Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.1978, Qupperneq 30

Heima er bezt - 01.08.1978, Qupperneq 30
17. KAFLI Sigurbjöm vaknaði við það að Kristján, sem var kominn á fætur, ýtti aðeins við honum. — Ég ætlaði bara að vekja þig, áður en ég færi niður. Ég ætla að ganga út og gá að ánum. Klukkan er ekki orðin sjö ennþá, en fyrst ég vakn- aði svona snemma, er eins gott að fara út. Síðan fór Kristján niður. Sigurbjöm læddist framúr og fór í fötin. Hann sá að allir sváfu vært í baðstofunni. Er hann gekk framhjá rúmi Rönku, staldraði hann aðeins við. Hörgula hárið hennar var laust úr fléttunum og lá eins og silkislæða um æsku- bjart andlitið. Þó hún væri óvenju björt yfirlitum, var hún hraustleg og skipti vel litum. En það var eitthvað meira en það sem sást, sem hreif hann. Ranka hefur víst fundið að á hana var horft, því hún lauk upp augunum, sem voru skær og ljómandi eftir svefninn. — Góðan daginn, hvíslaði hann hálffeiminn. Hún ansaði lágt. Grábláu augun héldu honum föstum. Hann færði sig alveg að rúmstokknum og beygði sig nið- ur. Á þeim báðum var skrýtinn svipur, feimni, blandin gleði og alvöru ásamt mikilli eftirvæntingu. Hún var áræðnari en hann eins og við mátti búast. Hún var viss um, að þetta væri hið eina rétta og alveg eðlilegt. Hún lagði handleggina um háls hans og dró hann niður til sín. Þá var honum öllum lokið og hann kyssti hana með inni- legri blíðu ástfangins manns, án þess að það hvarflaði að honum, að fleiri voru í baðstofunni. Umheimurinn hvarf þeim sem snöggvast, þau voru í paradís sælunnar eitt augnablik. Dísa hreyfði sig ógn varlega í rúminu, en nóg til þess að draumurinn varð ekki lengri í þetta sinn. Þau horfðust í augu og brostu hvort til annars. Svo hélt hann áfram niður í eldhús. Hugur hans var í hálfgerðu uppnámi, því þetta var gersamlega ný reynsla. Hann skildi ekki sjálfan sig. Aldrei hafði hann grunað að svona nokkuð gæti skeð jafn fljótt og óvænt. Sigurbjöm efaðist ekki um, að þessi morgunn yrði upphafið að alveg nýju viðhorfi þeirra beggja til lífsins og framtíðarinnar. Þegar fólkið fór að tínast inn í eldhúsið til 278 Heima er bezt að fá sér morgunkaffið, leit hann snöggt á Rönku. Hún sýndist róleg eins og vant var, en roðnaði svolítið og brosti til hans. Það var kominn nýr, heitur ljómi í augu hennar. Þóra var fljót að hella á könnuna og fór yfir í fjósið með köttinn á hælunum eins og vant var. — Nú flýtum við okkur, sagði Hannes. — Við þurfum hvorki að brynna né gefa, því nú fá kýrnar að fara út. Að svo mæltu fór hann í loftköstum út allan gang og út í fjós. Gripimir voru órólegir, skynjuðu að eitthvað var öðru- vísi en vant var. — Láttu ekki svona, Búkolla mín, sagði Þrúða. — Þú ætlar alveg að setja mig um og hella niður mjólkinni. Svona, svona, þetta er að verða búið. Hannes hjálpaði við að mjólka og bar mjólkina inn í búr. Síðan rann upp sú stóra stund, að þessum ferfættu föngum yrði veitt frelsi úr prísund vetrarins. Hannes og Sigurbjöm leystu kýmar. Fyrst fóru kálf- amir og kvígumar og síðan eldri kýmar. En Goði ólmað- ist við stallinn og öskraði svo undir tók í fjósinu. Heimilisfólkið stóð allt úti og meira að segja Símon var kominn, og var nú hinn hressasti. Kýrnar ruddust út með miklum látum og tóku síðan á rás með halana á lofti. Þrúða hló hjartanlega að öllu saman. — Sjá Búbót og Hjálmu gömlu, sagði Hannes. — Þær halda víst að þær séu orðnar ungar í annað sinn. — Já, sagði Þrúða. — Sjáið þið; Það er kominn hnútur á halann á Stjömu. Huppa gamla, elsta kýrin, var orðin gigtveik og af sér gengin, en hún hljóp eins og hún ætti lífið að leysa, datt á hnén annað slagið og varð lafmóð. Hannes hló svo mikið og tvísteig í ákafanum, að hann lenti með annan fótinn í svokölluðum fjósalæk og var nærri dottinn. Þá hló Þrúða ennþá meira og stundi upp: — Ef þú hefðir dottið í lækinn, hefði ég líklega sprungið af öllum þessum hlátri. Allir höfðu gaman af þessum árvissa viðburði. Vaskur gamli var þarna og þurfti að blanda sér í leikinn, þaut út um allt tún og gegndi engu, en gelti eins og óður í kring um baulandi gripina. Kvígumar tvær, verðandi mæður innan skamms, voru þungfærar og virtust hafa vit á að fara ekki mjög hratt yfir, en kálfarnir æddu á hvað sem var. Silfri læddist upp í

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.