Æskan

Árgangur

Æskan - 01.03.1967, Blaðsíða 16

Æskan - 01.03.1967, Blaðsíða 16
Kodiak skógarbirnir eru stærstu landbirnir í heimi. I>eir fela sig í skógunum mestan hluta dagsins, en á sumrin sjást þeir síðari hluta dags og snemma á morgnana með- fram iækjum, þar sem þeir veiða Iax af mikilli list. ur í djúpið með því að spenna út fæt- urna um leið og hann rann og snúa sér við í fallinu. Hann kom niður með fæturna sinn hvorum megin við tréð og þar sat hann — eins og stoltur riddari á hestbaki. Indíánarnir voru nú komnir að brúnni og öskrin, sem þeir ráku upp við að sjá andstæðing sinn í svo grát- broslegri stöðu, komu bangsa til að stoppa og hugsa sig um. Það voru of margir andstæðingar hinum megin, til að villidýrinu gæti geðjast að því. Það ákvað því að biða og settist við rætur trjástofnsins, þar sem það áleit víst að það gæti tekið á móti Bill, ef hann skyldi voga sér að stíga aftur fæti sínum í bæli þess. „Ég verð líklega að kveðja fyrir fullt og allt í þetta sinn,“ sagði Bill við sjálfan sig. „Eiginlega get ég al- veg eins gert út um þetta strax og drekkt mér í flúðunum hér fyrir neð- ans, eins og að bíða eftir því að þeir rauðu taki líf mitt. Hana nú! Þeir ætla þó ekki að höggva mig niður?" Einn Indíáninn var að höggva með mesta ákafa í hinn endann á trjá- stofninum. Beitt öxin hjó stærðar stykki úr trénu við hvert högg. Eftir nokkrar mínútur yrði stofn- inn orðinn svo veikur, að hann hlyti að falla undan þunga Bills. En skyndilega gekk einn Indíáninn út úr hópnum, klæði hans bentu til, að hann væri foringi þeirra. Hann gaf manninum með stríðsöxina skyndilega einhver fyrirmæli, sem stöðvuðu hönd þessa stríðsmanns og komu í veg fyrir að aðrir hleyptu af bogum, sem þeir höfðu spennt og beint að Bill. „Bræður mínir hafa gleymt,“ sagði foringinn á indíánamáli. „Það á ekki að svifta Pa-ehas-ka (nafn Indíán- anna á Buffalo Bill, sem þýðir sítt hár) lífinu, þegar við höfum hann í hendi okkar. Píningarhællinn stendur lieima og bíður eftir honum, ungu mennirnir okkar skulu fá að gleðjast yfir auð- mýkt hans. Verið nú kyrrir meðan ég, svarti úlfur, tala við Pa-ehas-ka.“ Framhald. Hérna sjáið þið teikningu at svifflugu, sem mjög auðvelt er að búa til. Limið teikninguna af búknum, vængjunum og ferhyrnda stykkinu á þunnalí en stífan pappa. Pressið það svo undir þungu fargi meðan það er að þorna og klippið út öll 4 stykk- in, þegar limingin er orðin þurr. Skerið svo rifurnar AA, BB og CC á mynd 4 gæti- lega, takkarnir A, B og C falla vel i rifurn- ar siðar meir. Itlippið rifurnar D-DD og E-EE og svarta depilinn F klippið þið alveg burt. Þá er næst að setja sviffluguna saman. Gerið brot í búkinn eftir punktalínunni i miðjunni. Síðan gerið þið brot eftirpunkta- línunni til hliðanna þannig að Ii viti inn (K er notað til að halda vængjunum í rétt- um stellingum). Setjið A í rifuna AA, B í BB og C i CC. Stingið hæðarstýrinu (5) gegnum rifurnar E-EE og vængjunum (2) gegnum D-DD. Vefjið ferliyrnda stykkinu (3) saman í rúllu og stingið henni inn í nefið á flug- unni, svo að hún þyngist að framan. F,g4 A A 88 CC -1 f'9 2 a Fig.l Ef þið viljið vanda vel til, þá má klippa vængina úr loki úr alúmíni. Loks er að fá sér teygjuband og festa annan endann á þvi í hakið neðan á flug- unni (F) og hleypa af, alveg eins og þegar maður skýtur baun af teygjubandi. Sviffluga.

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.