Æskan - 01.03.1967, Qupperneq 4
í Irumókócfum cJl\ri\zu
i
III. Vatnslaus í eyðimörkinni.
Davíð Livingstone.
IJtlitið var ekki gott. Vatnsbirgðirnar á þrotum. Hver
einasta krukka orðin tóm. Sólin var hátt á lofti. Os-
well, einn af nánustu vinum Livingstones, vissi ekkert til
ráða. Förin yfir eyðimörkina átti eftir að reynast þeim
erfiðari en þeir gerðu ráð fyrir.
Þannig liðu dagarnir hver á fætur öðrum. Hitinn varð
óbærilegur. Leiðangursmenn urðu sífellt þögulli. Börn-
in fóru að hafa hægt um sig. Bjartur glampi augna þeirra
þvarr, hálsinn varð þurr og heit sólin ætlaði að kæfa þau.
Livingstone sendi tíu svertingja á undan með skóflur.
Þeir áttu að leita eftir vatni. Þeir urðu að fá vatn, annars
var úti um þau öll. Enn var löng leið eftir, og þeir villtir.
Enn leið einn sólarhringur án vatns. Agnes litla gekk
rólega til mömmu sinnar. Hún var vön að hlaupa og vera
glöð. „Mamma," sagði hún og reyndi að kingja. „Fáum
við bráðum vatn?“
Andartak glitti í tár í augum Maríu. En hún jrurrkaði
&
x
Davíð Livingstone, hinn heimsfrægi landkönn-
uður, kristniboði og læknir, fór til Afríku árið
1840. Þá var hann 28 ára. Starf þessa mikilhæfa
manns er mörgum kunnugt. Enn í dag hrífast
ungir menn af dugnaði hans og dirfsku, áræði
og snilli, og læra að meta hann sem eitt af mestu
göfugmennum, sem uppi hafa verið.
Margvíslegir erfiðleikar mættu honum í Af-
ríku allt frá fyrstu stundu. Kristniboðsstöð reisti
hann í Mabotsa og vann þar mikið starf á meðal
hinna innfæddu. Þar lenti hann í bardaga við
ljón og lá við, að illa færi.
Nokkru síðar lagði hann af stað í langa ferð
yfir Kalahari eyðimörkina. Hann tók konu sína
með, þrjú börn og talsvert af starfsliði. Allt í
einu uppgötvuðu þeir, að þeir voru orðnir villt-
ir og vatnsbirgðirnar á þrotum.
104
það strax í burtu. Hún tók dóttur sína og ætlaði að segja
eitthvað, jiegar litli bróðir hennar, Tómas, gerði vart við
sig. Hann var vanur að sofa bara f kjöltu móður sinnar.
„Börnin mín,“ sagði hún hægt og leit í kringum sig>
því nú var Róbert líka kominn, „við treystum Jrví, að Guð
muni hjálpa okkur. Við höfum lagt upp í þessa ferð í
trausti til hans.“
THOttfS