Heima er bezt - 01.04.1995, Qupperneq 24
Ekki væri það nú verra, ef þeir Ásmundur og Óskar létu
nú Kára ekki komast upp með það að hafa síðasta orðið
til þeirra að sinni og svöruðu þessum vísum hans sam-
kvæmt upphafsstafareglunni. Reyndar endar svar hans
við vísu Óskars á „ð-i“ en ég held að það hljóti að kalla
bara á bókstafinn „D“ því „ð“ er, eins og allir vita, ekki
til sem upphafsstafur.
En áskorunin er að sjálfsögðu líka galopin og öllum
frjálst að taka upp þráðinn hvar í henni sem þeim sýnist
með viðeigandi upphafsstaf. Æskilegt er að tekið sé fram
hvaða vísuhöfundi er verið að svara.
Þátturinn hefur orðið óvenju langur hjá okkur að þessu
sinni, ef til vill af tilefninu sem í upphafi hans greinir,
hver veit, en nú er mál að linni. Við minnum á heimilis-
fangið:
Heima er bezt,
Pósthólf8427.
128 Reykjavík.
Átt þú í fórum þínum skemmtilega mynd. t.d. af atburði, stað,
húsum, dýrum eða fólki, sem gaman væri að birta í Myndbroti? Ef
svo er því ekki að senda okkur hana til birtingar og leyfa lesendum
HEB að njóta hennar líka?
Gutti nýtur
lífsins.
Ljósm.:
Kjartan Ólafsson
Stúfholti 2,
Holts- 02 Landsveit.
132 Heima er bezt