta tilboð gildir aðeins fyrir áskrifendur „Heima er bezt“ og er í gildi til 17. júní 1960. Athugið einnig að áletruð einkabréfsefni sem þessi eru tilvalin og óvenjuleg tækifærisgjöf. 142 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.