Heima er bezt - 01.07.1985, Page 43
Loks legg ég í það stórræði að efna loforð mitt við þig: að
senda þér nokkrar línur, þ.e. sendibréf sem svo var kallað
hér áður fyrr, er fólk skrifaðist á til að fregna hvað af öðru
eða að blanda geði hvort við annað, jafnvel þó engin sér-
stök tíðindi væri að færa, heldur aðeins minnast hvað við
annað. Fylgdi þessu viss „stemning“ eða hugblær beggja
aðila, skrifarans og þess er á móti tók. Nú í seinni tíð hefur
þetta breyst sem annað í þjóðlífinu, með bættum sam-
göngum og auðveldari samfundum fólks almennt, svo og
símaþjónustunni.
Eigi að síður var þessi sendibréfaaðferð stórmerkur
tengiliður milli vina og vandamanna og athyglisverður um
háttu þjóðarinnar hér áður og vafalaust margt þessara
bréfa ekki ómerkari ritsmíðar en ýmislegt það, sem á þrykk
gengur nú til dags.
Ekki er þó svo að skilja að ég stundaði eða þjálfaði mig
mikið í sendibréfaskriftum, ekki einu sinni á þeim árum
ævinnar, sem margan langar að „lifa til að skrifa“, enda fór
það furðu fljótlega svo fyrir mér, að ég varð að „skrifa til að
lifa.“ Það gerði minn lífsvettvangur. Þó neita ég því ekki, að
oft stalst ég til þess að hripa niður alls konar hugdettur í
sambandi við ýmsar dægurflugur, sem flögruðu um á veg-
ferð minni, sem þá var bundið við einstaka menn og mál-
efni og hverfur í gleymskunnar djúp með höfundi þeirra,
þ.e. mér.
Já, nú veiti ég því athygli, þegar ég er kominn niður úr
fyrstu síðu bréfsefnisins, að ég er þegar í laglegri klípu:
ekkert bréfsefni komið, bara tómur formáli og málaleng-
ingar; hvað mun þá verða um bréfið sjálft?
Já, af mér og mínum högum er allt gott að frétta, miðað
við aldur minn og kringumstæður. Er heilsugóður, þar með
talin svipuð sjón og verið hefur nú í seinni tíð. Er það mikil
Sendibréf
tíj Trausta Kristjánssonar
á Blönduósi
bjarni Ó. frímannsson
frá Efrimýrum, A-Hun._____
Bjarni Ó. Frímannsson er tæplega ní-
ræður heiðursmaður í Keflavík. Hann
bjó 51 ár á Efrimýrum í Engihlíðar-
hreppi, A-Hún. og er víðkunnur fyrir
mikil afskipti af félagsmálum og op-
inber störf, var m.a. símstöðvarstjóri
í 43 ár.
Trausti Kristjánsson á Blönduósi
ólst upp hjá Bjarna og konu hans
Ragnhildi Þórarinsdóttur frá 5 ára
aldri, en fyrir nokkrum árum bað hann
fóstra sinn að rita sér dálítið sendibréf.
Langaði hann að fræðast um hagi
Bjarna fyrir kynni þeirra og upphaf
hjúskapar og búskapar. Heima er bezt
fékk síðan leyfi til að birta bréfið í
heild, enda er það skemmtileg heim-
ild.
Bjarni var forsíðumaður Heima er
bezt í september 1977
FYRRI HLUTI
Heima er bezl 267