Æskan - 01.07.1965, Qupperneq 24
Eggin og krummi.
Fyrir mörgum árum voru menn á
ferð með æðaregg í fötum. Á leiðinni
komu þeir við á bæ til þess að fa sér
kaffisopa, en skildu eggin eftir kipp-
korn frá bænum. Þegar þeir komu til
baka, sáu þeir nokkra hrafna á vakki,
þar sem þeir höfðu skilið eggin eftir,
og þegar þeir gættu betur að, sáu
þeir, að flestöll eggin voru horfin úr
einni fötunni. Þeir fóru nú að leita
að eggjunum, en lengi vel fundu þeir
ekki neitt. Hrafnarnir flögruðu hátt
yfir höfði leitarmanna og krunkuðu
ánægjulega. Þeir bjuggust auðsjáan-
lega við veizlu, þegar mennirnir hypj-
uðu sig á brott.
Eftir langa leit fannst fyrsti felu-
staðurinn, svo annar og síðan hver af
öðrum. Hvar haldið þið, að hrafnarn-
ir hafi falið eggin? Þeir höfðu falið
þau í hrossataðshrúgum. Eftir að
fyrsti felustaðurinn fannst, fóru menn-
irnir að leita í fleiri hrossataðshrúg-
um, og að lokum fundu þeir öll eggin,
sem hrafnarnir voru búnir að hnupla.
Síðan héldu mennirnir heimleiðis, en
krummar urðu af veizlunni, þrátt fyr-
ir kænsku sína og hyggindi.
Sigurjón Jónsson.
Bóndadóttir.
í Vatnsdal fyrir norðan er mælt, að
nokkrir bæir hafi farizt af skriðum,
sem fallið hafi úr Vatnsdalsfjalli. Með-
al þessara bæja var einn, sem hét
Gullberastaðir. Bóndadóttirin á Gull-
berastöðum hafði haft þá venju, að
gefa bæjarhrafninum ætíð, þegar hún
borðaði. Einu sinni þegar hún eftir
venju rétti honum út um gluggann
það, sem hún ætlaði að gefa honum,
þá vildi krummi ekki taka við. Stúlk-
una furðaði þetta og fór út með ætið.
Krummi kom mjög nálægt henni, en
vildi þó ekki þiggja matinn, en lét
einatt líklega, svo stúlkan elti hann
út á túnið, spölkorn frá bænum. En
þegar þau voru komin þangað, heyrir
hún drunur miklar uppi í fjallinu, og
allt í einu féll úr því skriða sem rann
báðum megin við þau krumma og
bóndadóttur, en kom ekki á þann
blett, sem þau voru á. Bærinn varð
aftur á móti fyrir skriðunni, og tók
hún hann af með öllu, sem í honum
var, lifandi og dauðu. Launaði
krummi þannig bóndadóttur matinn.
En orsökin til þess, að skriðan féll
ekki yfir blettinn, sem þau krummi
og bóndadóttir stóðu á, var sú, að
þegar Guðmundur biskup helgi eitt
sinn fór þar um, þá hafði hann tjald-
að á bletti þessum. En áður en hann
tók sig upp þaðan, vígði hann tjald-
staðinn, eins og hann var vanur að
gera, og því gat þar síðan enginn orð-
ið fyrir neinu grandi.
(Þjóðsögur og cevintýri Jóns Árnasonar.)
Kolsvartur.
Til er erlend þjóðsögn um það,
hvernig hrafninn varð svartur. Sagt
er, að fasaninn hafi upphaflega verið
öskugrár á litinn. Hann bað því hrafn-
inn að mála fjaðrir sínar með fögrum
litum. Hrafninn var fús til þess og
málaði fasaninn með fjölbreyttum
skrúðlitum. Þegar hrafninn var búinn
að þessu bað hann fasaninn að gera
sér sömu skil. En hann neitaði ekki
einungis hrafninum um þessa bón,
heldur tók hann fullt blekílát og
dembdi úr því yfir hrafninn. Síðan
hefur hann verið kolsvartur.
Kirkjuhrafnar.
Alkunnugt er hve algengt það er, að
hrafnar sitji á kirkjuturnum eða seti
á sveimi umhverfis þá. Hefur mér þvl
dottið í hug að segja ykkur allmerki'
lega sögu af kirkjuhröfnum.
Eins og flestöllum hér um slóðir er
kunnugt, var hin gamla kirkju Akur-
eyrar staðsett innst í gamla bænuro-
Voru hrafnar þar sífellt sveimandi yf'
ir og umhverfis kirkjuturninn og satu
oft á turnspírunni. Spíran var aðeius
ein, og flatur húnn eða hnúður íl
henni. Vildu því oft fleiri en eiu11
hrafninn fá sér sæti á húninum, °£
voru því jafnan hnippingar og hriud'
ingar á milli þeirra um réttinn u'
þessa ágæta hásætis.
Nú var ný kirkja reist á Akurey11
í miðbænum og því all langt frá hiufll
gömlu, og var sú kirkja vígð þau11
17. nóvember 1940. Áður en sú athöf11
hófst, gekk biskup landsins ásamt ^
prestum og sóknarnefnd til göuif11
kirkjunnar að afhelga hana. Voru þa1
sungnir sálmar, og mælti biskup s1^
an nokkur orð. Síðan tóku prestaru11
helgigripi kirkjunnar, svo sem kaleik’
biblíu o. fl. og báru þá til hinua1"
nýju kirkju, og fór þar síðan fral11
vígsluathöfnin.
En nú brá svo einkennilega við 11111
þetta sama leyti, að eftir þennan daí
sást enginn hrafn á turni gömlu kirW
unnar. Virðast þeir hafa flutt sig f*11
ferlum, því að nú var hópur þeirlíl
seztur að á turnum hinnar uýí11
kirkju, og hafa þeir haft þar aðset11’
síðan. Nýja kirkjan er með tveiu1111
turnum, og á þeim eru margir staHar’
svo að þar er tilvalinn hvíldarstað111
og sæti handa mörgum hröfnum- , 1
Gamla kirkjan stóð enn í tvö ^
eftir þetta. En aldrei sáust hrufoaI
þar á turninum, eftir að helgigrip1111
ir voru þaðan fluttir.
Kristján Sigurðsson, hirkjuvði'W i