Æskan

Árgangur

Æskan - 01.03.1967, Blaðsíða 35

Æskan - 01.03.1967, Blaðsíða 35
FLUG <nu eru Jítt kunnugir. Reynd- >n ver<5ur sú, að menn komast 1 vandræði með orðið vcgna takmarkana ]>ess. I flugmáli eru einkum notuð fjögur orð um flughraðasvið flugvéla, þ. e. subsonic, tran- sonic, supersonic og liypersonic speed. Orðið subsonic, undir- sónískur, er notað um flugvél- ar, sem fljúga hægar en hljóð- 'ö umhverfis þær berst; tran- sonic, viðsónískur, er notað um l>a?r flugvélar, sem liafa flug- hraðasvið, scm getur verið rétt fyrir neðan og ofan hljóðhrað- ann; supersonic, yfirsónískar, flugvélar fljúga auðveldlega braðar en hljóðið og hyper- sonic, ofursónískar, fljúga með meira en fimmföldum hljóð- hraðanum. Aliir þekkja íslenzka orðið sónn (sbr. sonus á latinu), og er það samstofna við enska °rðið sonic. Fróðir menn um islenzka tungu hafa tjáð mér, a® þeim þyki orðið sóniskur að vísu ekki fallegt, a. m. k. á 'neðan menn séu því óvanir, cn 1 þessu tilviki sé það fullkom- iega réttlætanlegt og nauðsyn- tegt. í textanum með fyrrgreindri n'ynd átti að standa „fyrstu yfirsónísku farþegaþotu Banda- •'íkjamanna. Yfirsónískar eru þær fiugvélar nefndar, scm Keta flogið hraðar en hljóðið,“ °- s. frv. Arngrímur Sigurðsson. Æskan hiður Arngrim Sig- Urðsson afsökunar á ]>ví, að skipt var á ]>essum orðum í Prentun. Ekki er þó eingöngu v>ð okltur að sakast. Nú i haust gaf Almenna bókafélag- 'ð iít hókina Flugið, i hóka- flokknum Alfræðasafn AB. í þeirri hók er enska orðið super- sonic ævinlega þýtt með ný- yrðinu hljóðfrár. Þólt deila ’Pegi um rétlmæti sumra ný- yrða, þá hefur Almenna Jióka- iélagið rutt þarna lítt troðna hraut með nýyrðasmíði og gert það að einhverju leyti með aðstoð Nýyrðanefndar. Því má Segja, að okkur sé nokkur vor- kunn, er við litum á þessa bók sein nokkurs konar hæstarétt > þessum efnum. Saga flugsins FRAKKINN MEUSNIER gerði fyrstur teikningar af stýranlegu loftskipi árið 1784. Hann vildi liafa loftbeiginn ílangan til þess að draga úr loftmótstöðunni. Þrjár skrúfur áttu að knýja loftfarið. Á þessum tíma var enginn hæfur vélarkraftur nýti- legur svo að ekkert varð úr smiðunum. EFTIR AÐ GUFUVÉLIN var fundin upp i upphafi síðustu aldar, datt uppfinninga- mönnum strax i hug að nota gufuvélar til að knýja loftför. Franski véiaverkfræðing- urinn Giffard byggði litla 3 ha gufuvél, sem vó 45 kg. Með katli, eldstæði og eldi- viði vó vélin um 250 lig. Þessari vél var komið fyrir neðan í loftbeig, og 24. sept. 1852 fór hann stutta flugferð. FRANSKUR VERKFRÆÐINGUR fékk syk- urverksmiðjueigendurna Pierre og Paul Lebaudy tii þess að standa straum af kostnaði við smíði stórs, stýranlegs loft- fars. Þessi Lebaudy-gerð liafði mjög mikil áhrif á smiði síðari loftskipa. Þetta var hálfstift loftskip með 80 ha benzínmótor og flaug fyrst 13. nóv. 1902. Næstu tvö ár fór þetta loftskip 63 vel heppnaðar flug- ferðir. FERDINAND VON ZEPPELIN, þýzkur greifi, kom árið 1895 fram með áætlun um smíði loftskips, sem olli algjörri byltingu. Loftskip þetta átli að vera gert úr risa- stórri alúmingrind, klæddri lérefti, en að innanverðu átti að koma fyrir mörgum vetnisbelgjum. Menn liöfðu ekki trú á þess- ari gerð loftskipa, en eftir áralanga baráttu sigraði Zeppelin, og hin stóru loftskip lians i'lugu m. a. reglulegt farþegaflug milli Þýzkalands og Suður-Ameríku. Á STRÍÐSÁRUNUM 1914—1918 byggðu Bretar mörg óstíf loítskip („blimps") sem einkum voru notuð til könnunarferða. í áhafnarkörfunni (gondólnum), sem líktist flugvélarskrokk, var mótor með skrúfu svo og í’ými fyrir tvo menn. Á stríðsárunum voru smiðuð 59 svona skip. Flughraðinn var um 70 km/klst.

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.