Heima er bezt - 01.08.1983, Síða 16

Heima er bezt - 01.08.1983, Síða 16
Óskar Þórðarson frá Haga I Tjaldanesi Eftirfarandi frásögn er úr safni endurminninga minna frá árinu 1942, en þá var ég í vinnu hjá breska fyrirtækinu Dorman Long, sem falið var það verkefni, af breska hernámsliðinu, að byggja stórskipabryggju við Hvítanes í Hvalfirði. Bresk og bandarísk herskip hittast í Hvalfirði áður en lagt er af stað með skipalest til Arkhangelsk. Birt með leyfi Almenna bókafélagsins úrbókinni Orrustan á Atlantshafi. Eins og gefur að skilja var hugur margra okkar bundinn við það alla vikuna að gera sér einhvern dagamun á sunnudeginum. Draumurinn var auðvitað sá að komast á ball, en þar var ekki um auðugan garð að gresja. Flestir voru orðnir dauðleiðir á Reynivallaböllun- um, sögðu úrval kvenna þar í lág- marki og flestar löngu fráteknar. Hvað sem satt kann að hafa reynst í því, voru þeir sem orðið höfðu svo heppnir að komast í vinfengi við ein- hverja Kjósarmeyna, eða kaupakonu í sveitinni, á öðru máli. En hvert skyldi róið á önnur mið? Það var stóra spurningin. Á Ferstiklu var gamalt ungmennafélagshús og þar voru haldin böll fyrir stríð. Þar var einnig veitingaskáli og þar hefði e.t.v. verið hægt að halda samkomur. En engan heyrði ég minnast á að fara þangað. Kannske hefur það verið vegna þess að Ferstikla var orðin um- setin af hermönnum, vegna veitinga- sölunnar, og var auk þess á bann- svæðinu í Hvalfirði. Ölver, undir Hafnarfjalli sunnan- verðu, var vinsæll skemmtistaður sem var mikið sóttur af Akranesingum og ég vissi til þess að piltar af Akranesi sem unnu í Hvítanesi sumurin 1941 og 42, fóru þangað á ball og notuðu tækifærið til að skreppa heim til sín um leið. En svo var allt í einu byrjað að tala um að fara á ball alla leið suður í Mosfellssveit og fljótlega var það á vörum allra þessara ballsjúku manna og þótti sjálfsagt, þótt um langan veg væri að fara og staðurinn flestum ókunnur. Þá var í neðanverðum Mosfellsdal, 248 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.