Heima er bezt - 01.09.1977, Side 16

Heima er bezt - 01.09.1977, Side 16
„Beinakerling“ úr snðvestri (línan í V og S). mér og villubróður mínum Jóni A. Stefánssyni miðju vestan Fjórðungsöldu. Virtist augljóst að ef um lög- helga landsmiðju væri að ræða, frá landnámsöld, yrði að velja aðgengilegan stað, þó sem næst því sem talin væri landsmiðja. Fór eg nú í aðra átt sem ofan getur, pantaði loft- myndir frá Landmælingastofnun af svæðinu vestan Fjórðungsöldu, um 12 km N—S. Myndirnar eru teknar 1960—61, og sjást því ekki þar þeir vegir, sem síðar voru ruddir, en eldri leiðin varðaða, sést ekki heldur vegna lofthæðar, 14 og 20 þús, fet. Hinsvegar sést glöggt hvernig landið liggur, hæðir, öldur, dældir, drög, kvos- ir og farvegir, allt upphlevpt í þrívíddarsjánni. Smá- atriði eins og vörðuhringur, fáa tugi metra í þvermál, og einstaka vörður sjást ekki. Nú kom þó það óvænta strax í ljós, sem kom mér á ,,rétta“ leið: Fjórðungsvatn hefur áður verið miklu stærra en nú, og eins og fótur eða lágstígvél í laginu, og „tærnar“ gengið allt út í Bergvatnskvísl, þar sem stóra táin stóð útúr. Nú er það bara beygt sem bjúga eftir hásin „fótarins“ aftanverðs, vestan með Fjórð- ungsöldu. Hvað var langt síðan vatnið var svona stórt? Það gat verið allt frá ísaldarlokum, 9—10 þús. ár aftur í ald- ir. En gat það ekki einnig verið yngra? Frá seinni hluta Litlu ísaldar, 1400—1700? Var ekki þarna vatnsbakki eða kambur, rétt yfir „háristina“ á fætinum, um 2 km vestan vatnsins á myndinni? Var ekki einnig grár og sléttur „sandur“ þar vestanhallt? Enda þótt vatnið kunni að hafa „hlaupið saman“ á síðari öldum, gæti ekki vatnsagi og aurbleyta hafa levnst í botninum sem náði vestur á „rist“, og etv. í þessum gráa sandi þar vestur af? Hefði ekki verið nauðsynlegt að krækja þar fvrir? Og yrði þá sandurinn vestan ekki erfiður og þungur yfirferðar, sem í því tilfelli væri þó nauðsynlegt að fara yfir? Hann kemur afar skvrt fram á myndinni. Ef hann var „Sprengir11, þá var Beinakerlingar að leita rétt N—NA af honum. Þar setti eg fyrst mark sem lík- lega legu Beinakerlingar, og er ein örin af þrem aðeins um 200 m frá þeim mæðgum, en sú fjarsta rúma 2 km. Eg er flugmaður og hefi skoðað land úr lofti hér vestra, í leit að gömlum ströndum Agazziz-vatns í Aift- árdalnum. En þeir kambar voru þjóðvegir Indíána í ár- þúsundir, og hafa nú sumir runnið beint og óbeint inn í þjóðvegakerfi nútímans. Er á þeim að finna mikla fjársjóði af unnum og hálfunnum steintólum, sem frú mín sækist mjög eftir. Einnig hefi eg leitað úr lofti að veiðidýrum. í beinu framha’di af þessu dútli hafði eg kynnst notkun loftmynda af skógum og gróðri, hér vestra, og skoðun þeirra í þrívíddarsjá, stereóskópi. En slíkt er kennt í gagnfræðaskólum hér, og hefi eg og aðrir þar greiðan aðgang að. Þetta er þriðja viðmiðunin, sem kom mér á rétta leið, en sú fyrsta kom mér af stað. Slík kort geta og allir heima keypt eða skoðað frítt hjá Landmælingsstofnun. Þegar hér er komið málum bendir villutrúarbróðir minn ofangreindur mér á rit, þar sem ýtarlega er frá fjallvegum greint, og lýsingar fuliar og orðréttar birt- ar. Það rit er Hrakningar og heiðavegir, sem áður get- ur. Fékk eg nú þau 4 bindi frá íslenska safninu í Mani- tobaháskóla, og var þar um auðugan garð að gresja. Læt eg nú koma hér fyrst lýsingu Eiríks Hafliðasonar í heild, um leiðina „milli grasa“, 1. hefti bls. 29, frá Biskupsþúfu til Kiðagils: „Frá Biskupsþúfu er stefnan tekin beint af aug- um og riðið um sandöldur, og er það dálítið á fótinn. Nokkrar vörður eru þarna á strjálingi. Fyrrum var þar mýrlendi með lækjarsprænum. Hekla og önnur fjöll er horfin sýnum. Þá er komið að Háumýrum, og er vegalengdin þangað frá Biskupsþúfu um 2/2 míla. Þaðan eru röskar 2 /2 míla að Sveinum, sem eru klappir með nokkrum vörðum. Þar sést farvegur eftir vor- leysingarnar. Á hægri hönd blasir við Torfa- jökull (Tungnafellsjökull, leiðr.). Frá Sveinum er haldið að Beinakerlingu, og er sá vegarspotti einnig um 2 /2 míla. Beinakerling er stór varða og stendur mitt á milli 24 dætra sinna. Þar eru nokkr- ar klappir, en þó mun mestur hluti þeirra hulinn sandi. Skömmu áður en komið er að Beinakerl- ingu, er riðið um sléttan sand, sem Sprengir heit- ir. Frá Beinakerlingu er stefnt í landnorður á Há- öldu (efsta fjallsás á Sprengisandi), og er sú vegalengd 2 /2 míla. Skammt fram undan á hægri hönd blasir við Herðubreiðarjökull. Einnig sést til Ódáðahrauns, en um það á að liggja vegur að Jökulsá í Axarfirði. Herma munnmæli að prestur nokkur í Möðrudal á Fjalli hafi fvlgt Brynjólfi biskupi Sveinssyni þessa leið, en sá vegur er nú ófær talinn, því að vaðið á Jökulsá er horfið, og áin hefur brotið sér leið gegnum hraunið. Hérna megin Ódáðahrauns sést sandborið hraun, sem Skjálfandafljót rennur í gegnum. Þá er Arnar- fellsjökull horfinn sýnum. Frá Háöldu er haldið að Kiðagili, gljúfragili alldjúpu. Sú vegalengd er 21/ míla. Neðan við aðalgljúfrið er farið niður í gilið, tjaldað þar og áð...“ 292 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.