Heima er bezt - 01.09.1977, Síða 5

Heima er bezt - 01.09.1977, Síða 5
Hjónin á Efri-Mýrum, Bjami Ó. Frímannsson og Ragnhildur Þórarinsdóttir. sem stofnandi og formaður í stjórn U.M.F. Vorboð- ans í Langadal. Þegar hann flutti búferlum inn á fé- lagssvæði U.M.F. Bjarma 1923, varð hann formaður þess um langt skeið. Hann var formaður Héraðssam- bands ungmennafélaganna í A.-Hún. alllengi og gerð- ur að heiðursfélaga þess á fimmtugsafmæli sambands- ins. Þessi staða hans innan ungmennafélaganna varð undirstaða þess trausts, er skipaði hann í þær furðulega mörgu trúnaðarstöður, sem hann gegndi fyrir sveit og hérað langa ævi. Hann sat í hreppsnefnd í 47 ár, þar af oddviti 40 ár, í skattanefnd í 44 ár, stofnandi Garðrækt- arfélagsins Selvíkur og formaður þess nær þrjá tugi ára, formaður sóknarnefndar mörg ár og formaður Enghlíðingabrautarfélagsins, meðan það var við líði. Hann var og formaður félags, sem hét Dráttarvélar Enghlíðinga og Vindhælinga, er vann að landbroti og jarðyrkju áður en Búnaðarsamband A.-Hún. efndi til samtaka um rekstur beltavéla með tækjum við þeirra hæfi. Sá þáttur héraðsmála, sem Bjarna mun hugstæðastur, er tengdur samvinnufélögunum í héraðinu. Hefur hann komið víða við sögu þeirra: deildarstjóri, setið í stjórn Kaupfélags Húnvetninga í 10 ár, endurskoðandi sam- vinnufélaganna nær 20 ár, fulltrúi á Sambandsfundum, formaður Hrossasölusambands Húnvetninga og Skag- firðinga í 18 ár og ekki mun hér fulltalið. Hann er samvinnumaður að lífsskoðun og fórnaði þeim félagsskap ótrúlega miklum hluta af önn sinni og atorku, fyrst og fremst sem hugsjón ungmennafélag- ans: Samvinna í hug og háttum er hugsjón Bjarna 0. Frímannssonar. Honum eru olnbogaskot samkeppninn- ar lítt að skapi. Hann var kosinn heiðursfélagi Kaup- félags Húnvetninga 1974. Enn skal þetta talið: Bjarni var stjórnskipaður for- maður fasteignamatsnefndar Austur-Húnavatnssýslu 1939—42, ritari og gjaldkeri fjárskiptanefndar milli Blöndu og Héraðsvatna 1947, uns þeim málum lauk, og að verulegu leyti framkvæmdastjóri þess mikilsverða og jafnframt óvinsæla fyrirtækis. Hann sat á Búnaðar- þingi um skeið, var endurskoðandi reikninga Búnaðar- sambands A.-Hún. á annan tug ára, skrásetti reikninga trésmiðjunnar Stíganda hf. á Blönduósi árum saman. Það kann að vekja nokkra furðu, hversu oft þessi ólærði maður var þar til kvaddur sem tölur lágu fyrir. Til þessa lágu augljós og óvefengjanleg rök: Hann var óvenjuskyggn á þær og snemma á ævi ágæta vel lærður í þeim fræðum, sem bókfærsla hlítti þá. Hann er og Heima er bezt 281

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.