Æskan - 01.07.1965, Qupperneq 3
SÓLVEIG ÁRNASOIS:
Alheims-
MÁL
ÉG man þennan atbnrð eins
og hann liefði átt sér stað í
gær, og þó eru meira en 50
ár síðan foreldrar mínir og ég
vorum að flytja til Ameriku.
J^g man þennan atburð eins og hann hefði átt sér stað
í gær, og þó eru meira en fimmtíu ár síðan foreldrar
mínir, eldri bróðir minn, systir mín og ég vorum að flytja
l'l Ameríku frá íslandi.
^kipið, sem ílutti okkur, var fullskipað farþegum, og
Vl® vorum í klefa með tveimur öðrum fjölskyldum. Það
Var ekki gott í sjóinn og margir voru sjóveikir. Móðir
111111 var veik dögum sarnan og mjög máttfarin. Hún bað
föður minn eitt sinn að sækja vatn að drekka og sagði
honuni jafnframt að taka mig með sér, því að ég hel’ði
K°tt af hreyfingunni.
Ég var full af fjöri og hlýt að hafa verið veikri móður
minni til armæðu. Ég var líka leið yfir því að þurfa að
húka þarna í þrengslunum, svo að ég var glöð yfir tæki-
i®rinu að fá að koma á aðra staði á skipinu. Við fórum
ljví af stað til þess að sækja vatnið.
Á þessum tíma var ferskt vatn geymt í tanki og ungur
maður sá um skömmtun til handa hinum mörgu fjöl-
skyldum, ef þær komu með ílát með sér.
Þegar við komum að vatnstankinum, voru aðrir komnir
á undan okkur. Þarna voru tvær ungar stúlkur, sem töl-
uðu sarna mál og ungi maðurinn, sem átti að gæta tanks-
ins. Þær virtust skemmta sér vel og virtust einnig fá
meira en sinn skerf af vatninu, því að hvor þeirra hafði
ílát fullt af vatni. Ég gat séð, að faðir minn fór að verða
óþolinmóður, en ég naut þess að horfa á fallegu, ungu
stúlkurnar og klæðnað þeirra. Ég held, að ég hafi mest
verið hrifin af að heyra þær tala svo hiklaust tungumál,
sem ég gat ekki skilið. Ég ákvað á þeirri stundu, að ég
skyldi læra það eins fljótt og unnt væri.
Ég hygg, að mér hafi skilizt í fyrsta skipti, hve nauð-
synlegt er að tala ensku. Þarna stóð faðir minn, sem ekki
Sólveig Árnason Jeffery er fædd í Hólshús-
um í Húsavík eystri, en fluttist með foreldrum
sínum til Vesturheims aldamótaárið. Hún er
gift Englendingi, Ben Jeffery, bónda við
Marshall, Sask. Þau eiga tvö börn, sem eru
gift og búsett í Alberta. — Sólveig leggur stund
» málaralist, tónsmíðar og ritstörf í tómstund-
um sínum. Foreldrar hennar voru Ástríður
Sigurðardóttir frá Bæ í Lóni og Bjarni Árna-
son. Þau namu Iand við Kristnes, Sask.
Sólveig og maður hennar, Ben Jeffery.
219