Heima er bezt - 01.08.1983, Side 27
Magnús Árnason
MDNHNHSBLÖÐ
UM HRAKNING
OG ILLA MEÐFERÐ
3 VESTUR-ÍSLENSKIR SKÓGARHÖGGSMENN 1911-1912
Á minnisblöðum sínum segir Magnús frá fyrstu kynnum sínum af vinnuaðstæðum inn-
flytjenda í Kanada í upphafi aldarinnar. Hann lenti í slíkum harðræðum, að við fyrstu
sýn gætu lesendur efast um að sagt væri frá raunverulegum atburðum. En þeir sem þekktu
Magnús draga orð hans ekki í efa. Honum er lýát sem orðvörum og kurteisum manni,
sem ekki fór með ýkjur. Þar við bætist, að hann ritaði minningar þessar aðeins fyrir sig
og fjölskyldu sína, en ekki með birtingu þeirra í huga. Einn vinnufélaga Magnúsar síðar
á ævinni segist af kynnum sínum við hann og áþekkum vinnuaðstæðum vera sannfærður
um að hér sé hvergi hallað réttu máli.
í ljósi alls þessa eru minnisblöð Magnúsar stórmerk heimild, sem varpar ljósi á kaup
og kjör verkalýðsins áður en vinnulöggjöf og verkalýðsfélög nútímans komu til sögunnar.
Stundum er verið að hreyta ónotum í verkalýðshreyfinguna og býsnast yfir heimtufrekju
hennar. En hvernig væri lífið hérlendis án hennar? Þessi heimild gæti hjálpað einhverjum
til þess að skoða það mál frá fleiri hliðum.
Sigurbjörg Stefánsson.
(Úr formála með frásögn þessari í ,,The Icelandic Canadian")-
Heimaerbezt 259