Æskan

Árgangur

Æskan - 01.07.1965, Blaðsíða 12

Æskan - 01.07.1965, Blaðsíða 12
FRA UNGLINGAREGLUNNI Áfengis- og tóbaksnotkun er mjög skaðleg heilsu manna og aíar kostnaðarsöm, auk þess veldur áfengisneyzla ótal slysum og alls konar böli. í tóbakinu er eitur, sem heitir nikótín, og í áfenginu er líka eitur, sem heitir alkóhól. Ung- lingar, sem byrja að reykja, verða gamlir og skorpn- ir í útliti strax meðan þeir eru ungir. Margt fólk byrjar að drekka af því að það heldur, að það sé fínt og að það skemmti sér betur, þegar það fer út að skemmta sér, en ekkert af þessu er rétt, það verð- ur bara sjálfu sér til skammar og öðrum til leiðinda. Sóley Halla Þórhallsdóttir Ég vona bara að hætt verði að selja vín, svo aldrei sjáist fullur maður oftar. Og íullorðna fólkið ætti að vera fyrirmynd unglinganna í því og nota aldrei hvorki tóbak né áfengi. Sóley Halla Þórhallsdóttir, II ára, Suðureyri, Súgandafirði. Áfengismál. Nærri því á hverjum degi ber- ast fréttir af slysförum, og oft er tekið fram, að áfengi hafi verið orsökin. — Þau eru mjög mörg um- ferðarslysin sem verða af ölvun við akstur. Margir bíða bana í slysum þessum og aðrir verða örkumla- menn. Ógæfa einstaklinga og hrun heimila verða afleiðingarnar. — Fjöldi sjómanna hefur farizt við bryggjur, er þeir hafa ætlað um borð í skip sín, vegna þess að þeir hafa verið of ölvaðir til þess að geta stjórnað hreyfingum sínum. Því miður má halda svona upp- talningu áfram. Dæmin eru svo ótal mörg úr okkar litla þjóðfé- lagi. Á vegum íslenzka ríkisins er rek- in einkasala með áfenga drykki. Þessir áfengu drykkir eru seldir um allt land. Á hverju ári er selt áfengi fyrir hundruð milljóna, og ríkið fær ágóðann af sölunni. Það er hörmulegt til þess að vita, að áfengissalan eykst frá ári til árs, og jafnt ungir sem gamlir neyta áfengis. Mikið er talað um áfengis- og tóbaksnotkun unglinga, og blöðin segja ljótar fréttir af skemmtistöðum, þar sem ungling- arnir setja svip á skemmtanirnar með drykkjulátum og slarki alls konar. Oft er spurt um það, hvers vegna ástandið sé svona slæmt. Svörin eru margvísleg, en ekki virðist vera auðvelt að finna rétta svarið. Að minnsta kosti er ástand- ið ekki gott, og lítur ekki út fyrir að fara batnandi, þrátt fyrir alls konar bindindissamtök og alls kon- ar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir hin eyðileggjandi áhrif áfengisins. Víða sér maður ung- linga, sem drekka sig ölóða á skemmtunum og á almannafæri. Þó haldið sé uppi fræðslustarfsemi í bindindisfélögum og skólum, eru það alltaf margir, sem venja sig á áfengisnotkun á unga aldri. Mál- tækið segir: „Það ungur nemur, gamall temur.“ Þeir, sem byrja ungir á því að reykja og drekka, virðast eiga erfitt með að hætta. Getur það verið, að fullorðna fólk- ið eigi sök á þessu með fordæmi sínu? Það heyrist stundum, að ung- ir menn þurfi að drekka í sig kjark, svo að þeir geti „verið menn með mönnum". Ég held, að unga fólk- ið athugi ekki nógu vel aðvaranir þeirra, sem gefa góðar ráðlegging- ar í þessum efnum. Það er stund- um gert grín að „stúkupostulum“, sem leggja mikið á sig til þess að leiða unga fólkinu fyrir sjónir, hve hættulegt það er að gefa sig á vald alls konar óreglu, og hvaða afleið- ingar það getur haft. Við eigum að virða það fólk mikils, sem vill leiðbeina okkur, og vera þeim þakklát, sem vara okkur við hættunum. Ef við vituni um hætturnar, getum við íorðast slysin. Það er ógæfa ungs fólks að venja sig á óreglu alls konar, og það er eitthvert mesta slysið, að byrja nokkurn tíma á neyzlu áfengis. Edda Ragnarsdóttir. 228

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.