Æskan

Árgangur

Æskan - 01.03.1967, Blaðsíða 28

Æskan - 01.03.1967, Blaðsíða 28
Nokkrir sovézku geimfaranna. Talið frá vinstri: Popovits, Leonov, Gagarín, Beljajev, Tereshkova og Nikolajev. þorps. Ég gat ómögulega slitið augun £rá þessu undri, aðallega eimvagnin- um, sem dró alla vagnana áíram á teinunum. Ég var ákaflega upptekin og hrifin af þessari fyrstu járnbrautar- lest, sem ég leit augum. Ég fór að spyrja mömmu um hvern- ig þetta væri, og hún svaraði: „Nú þetta er jámbrautarlest,“ og meira fannst henni ekki þurfa að tala um það, því að hún tók ekki eftir þessari undarlegu forvitni minni. Ég var nú ekki alveg ánægð með þetta, og spurði: „En hvað gerir maðurinn, sem allur reykurinn kemur frá.“ „Það er lestarstjórinn," anzaði mamma. Augnablik þagði ég, en svo kom næsta spurning með miklum ákafa: „Geta konur orðið lestarstjórar?" Mamma hefur víst verið hrædd um, að þessu spurningaflóði héldi áfram, því að hún laut niður að mér og hvíslaði: „Þegi þú nú barn! Það getur vel verið að konur geti stjórnað lest, en þú ert nú ekki annað en smákrakki ennþá." Eins og fyrr er sagt flutti Valentína og fjölskylda hennar til stærra Jrorps, og þar var járnbrautarstöð. Oft þurfti Valentína að fara á brautarstöðina til Jress að horfa á, Jregar lestirnar komu og fóru. „Þegar ég er orðin stór, J)á ætla ég að verða lestarstjóri," sagði Valentína oft við leiksystur sínar. Flest börnin í skólanum, sem Valen- tína sótti, höfðu misst föður sinn í styrjöldinni. Það var líkt á komið með þeim og henni, og það var kannski þess vegna, sem Jrau eignuðust flest einhver áhugamál, sem tók huga 128 þeirra, þau bættu sér óafvitandi föð- urmissinn með Jrví. Valentína fékk mikinn áhuga á hljómlist, sérstaklega á píanóleik, og dagbækur hennar voru frá Jressum tíma fullar af hinum barnalegustu at- hugasemdum um hljómlist og ljóð. Dag einn stóð Valentína ásamt leik- systrum sínum við eina af hinum ótal- mörgu brúm yfir Volgufljót, og voru þær að mana hverja aðra til að stökkva af brúnni niður í fljótið. „Af hverju ættum við ekki að geta þetta alveg eins og strákar," hrópaði Valen- tína. „Því skyldum við vera huglaus- ari, bara af Jrví að við erum stelpur,“ bætti hún við. Það var anzi djúpt að horfa niður í vatnið, að minnsta kosti fyrir ekki stærri stelpur, en hér voru. Þegar leiksysturnar voru að því komnar að snúa frá brúnni, komu þær auga á nokkra drengi, sem stóðu Jrarna rétt hjá við ána, og voru að pískra saman og hlæja að Jreim. Þá skeði það. Valentína lokaði aug- unum og stökk af brúnni niður í ís- kalt vatnið! Henni skaut fljótt upp á yfirborðið, og allir krakkarnir hróp- uðu og veinuðu uppi á brúnni. Þeg- ar Valentína kom til Jreirra rennvot úr ánni, spurðu Jrau hana, hvort liún þyrði að gera þetta aftur. „Og ég gerði það aftur!“ Þetta var eins konar flugferð að henni fannst. í skólanum Jjroskaðist Valentína fljótt, var dugleg að læra. í lestrarbókinni var útdráttur úr hinni heimsfrægu sögu Jules Vernes „Umhverfis jörðina á 80 dögum." Á þeirri stundu er Valentína hafði lok- ið þeirri lesningu, fauk allur áhugi hennar fyrir járnbrautarlestum út í veður og vind. Nú var J>að draumur- inn um að ferðast umhverfis jörðina á 80 dögum, sem altók liug liennar. Ekki var von að hana óraði fyrir J;>vi þá, að seinna myndi draumurinn rætast á 80 mínútum. Árið 1953 tók Valentína gagn- liæðapróf, og byrjaði Jrá að leita sér að einhverju starfi. Hún byrjaði nú reyndar að athuga hvort hún fengi ekki starf við sporvagnana, en Jjeir vildu hana ekki þar. Það var kannske ágætt, Jm þá hefði hún líklega orðið sporvagnstjóri! Valentína hélt áfram að leita eftir starfi, og að lokum fékk hún starf í verksmiðju, þar sem unnin var alls konar gúmmíiðja. Á kvöldin var hún á námskeiði (undirbúningi undir stú- dentsmenntun), en Jrað var erfitt að fylgjast með á námskeiðinu, Jrví hún vann í verksmiðjunni á vöktum. Fé- lagar hennar í verksmiðjunni voru henni ákaflega hjálpsamir, og tóku a£ henni vaktir eða skiptu við hana, þegar hún átti að vera á kvöldvökt- um, annars hefði hún tæplega getað tekið prófið. Valentína Jrráði menntun, en hún varð að vinna fyrir sér, Jjví fólk henn- ar var fátækt, og Jjví fékk hún sér léttara starf i vefnaðarverksmiðju, Jrar senr hún hafði meiri tíma til að lesa undir stúdentsprófið. Hún var dugleg og lagði fyrir af launum sín- um á hverri viku, og gaf meira að segja litla bróður sínum hjól, sem hún vissi að liann þurfti að fá. Tíminn leið og daginn, sem Rúss- ar sendu á loft sitt fyrsta geimfar tók Valentína stúdentprófið, og byrjaði síðan í háskólanum. Unga fólkið í skólanum var ákaf- lega hrifið og upptekið al Jressu mikla afreki, og varla var talað um annað, en ekki leið á löngu, Jrar til naesta geimfari var skotið á loft með hundin- um Laika um borð.

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.