Heima er bezt - 01.08.1978, Side 5

Heima er bezt - 01.08.1978, Side 5
Löngusker, Hcelavíkurófœra, Álfsfell og Kjaransvík verið framið á blessuðum drengnum? En þegar leyndar- dóminum var ljóstrað upp, tautaði afi minn: Jæja, hún er þá líklega komin í blöð, en refsing var engin, þar sem kraftaverk hafði orðið. En fall Gunnars á Hlíðarenda kom mér óvart miðað við allt sem afi hafði sagt mér af garp- skap hans, og ég hágrét yfir kappanum dauðum. Og nú biður Þórleifur mig að koma og sjá. Hann á allar útgáfur af Njáhi á íslensku og þær ekki slóðalegar og sumar hverjar með þeim nöfnum árituðum sem nokkru þætti skipta. Með stolti og tröllatryggð handleikur hann þessa kjörgripi. — Ég hef líklega verið 10 ára, þegar ég fékk skólaljóð Þórhalls Bjarnarsonar með köflum um höfundana, og það var hann sem lauk upp fyrir mér dyrum ljóðsins. Sér- staklega voru það Grettisljóð Matthíasar, þú manst: Svo takast þeir á, hreystin og fordæðan forn og grá, ofurhuginn og heiftin flá, æskan með hamstola hetjumóð við heiðninnar dauðablóð, landstrúin nýfædda, blóðug og blind, og bölheima forynjumynd, harkan og heimskan, þrjóskan og þjóðin, krafturinn og kynngin, Kristur og Óðinn. Þetta var allt svo höggþungt og kynngimagnað. Ég varð bókstaflega uppnuminn. Það lá við ég dræpi mig á lestri. Ég las allt, létt og þungt, ég sökkti mér meira að segja niður í vísnaskýringar í íslendingasögunum. Það er kannski þess vegna sem ég hef átt bágt með að skilja þörfina á sérstöku léttmetislesefni handa börnum og unglingum. Ég held nefnilega að ég hafi ekki verið neitt öðruvísi en önnur böm. Margt er skrýtið. Einhver Ijúfasta nýársnótt, sem ég hef lifað, fór í að lesa ævisögu Jóns Þorkelssonar skólameist- ara í Skálholti. Þá hef ég víst verið 14 ára. Og hún er dálítið strembin, en ég hafði jafngaman af öllu, skólaröð- um hvað þá öðru. Mér fannst ég vera kominn í Skálholt og lifði þar og hrærðist meðal nemenda Thorchlliusar. Svo las ég kynstur af reyfurum og rómönum, sumt bara gott, eins og Valdimar munk og Kapítólu en þegar ég las velluviðkvæmni eins og hún verður mest í Cymbelínu fögru eftir Charles Garvisce, þá var mér nóg boðið, og þá læknaðist ég. — Ég var sex vikur í farskóla í sveitinni, það var 1921 - 22. Kennarinn minn var ágætur, hann hét Guðmundur Snorri Finnbogason og hafði verið í Kennaraskólanum einn vetur. Hann kenndi okkur sex vikur þarna norður í víkunum. Líka kenndi mér Sigurður Sigurðsson, maður móðursystur minnar. — Var ekki skáldablóð í ættinni? — Sumir frændur mínir fengust við að yrkja, eins og Sigmundur Guðnason frá Hælavík. Það kom út bók eftir hann sem hét Brimhljóð. Annars var skáldskapur þama meðal flestra í hávegum hafður, og sérstaklega var Matt- hías dýrkaður, nú og Steingrímur. Einar Benediktsson að vissu marki, þótti þó þungur og tyrfinn.Og Guðmundur á Sandi. Lífsviðhorf hans átti vel við Homstrendinga, ætt- jarðarást, þjóðerniskennd, íhaldssemi á fornar dyggðir, karlmennska og þrautseigja. Ekkjan við ána þótti stór- kostlegt kvæði. í óbundnu máli höfðu menn mest dálæti á Jóni gamla Thoroddsen og Jóni Trausta, og svo Einari Kvaran. Menn voru að vísu ekki meira en svo sáttir við spíritismann, þó þeir væru aldir upp við draugatrú og draugasögur kynslóð eftir kynslóð. En kærleiksboðskapur hans og fyrirgefn- ingarandi átti greiða leið að þessu harðgerða fólki. Svo var Gunnar Gunnarsson tekinn að hljóta nokkra hylli. Heimaerbezt 253

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.