Æskan - 01.07.1965, Blaðsíða 40
VITIÐ ÞER?
SKIPAMYNDIR
að 1782 sagði þeirra tíma frægasti
stjörnufræðingur, Lalande, á fundi
í frönsku akademíunni, að Jiað væri
gjörsamlega ómöguiegt fyrir mann
að dvelja og iireyfa sig i ioftinu?
Og að aðeins fífl mundi fást við
slíka draumóra?
Nú vita allir hvað gerzt liefur síð-
an, en orð lians voru þegar gerð
ómerk árið eftir af franska eðlis-
fræðingnum Pilatre de Rozier, sem
])á fór hina fyrstu heimssöguiegu
ferð í loftbelg, það vita færri.
Vitið þér, að í Frakklandi eru
haldin námskeið, þar sem kennt er
að hlæja rétt?
Forstöðumaður námskeiðsins er á
þeirri skoðun, að 90% af mönnum
lilægi rangt. Hann segir að hlátur
eigi að vera frjálslegur og koma
innan frá, allur likaminn á að taka
þátt í honum, þannig að hláturinn
verður kröftugur og nautn fyrir
þann sem hlær. Allt þetta getur mað-
ur lært á 6 kvöldnámskeiðum, sem
kosta 20 franka hvert skipti og að
afloknu prófi fá menn prófskírteini,
sem á er hlæjandi munnur.
256
£
Hér koma enn tvær myndir úr skipamyndasafni Sólarfilmu s>1’
Kristín RE 45
á leið inn til Reykjavíkur.
Skarðsvík SH 205
frá Hellissandi er ljómandi fallegt skip, smíðað 1962-
Skrifið eftir verðlista
yfir leikaramyndir og bœkur.
FRÍMERKJASALAN
LÆKJARGÖTU 6A.