Heima er bezt - 01.07.1985, Qupperneq 12
Aff Einarsnesi 4 ídesember 1984, Björg og Harald með barnabörnum sínum. Talið frá vinstri Ólafía Agústsdóttir (1982), Björg Einars-
dóttir, Kristín Guðmundsdóttir (1983), Haraldur Guðmundsson (1979), Harald Guðmundsson, Ólafía Ágústsdóttir (1982) og Arn-
grímur Einarsson. Ljósmyndari: Jóhannes Long.
Einar Hrafnkell
Haraldsson
vorið 1980.
Guffmundur Ingi
Haraldsson
1985.
ATHUGASEMDIR:
1) Einar Þorkelsson, faðir Bjargar, var annars vegar skaftfellskur að ætt og
hins vegar breiðfirskur. Hann fæddist á Borg á Mýrum en fluttist 8 ára gamall,
árið 1875, með foreldrum sínum að Staðarstað á Snæfellsnesi. Var hann lang-
yngstur af 17 börnum þeirra, en þau 9 sem upp komust náðu flest háum aldri.
Eftir fermingu var Einar tvo vetur í lærðaskólanum í Reykjavík, en nam síðan
hjá föður sínum, sem var stúdent úr Bessastaðaskóla og hafði samhliða prest-
skap skólapilta í læri.
í fyrsta hjónabandi sínu átti Einar 3 dætur, Svövu, Þórheiði og Laufeyju,
sem allar giftust og bjuggu lengst á Snæfellsnesi. Samhliða varð honum
tveggja dætra auðið, Súsönnu er lengst bjó í Stykkishólmi og Áslaugar sem
á unga aldri fluttist til Vesturheims. Elsta barnabarn Einars Þorkelssonar,
sonur Súsönnu, er Lúðvík Kristjánsson, sagnfræðingur og rithöfundur, fædd-
ur1911.
í öðru hjónabandi eignaðist Einar 4 börn, Hrefnu, Ragnheiði, Þorkötlu og
Hrafnkel. Þær systur giftust allar og stóðu heimili þeirra lengst í Reykjavík.
Ragnheiður Þorkatla er eina hálfsystkini Bjargar Einarsdóttur sem enn er á
lífi.
Eftir að Einar lét af störfum sem skrifstofustjóri Alþingis komu frá hans
hendi 3 bækur, einkum dýrasögur: Ferfætlingar 1926, Hagalagðar 1927 og
Minningar 1928. Einnig reit hann í Dýraverndarann og ritstýrði honum um
skeið.
Um hinn mikla ættboga í föðurætt Bjargar má lesa í bókinni ,,Ættir Síðupr-
esta“ eftirsr. Björn Magnússon.
2) Séra Þorkell Eyjólfsson, föðurafi Bjargar, var prestur á Ásum í Skaftár-
tungu, Borg á Mýrum og á Staðarstað á Snæfellsnesi. Guðrún móðir hans var
dóttir séra Jóns Þorlákssonar á Bægisá.
3) Föðuramma Bjargar, Ragnheiður Páisdóttir, var dóttir sr. Páls Páls-
sonar, prests í Hörgsdal á Síðu og Matthildar Teitsdóttur af reykvískum
ættum. Ragnheiöur Pálsdóttir dvaldist langtímum saman hjá Ragnheiði
Guðmundsdóttur föðurömmu sinni að Vatnsenda við Elliðavatn. sem fædd
varum 1766ogdáin 1840.
4) Jónas Jónsson, afabróðir Bjargar í móðurætt, var umsjónarmaður Al-
þingishússins og þekktur undir höfundarheitinu ,,Plausor“. Kona hans var
Kristín H. Hansen. Eftir að þau hjón misstu einkadóttur sína átti móðir
Bjargar, Ólafía Guðmundsdóttir, annað heimili sitt hjá þeim frá 12 ára aldri.
236 Heima er bezt