Æskan

Árgangur

Æskan - 01.03.1967, Blaðsíða 13

Æskan - 01.03.1967, Blaðsíða 13
CHARLES DICKENS DAVÍÐ COPPERFIELD ÞRÍTUGASTI OG ÞRIÐJI KAFLI Marta finnur Millu. Margir mánuðir voru liðnir, án þess að Marta léti til Sln heyra. Ég var farinn að halda, að Milla liefði stytt Scr aldur, og ég sárkenndi í brjósti um Peggotty, sem enn h'íði í þeirri tr.ú, að hann mundi finna frænku sína. Én kvöld eitt, er ég var á gangi í garði mínum, kom ^larta að sækja mig. ..Getið þér komið með mér tafarlaust?“ spurði hún „Ég fór heim til Peggottys, en hann var þá ekki Éeima. .. . Ég skildi eftir miða á borðinu hjá honurn og shrifaði á hann heimilisfangið, svo hann kemur sjálfsagt lnnan skamms. Komið þér nú, ef þér getið.“ Ég fór tafarlaust með henni, og er við höfðum gengið spólkorn, leigðum við okkur léttivagn og ókurn inn í b°rgina. ..liruð þér búin að finna Millu?" spurði ég, þegar við v°rum setzt upp í vagninn. Marta játti því, en þar sem hún vildi ekki segja meira, innti ég hana ekki frekar eftir þessu. Þegar við komum inn í Golden Square, gaf Marta öku- r,lanninum merki um að nema staðar, og síðan gekk f,ún á undan mér eftir nokkrum götum að stóru húsi, þar Senr aðeins voru eins og tveggja herbergja íbúðir. Við Sengum upp þrönga stiga alla leið upp á 4. hæð, en áður e,t við vorum komin þangað, sáum við, hvar stúlka opn- ,lðl dyr þarna og hvarf inn í herbergi. »Hvað er nú á seyði?“ sagði Marta hrædd. „Stúlkan fór fnn í herbergið rnitt, og ég þekkti hana ekki!" ^g hafði undir eins séð, að þetta var ungfrú Dartle og hvíslaði að Mörtu, að þetta væri stúlka, sem ætti heima hjá Steerforth. hlarta benti mér að koma með sér og fylgdi mér um ;ikdyr inn í lítið kvistherbergi, sem á voru dyr inn í ann- að herbergi. Dyrnar voru í hálfa gátt, svo að við heyrð- um allt, sem fram fór inni í innra herberginu, án þess að vfð sæjum, hverjir voru þar. „Mér er rétt sama, livort hún er heima eða ekki,“ heyrð- um við ungfrú Dartle segja. „Ég er hingað komin til þess e*ns að hitta yður.“ »Að hitta mig,“ var anzað viðkvæmri röddu; það var rödd Millu. „Já, ég vil sjá þessa freku flennu, sem hefur narrað Steerforth að heiman, frá móður sinni og öllum öðrum. Ég vil gjarna sjá, hvernig sú stelpudrusla lítur út!“ „í guðanna bænurn verið þér miskunnsöml" svaraði Milla. „Ég heyri, að þér vitið allt, sem á daga mína hef- ur drifið, og þér hljótið að vita, hve bágt ég hef átt.“ „Bágt! . . . Haldið þér kannski ekki, að aðrir en þér hali átt bágt, óhræsið yðar! . . . Ég hata og fyrirlít yður! . . . Snautið þér burt héðan og felið yður í einhverju skúmaskoti! ... El' þér verðið hér kyrr, skal ég ofsækja yður hvíldarlaust og segja öllum frá skömm yðar og sví- virðingu!“ Ég heyrði, að Milla hné niður á gólfið, heyrði að hún grátbað um vægð og miskunn, og ég var í þann veginn að þjóta inn í herbergið, þegar dyrnar opnuðust skyndi- lega upp á gátt og ég sá, hvar ungfrú Dartle laumaðist út, en Peggotty hljóp til Millu og tók hana í faðrn sér. „Frændi minn! Frændi minn!“ kallaði Milla og hjúfr- aði sig að brjósti Peggottys. Við Marta gengum nú inn í herbergið, og góða stund stóðum við grafkyrr og horíðum á hina hamingjusömu ástvini. „Davíð," tók Peggotty til máls, „ég er Drottni þakklát- ur fyrir, að hann hefur fært mér barnið mitt aftur, og ég þakka ykkur Mörtu al' heilurn hug fyrir, að þið hafið hjálpað mér að leita að litlu stúlkunni." Að svo mæltu bar hann Millu niður stigann, náði í vagn og ók henni þangað, sem hann bjó. Tveim dögum seinna kom Peggotty til mín og skýrði mér frá, að hann hefði keypt farmiða til Ástralíu handa sér, Millu, Mörtu og trú Gummidge, sem endilega vildi fara með þeim. Hann sagði, að skipið færi eftir 6 vikur, og þangað til kvað hann þau Millu rnundu halda kyrru fyrir heima hjá sér. ÞRÍTUGASTl OG FJÓRÐI KAFLI Flett ofan af Uriah Heep. Kvöldið áður en við höfðum lol'að að hitta Micawber, komum við Traddles, frænka mín og Dick til Canter- bury og gistum í veitingahúsinu þar. Morguninn eftir vorum við full eftirvæntingar, er við 113

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.