Æskan

Árgangur

Æskan - 01.03.1967, Blaðsíða 36

Æskan - 01.03.1967, Blaðsíða 36
SPURNINCAR OC SVÖR Þátturinn með Rannveigu og krumma er mjög vinsælt efni í barnatíma sjónvarpsins. Kæra Æska. Viltu koma þakk- læti til hans Hinriks Bjarna- sonar fyrir hans skemmtilega þátt i sjónvarpinu á sunnudög- um, er nefnist „Stundin okk- ar“. Siðan við krakkarnir viss- um með vissu, að þessi þáttur kæmi á hverjum sunnudegi, er- um við hérna á heimilinu al- veg hætt að hugsa til barna- sýninga kvikmyndahúsanna á sunnudögum, en þess í stað sitjum við öll í kringum sjón- varpið, þegar hann Hinrik byrjar. Gætir þú nú ekki frætt mig um stjórnandann, hann Hinrik? — Helga. Svar: Stjórnandi þáttarins „Stundin okkar“ er Hinrik Bjarnason kennari. Fyrsti ]>átt- ur hans hófst um síðustu jól og Hinrik Bjarnason. hefur síðan verið á hverjum sunnudegi. Nýlega átti eitt dag- l)laðið viðtal við Hinrik, og sagði hann þar meðal annars þetta: „Við tökum alltaf upp nokkra þætti fyrirfram og höf- um t. d. þrisvar fengið efni frá Oldutúnsskóla í Hafnarfirði. Börnin hafa leikið fyrir okkur leikrit, teiknað eftir tónlist og leyft oltkur að vera inni í kennslustund. — Efni þáttanna reynum við annars að hafa scm fjölbreytilegast, ekki langdreg- ið, og tíð skipti milli atriða. Vanalega kemur kona i heim- sókn og segir sögu, fjórar stúlkur syngja fyrir okkur og piltar úr Vesturbænuin leika á liljóðfæri. — Flutt hafa ver- ið leikrit, fyrsta leikritið, sem hét Tobías tréálfur, samdi cg sjálfur, og leikendurnir voru nemendur úr barnaskóla. Þá er búið að taka upp enskar tcikni- myndaseriur, tékkneskar brúðumyndir og pólskar, en sem kunnugt er standa þessar þjóðir mjög framarlega í kvik- myndagerð og þá ekki sízt fyr- ir börn. — Einnig má nefna, að Rannveig Jóhannsdóttir kemur fram með krumma.Hon- um skrifa krakkarnir bréf, senda honum visur og lög. En kveðskapurinn, sem þau senda, er ýmist þekktur eða eftir þau sjálf og sama er að segja um lögin.“ Hinrik Bjarnason er fæddur 8. júlí 1934 i Ranakoti á Stokks- eyri. Foreldrar: Bjarni Sigurðs- son bóndi og Þuríður Guðjóns- dóttir. Kennarapróf 1954.Skóla- stjóri Vistheimilisins í Breiðu- vík 1956—1958. Framhaldsnám í Bandaríkjunum 1958—1960. VINNA á Kennari við Réttarholtsskólann i Reykjavik. Eiginkona: Ifol- finna Bjarnadóttir. Börn: Bjarni og Anna. sumarhótelum. Kæra Æska. Við unglingarnir, sem erum í skóla, þurfum nauð- synlega að starfa eittlivað á sumrin. Það er bæði hollt og þroskandi. Auk þess eru það flestir, sem þurfa að vinna sér inn peninga fyrir veturinn. En ]iví miður eru margir, sem alls enga vinnu fá. Mig langar lielzt eitthvað út á land. Getur ])ú nú ekki hjálpað mér? Hvert ú ég að snúa mér til að fá vinnu á sumarhóteli eða sumardval- arheimili fyrir börn? Með fyr- irfram þökk og beztu óskir. Gerða. Svar: I7erðaskrifstofa ríkisins hefur undanfarin ár rekið flesta stærstu skóla landsins sem sumargistihús, og eftir þeim upplýsingum, sem J)laðið hefur fengið lijá Ferðaskrif- stofu ríkisins, er hægt að snúa sér þangað í lcit að vinnu við sumargistihús þau, sem skrif- stofan annast. Aftur á móti er það ekki nein séstök stofnun, sem hefur með höndum rekst- ur sumardvalarheimila fyrir börn, því að þau cru flest rek- in af félagasamtökum, og verð- ur því að snúa sér til viðkom- andi aðila, sem eru víðsvegar um landið. Kvikmyndablaðið „Bravo“. Kæra Æska. Er ekki hægt að fá keypt þýzka kvikmynda- blaðið Bravo, og ef svo er, hvar er það hægt? Hvað koma mörg blöð á ári, og hvað kostar ár- gangurinn? — Kaupandi. Svar: Blaðið fæst í öllum stærstu bókaverzlununum i Reykjavík, þar á meðal í Bóka- húð Æskunnar, Kirltjutorgi 4, simi 14235. Þú ættir að hafa Upplýsingar samband við aðalútsölumann blaðsins hér á landi, en hann cr Jón Þ. Árnason, Þinghóls- braut 2, Kópavogi, sími 41978, og fá hjá honum upplýsingar um, hvað árgangurinn kostai'. Bravo er eitt frægasta kvik- myndablað, sem út er gefið i Evrópu. Upplagið mun vera á aðra milljón eintaka, og út koma 52 tölublöð á ári. um L. Barker. Kæra Æska. Getur þú frættmig um, hvort leikarinn Lex Barker er fæddur í Þýzkalandi eða i Bandaríkjunum, eins og ein vinkona min heldur fram? Að minnsta kosti held ég, að hann sé nú giftur þýzkri Jeikkonu. Katrín. Svar: Lex Barker er fæddur i New York. Á síðari árum liefur liann leikið i þýzkum kvik- myndum. Hann er fjórgiftur, en engin eiginkvenna hans hef- ur verið þýzk. Þrjár þeirra voru frá Bandaríkjunum, Gonn- io Thurlow, Arlene Dahl og Lana Turner. Núverandi eigin- kona lians er Maria Carmen fr® Spáni.

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.