Heima er bezt - 01.08.1983, Page 18

Heima er bezt - 01.08.1983, Page 18
ÆTTFRÆÐI Tölvur og ættfræði ARNGRÍMUR SIGURÐSSON TÓK SAMAN Allir geta hagnýtt sér einfaldari hliðar tölvunotkunar. Nú eru á markaðnum fleiri en 18gerðir ættfræðivinnslugagna fyrir einkatölvur, sem fáanlegar eru á viðráðanlegu verði fyrir einstaklinga. Möguleikar ættfræðinga sem notfæra sér tölvur eru miklir, þær eru afar hagkvæmt og hraðvirkt tæki. Með þeim má geyma tugþúsundir atriða sem annars lægju e.t.v. í óskipulegum bunkum, láta þær raða þeim á ýmsan máta, gera fyrir sig samanburð eða prenta út. Tölvuskráning œttfrœðiheimilda Allir sem ættfræði stunda standa fljótlega frammi fyrir flóði upplýs- inga. Þeir eru að drukkna í miðum og blöðum sem hrannast upp þegar fólk tekur að rekja ættir sínar og annarra. Þetta þekkja allir ættfræðingar. Flest- ir hafa skipulag á öllum þessum fróð- leik í höfðinu. Þegar ættfræðingurinn fellur frá veit enginn um samhengið. Þetta óskiljanlega ástand á heimildum veldur því stundum að allt hafnar í ruslatunnunni. Ættfræðingar hafa oft safnað minnisatriðum í þúsundatali. Þetta gæti allt geymst handa næstu kynslóð ef tölva væri notuð eða þá að þetta væri gefið úr fjölritað eða prentað. Tölvur leysa að sjálfsögðu ekki allan vanda, en að þeím er geysileg hjálp. Minni þeirra er óskap- legt. Skipulagsmöguleikarnir eru nær ótæmandi. Tölva er kjörið tæki fyrir ættfræðinga. Einkatölvur eru nú fáanlegar á viðráðanlegu verði. Tímarit um tölvuskráningu ættfræði- heimilda eru gefin út. Sá tölvubúnaður sem hentaði ætt- fræðingi kostar um 4000 dali (um 80.000 krónur en breytist með gengi). í þessu verði er innifalið tölva, minnismiðstöð, tvö diskadrif og prentari. Fyrir nokkrum árum var lít- ið fáanlegt af gögnum til ættfræðiúr- vinnslu, en nú eru á markaðnum fleiri en 18 gerðir ættfræðivinnslugagna („genealogical software“). Arngrímur Sigurðsson, ritari Ættfrœðifélagsins, hefur léð Heima er bezt nýlegt yfirlit sitt um þessi efni. Og ástæða er til þess að ítreka við alla þá sem efast um að þeir ,,ráði við“ tölvutœknina, að flestum kemur á óvart hve aðgengileg hún í rauninni er. 250 Heima er bezl

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.