Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1985, Blaðsíða 25

Heima er bezt - 01.07.1985, Blaðsíða 25
Þegar vorar vaknar þrá... Mansöngur við fjármannsvísur um Sigurð Jónsson frá Brún, sem birtast í næsta blaði. Þegar vorar vaknar þrá vorsins börnum öllum hjá, ferðalangar fara á stjá fjöll og dali til að sjá. Úti í brekkum broshýr snót breiðir faðminn sumri mót, hefir mjúka hönd og fót, hún er að fara á stefnumót. Blærinn andar blítt á kinn, búinn langi veturinn, fénaðurinn framgenginn, fákarnir við túngarðinn. Líður sumar, lengist nótt. Liljur sölna og deyja fljótt. Haustið kemur hægt og rótt. Húmið er líka eftirsótt. Fuglar kveða fjörugt lag, færist líf í bóndans hag, lautir grænka og lækjardrag, lömbin fæðast nótt og dag. Gangnareiðar rammaslag ríma sumir um í brag og í rökkri réttardag rekkar taka fjörugt lag. Vors í blænum vonirnar verða stundum léttfleygar, ungu dala dísirnar dreymir þá um ástirnar. Fannahvíta fjárbreiðan flæðir líkt og snjóskriðan heim í dalinn haustbleikan, húsaðan vel og ræktaðan. Skýringarog leiðréttingar við vísur Höskuldar Einarssonar í 6. tbl. 1985 Á bls. 207 eru „Skammdegisandvökur“. Þar er ranglega prentað í fyrstu línu annarrar vísu: ,,þreyta má ég móa rölt". Þarna á að standa: ,,Þreyta má ég móa nöllt“. Sigríður Höskuldsdóttir, sem sendi okkur þessar vísur föður síns, segir í bréfi: „ Nöllt var daglegt mál heima og fann ég það líka í orða- bókinni, þó pabbi skrifiþað með einu elli. “ í orðabók Menningarsjóðs eru merkingar orðsins gefnar svona: Nöllt. 1. skjökt, tíð smánotkun hesta, eirðarlaust ráp. 2. flakkíkulda. í 5. vísunni, síðustu línu, stendur ,,gefst nú rétt ístraum- um“, á að vera,,gefstnúréttidraumum“. Heima er bezt biður alla hlutaðeigandi afsökun- ar á þessum villum, sem stafa af mislestri á hand- riti. í síðustu vísunni er prentað í þriðju línu: ,,fljótur, gríðar- fimur, snjall“, en á að vera „fljótur-gríðar, fimur snjall, “ - og táknar þá fyrsta samsetningin „gríðarfljótur, tröllslega fljótur". Á bls. 208 kemur orðið ,,kontrosi“tyr\r í þriðju línu 4. vís- unnar, ranglega letrað með upphafsstaf fremst, því þetta er ekki örnefni. Sigríður Höskuldsdóttirsegir í bréfi sínu: Ég man pabba tala um ,,réttarosa“ og ,,kontrosa“. Hvort hann hefur samiðþessi heiti sjálfur veit ég ekki. Kontrosi er ofsaveður, rigning og krapaél, e.t.v. þrumur, sbr. ,,kontra- bassi". Heimaerbezt 249
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.