Heima er bezt - 01.08.1983, Side 14

Heima er bezt - 01.08.1983, Side 14
Rostungurinn og smiðurinn LEWIS CARROLL Á sjóinn bláa sólin skein af svakalegri gnótt, hún gerði hvað hún gat til þess að gera hafið rótt, — en allt þetta var undarlegt því ennþá var mið nótt. Af ólund máninn einnig skein því ávallt fannst honum að röðull hefði engan rétt að runnum deginum — „það ruddalegt af röðli er að rugla hlutverkum“. Svo vott var haf sem verið gat af þurrki sandur þurr og algjörlega var óskýjað, á brottu hnoðri hvur og fugl var ei með gerjagang ei sást neinn einstakur. Og rostungur og smiður einn þar römbuðu hönd í hönd og grétu mjög er gengu þeir um svona sendna strönd: „Ef sandinum væri sópað burt eg segði: fjögur grönd!“ „Ef meyjar sjö með kústa sjö sópuðu hana í ár, heldurðu“ — spurði hvalhross þá „að hún mundi verða klár?“ En smiður kvað: „Eg efins er“ og af honum hrukku tár. „Ó ostrur kærar komið nú“, kvað rostungur, „í labb um þessa fögru fjörurönd að fara í labbirabb! Við fjórar getum leitt á leið. Við leikum ekkert gabb“. Forystu-ostran á hann leit en ekkert veitti hún svar, hún stundi þungt og hengdi haus og hristi skeljarnar, — en það sem hún meinti það var það að sig langaði ekki par. En fjórar ostrur stigu á storð í stuði skartklæddar með lafafrakka og háan hatt, en heljar vandi var að labba sig í labbitúr í lakkskóm fótlausar. Og fjórar aðrar fylgdu þeim og fjórar þeim á land, í stórhópum þær streymdu fram og stigu upp á sand og skullu flatt og skolaði upp. Það skelfilegt var stand. 246 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.