Heima er bezt - 01.04.1995, Qupperneq 14
þekkt, og sama sögðu allir sem
kynntust honum. Skilningurinn var
afar skarpur og minnið svo frábært
að segja mátti að hann gleymdi
aldrei neinu sem hann hafði einu
sinni heyrt. En hann var jafnframt
mjög sérkennilegur að ýmsu leyti og
var oft hlegið að honum, þótt gáfað-
ur væri. Hann var óskaplega spurull.
Hann spurði auðvitað fyrst og fremst
um allt sem hann hélt að hann gæti
eitthvað fræðst af en líka spurði
hann oft um margt sem manni fannst
undarlegt að svo gáfaður maður
hefði áhuga á að vita um, jafnvel
slúðursögur. Hann vildi sem sagt
vita allt.
Rétt eftir að heimsstyrjöldin byrj-
aði 1914 skrapp mamma inn að
Vindfelli, því að við vorum þá aðeins
búin að fá óljósar fregnir um að
styrjöld væri skollin á en vissum það
ekki með vissu, því að dagblöð bár-
ust þá ekki út á land nema í mesta
lagi á hálfsmánaðar fresti, en hún
vissi að Gísli myndi vera búinn að fá
áreiðanlegar fréttir af því. Ég fékk að
fara með henni.
Allhár háls er á milli bæjanna, en
þegar honum sleppir taka við tvær
valllendisgrundir. Tvær smáár að-
skilja grundirnar, heitir önnur Ham-
arsá en hin Stekkjará. Stekkjaráin
var brúuð, enda miklu stærri. Hún er
einnig nær bænum á Vindfelli en þó
æðispöl frá bænum.
Þegar við vorum komnar yfir
Stekkjarána sá mamma að maður sat
utan við bæinn á Vindfelli og var að
dengja ljá. Kenndi mamma þar fljótt
Gísla, því að hún sá mjög vel.
í sama bili heyrðum við að Gísli
kallaði með ógurlegri þrumuraust,
svo að bergmálaði í fjöllunum, en
hann hafði mjög háan og sterkan
róm:
„Ja, nú eru mikil tíðindi, Þorbjörg
mín, það er komið ógurlegt stríð.“
Ég, sem hef alltaf verið fljót að
taka eftir öllu broslegu, átti afar bágt
með að hlæja ekki að þessum hróp-
um í Gísla, en mamma bannaði mér
það harðlega. Hún vissi sem var, að
Gísli var dálítið spéhræddur og vildi
ekki styggja hann, en hún gat alltaf
stillt sig um að hlæja, ef hún ætlaði
sér það. Mun henni þó hafa þótt
þetta atferli Gísla æði broslegt.
Á meðan á styrjöldinni stóð var
Gísli alltaf að fara inn á Kolbeins-
tanga, en svo heitir Vopnafjarðar-
kauptún, til að fá fréttir af stríðinu.
Sími var þá hvergi í sveitinni nema á
prestssetrinu Hofi, en þangað var
mun lengra að fara.
Kom hann svo alltaf út eftir til
okkar til að segja okkur nýjustu frétt-
ir.
Gísli fylgdist alltaf með gangi
stríðsins af lífi og sál. Hélt hann
alltaf með Englendingum en bölvaði
Þjóðverjum í sand og ösku, kallaði
þá bölvaða Húna og villimenn og
öllum illum nöfnum.
Mamma gerði það þá stundum af
glettni að látast taka svari Þjóðverja,
sagði þá marga íslandsvini og mikil-
hæfa menn, en þá sagði Gísli jafnan:
„Það er vöntun í þig, Þorbjörg
mín, að þú skulir geta haldið með
bölvuðum Húnunum, og er það
óskiljanlegt með svo gáfaða konu.“
Hann hélt einnig mikið upp á Frakka
og hældi þeim á hvert reipi. Þótti
sumum sem það sýndi sig að honum
rynni blóðið til skyldunnar, þegar
hann hældi þeim sem mest. Man ég
ennþá hvað hann dáði Napóleon
Bónaparte mikið.
Einu sinni um hásumar komu til
okkar tvær enskar konur, sem ferð-
uðust fótgangandi um landið. Þær
höfðu gist á Vindfelli nóttina áður en
komu til okkar til að hvíla sig, áður
en þær legðu á hina illræmdu Hellis-
heiði, og drukku kaffi hjá okkur.
Þær voru báðar kennarar við há-
skólann í Cambridge, og var önnur
þeirra skólastjóri við þann skóla. Hét
hún Bertha Pilpatts en nafni hinnar
hef ég gleymt.
Pilpatts talaði íslensku reiprenn-
andi, hafði lesið mikið íslenskar
bókmenntir og meðal annars öll
fornritin, Islandsvinur mikill og var
heiðursfélagi Hins íslenska bók-
menntafélags.
Hin talaði ekki íslensku en skildi
hana augsýnilega. Pilpatts talaði
mikið við mömmu og meðal annars
talaði hún um hvað gestgjafi þeirra,
Gísli á Vindfelli, væri afburða fróður
og gáfaður. Það hefði verið alveg
sama um hvað tal þeirra hefði verið,
hvort það hefði verið um Islands-
sögu, landafræði, mannkynssögu eða
hvað annað sem hún hefði talað við
hann, alls staðar hefði hann verið
jafn vel heima.
Sagði hún að fátítt væri að hitta
fyrir slíkan mann sem væri þá líka
alveg ómenntaður maður.
Þó að hann væri svona afburðagáf-
aður og fróður, var hann eins og ég
hef sagt, mjög sérkennilegur og
barnalegur í aðra röndina.
Einu sinni var Jón í Múla, alþing-
ismaður, á ferð um Vopnatjörð, og
var annar maður með honum. Þeir
gistu á Vindfelli og var Jón eins og
aðrir mjög hrifinn af gáfum Gísla og
hve skemmtilegur hann væri. Þegar
þeir fóru svo daginn eftir fylgdi Gísli
þeim á leið, sem vani hans var alltaf
að gjöra við gesti. Þegar hann svo
þóttist loks hafa fylgt þeim nógu
langt, kvaddi hann þá með virktum
og hélt heimleiðis. En ekki hafði
hann langt farið, þegar hann mundi
eftir að það var nokkuð, sem honum
hafði láðst að spyrja Jón um og kall-
aði til hans með sinni voldugu
þrumurödd og sagði:
„Heyrðu, Jón, hvað kostaði húfan
þín!?“
Jón nefndi verðið. Þetta var um há-
122 Heima er bezt