Heima er bezt - 01.07.1985, Side 40
JÓN KR. GUÐMUNDSSON
Skáldstöðum í Reykhólasveit
Þáttur af
Þórði í Börmum
og œttmönnum hans
Hér segir fráýmsum
persónum í Reykhóla-
sveit í A.-Barðastrand-
arsýslu og er rakinn
þráðurinn frá 18. öld.
Þórður Ólafsson í
Börmum bjó þar 1885-
1937. Sagan af œtt-
mönnum hans lýsir m.a.
viðskiptum við óblíða
náttúru. En hugur
fólksins þaðan hvarflar
ekki síður til þeirrar
ánœgju, „þegar sólin
gyllir voga og sund og
vorið heldur innreið
sína við Breiðafjörð“.
Árið 1884 voru í húsmennsku á
Reykhólum hjónin Þórður Ólafsson
og Ingibjörg Einarsdóttir (f. 1846, d.
1926) Þau áttu þá tvö börn, Lárus og
Þórdísi. Síðar bættust við tvær dætur,
Sigurlína og Ólafía. Þórður var ætt-
Barmar endurgerðir:
Torfbœrinn gamli á Börmum var
endurgerður á árunum 1971-1974.
Voru þar að verki eigendurnir, hjónin
Ingibjörg Arnadóttir, hjúkrunar-
fræðingur, ritstjóri Tímarits hjúkr-
unarfrœðinga, og Jón Ólafsson hús-
gagnaarkitekt. Nutu þau ráðlegginga
og samvinnu fullorðinna manna úr
nágrenninu, enda segir Jón það
nauðsynlegt við alla efnisöflun ogfag-
vinnu. Jón og Ingibjörg settu sér það mark
að Ijúka endurgerðinni fyrir árslok
þjóðhátíðarárið 1974 og planta einu
tré fyrir hvert ár Islandsbyggðar.
Hvort tveggja tókst og vekur nú
óskipta athygli og aðdáun allra ferða-
manna sem leið eiga um Reykhóla-
sveitina.
aður sunnan úr Dölum, fæddur í
Hlíðartúni í Sökkólfsdal 21. júní 1856.
Foreldrar hans voru þau hjónin Ólaf-
ur Þórðarson og Þórlaug Þorgríms-
dóttir, sem þar bjuggu þá. Ættfeður
Þórðar bjuggu í syðstu hreppum
Dalasýslu. Og skal nú nokkuð sagt frá
þeim.
Þórður á Bugðustöðum
Fyrst er þá að nefna Þórð á Bugðu-
stöðum í Hörðudal, langafa Þórðar í
Börmum. í ættartölu sem Þórður í
Börmum tók saman, telur hann Þórð
langafa sinn vera Þórðarson Guð-
mundssonar á Bugðustöðum í
Hörðudal. En í Dalamönnum sr. Jóns
Guðnasonar er hann sagður sonur
Torfa Þorleifssonar á Ketilsstöðum.
Veit ég eigi hvað er réttara í því efni.
Þórður á Bugðustöðum var fæddur
um 1746, dáinn 21. apríl 1800. Hann
var giftur Vilborgu Þórðardóttir frá
Valshamri á Skógarströnd. Börn
þeirra voru: Þórður bóndi í Hlíðar-
túni, Ragnhildur dó ógift, Guðrún er
átti Magnús Magnússon á Þrándar-
stöðum, Jón á Erpsstöðum. Sonur
Þórðar með Ólöfu Ketilsdóttur frá
Hofsstöðum í Helgafellssveit var Jón í
Rifgirðingum. Þórður bjó lengi á
Seljum í Helgafellssveit, síðan á
Bugðustöðum.
Það var árið 1800 að Þórður var við
sjóróðra úti í Staðarsveit á Snæfells-
nesi. Þá um sumarmálin gerði mikið
norðan áhlaupsveður. Þá voru allir
Staðsveitungar á sjó. í því veðri fórust
tveir áttæringar og einn sexæringur og
voru á þeim bátum 22 menn, flestir úr
Dölum og urðu þá 15 konur ekkjur,
þar af 9 í Dölum, 8 í Hörðudal. f
gömlu ljóðabréfi frá þessum tíma er
eftirfarandi: vísa.
Hörðudalur heita má,
harmasalur núna.
Tíu halir féllu frá
fiskibalinn geymir þá.
Meðal þeirra er fórust var Þórður
bóndi á Bugðustöðum. Hann var af-
armenni að burðum. Hvílíkt mannval
var á skipi því er hann fórst af, má af
því sjá, að þegar skipið rak voru
keipar allir upprónir.
Jón í Rifgirðingum
Jón Þórðarson í Rifgirðingum var
þrekmenni mikið. Eitt sinn bjargaði
hann 13 manns af báti, sem hafði
kollsiglt sig. Við björgunina með Jóni
264 Heima er bezt
voru 2 kvenmenn. Var sú björgun
talin hið mesta þrekvirki. Jón var stór
maður vexti og hefur Þórður í Börm-
um það eftir föður sínum, Ólafi
Þórðarsyni í Hlíðartúni, að hann hefði
séð Jón eitt sinn, er hann var kominn á
níræðisaldur og sagðist hann aldrei
hafa séð jafnstórar og þreklegar
hendur á manni. Einnig sagði Ólafur,
að einhverju sinni hafi þeim borið
eitthvað á milli, Oddi Hjaltalín lækni í
Stykkishólmi og Jóni. Oddur var þá
drukkinn eins og oftar. Barði hann
Jón með staf sínum. Tók Jón til hans
og varpaði honum til jarðar og lét hné
fylgja kviði. Komu þá menn að og
heyrðu Odd segja: „Þetta var mér
mátulegt, því ég hef margan saklaus-
an barið.“
Friörik Jónsson
Jón í Rifgirðingum átti son er Friðrik
hét. Hann átti fyrir konu Frúgiti,
dóttur sr. Gísla Ölafssonar prests í
Sauðlauksdal. Það er sagt að Friðrik
hafi eitt sinn verið á ferð með konu
sinni um vetur. Gerði þá svo mikla
stórhríð, að þau villtust og grófu sig í
fönn. Þrengdi þá svo að þeim kuldi og
vosbúð, að kona Friðriks lést þar í
skaflinum hjá honum. Fór hann þá á
brott til að reyna að forða lífi sínu.
Villtist hann þá aftur. Hét hann því
þá, að ef hann fyndi lík konu sinnar
aftur, þá skyldi hann ekki yfirgefa
það. Og sagði Friðrik frá síðar, að eftir
að hann hafi heitið því, hafi hann
fundið líkið, að litlum tíma liðnum.
Sagðist hann þá hafa lagst niður hjá
líkinu og sofnað, rétt eins og þá er
hann svaf hjá konu sinni lifandi og
liðið mjög vel. Skömmu seinna fór
veður að batna og komst Friðrik þá til
byggða.
Ólafur Þórðarson ferst með
fjölskyldu sinni í skriðuhlaupi
Þórður Þórðarson fæddur 1788, sonur
Þórðar á Bugðustöðum, bjó í Hlíðar-
túni frá 1831-1849. Þegar hann var á
sextugsaldri lá hann svo sólarhringum
skipti úti á Bröttubrekku og hrapaði
þar í gil eitt mikið með hest, en komst
eftir það til byggða. Kól hann til
skemmda bæði á tám og fingrum,
Hann dó í Hlíðartúni 31. ágúst 1855.
Sonur hans var Ólafur, fæddur 10.
febr. 1825. Bjó hann í Hlíðartúni frá
1849-1884. Fyrri kona hans var Þór-
laug Þorgrímsdóttir frá Skarði í
Haukadal. Hún dó 22. júlí 1873, 52ja
ára. Börn þeirra voru: Þórður síðar
bóndi í Börmum í Reykhólasveit,
Kristín og Sigurður. Dóttir Ólafs, með
Ingibjörgu Steingrímsdóttur frá
Ytra-Skógskoti, hét Sigríður. Síðari
kona hans var Sesselja Jónsdóttir frá
Gröf í Miðdölum. Þau áttu ekki börn
saman.
Haustið 1884 í nóvember gekk yfir
Suður- og Vesturland illviðri mikið,
rok og rigning. Verst var veðrið
14.-15. nóvember. Það var seinni part
dags 14. nóvember, að gest bar að
garði í Hlíðartúni í Sökkólfsdal, Jónas
Jónasson að nafni. Hann var að koma
sunnan úr Reykjavík að lokinni betr-
unarhúsvist. Ferð hans var heitið
vestur á Skarðsströnd. Baðst hann
gistingar í Hlíðartúni þessa örlagaríku
nótt. Þegar kvölda tók, safnaðist
heimilisfólkið allt saman í baðstof-
unni, 6 manns, og hlýddu á gestinn
segja fréttir og frá ýmsum atvikum, er
hann hafði komist í kynni við hið
syðra. Þegar leið að fjósatíma fór
Ólafur bóndi til að gefa kúnum og var
hann að loka baðstofuhurðinni, þegar
ósköpin dundu yfir: Skriða féll á bæ-
inn. Talið var að látist hefðu strax
Ólafur bóndi ásamt þremur börnum
sínum: Sigurði 24ra ára, Kristínu 26
ára, Sigríði 10 ára, og svo gesturinn
Jónas Jónasson. Sesselja kona Ólafs
lifði af skriðuhlaupið en dó 17. nóv-
| ember. Margrét Jónsdóttir, dóttir
Heima er bezt 265